beach
« Ungverskur táningur | Aðalsíða | Rafa um Mascherano »

17. janúar, 2007
Eru kaupin á Neill að klikka? (Uppfært: JÁ!)

Sky halda því núna fram að Lucas Neill geti verið á leið til West Ham mjög fljótlega.

Samkvæmt Sky virðast Liverpool hafa gert Neill tilboð að samningi, en að hann sé að taka langan tíma í að segja já. Rafa Benitez tjáir sig um þetta og ég er mjög ánægður með þetta kvót:

“We are continuing working on these things but we will not wait. If a player wants to come to play for Liverpool, he must say yes quickly,”

“If he thinks about it for too long, maybe it’s a signal it’s time for us to look for other players. We have alternatives.”

Semsagt, ef að Neill vill spila fyrir uppáhaldsliðið sitt, þá verður hann að segja já við þessu samningsboði Liverpool og gera það strax. Ef ekki, þá getur hann eflaust farið til annarra liða og fengið meiri pening fyrir og hugsanlega átt stöðu í liðinu vísari.


Uppfært (Kristján Atli): Ókei í fyrramálið munu blöðin staðfesta að Lucas Neill hefur valið launapakkann hjá West Ham fram yfir titlabaráttuna og metnaðinn hjá Liverpool. Sjá frétt á The Times.

Ég hef lítið um þetta að segja og ætla ekki að eyða orðum. Lucas Neill er góður knattspyrnumaður en hann valdi lið sem er í bullandi fallbaráttu en með mjög, mjög góð laun fram yfir lið sem er í Evrópukeppni og toppbaráttu og aðeins mjög góð laun. Metnaðarleysi er rétta orðið yfir slíka menn, og ég segi það ekki bara sem bitur Púllari heldur bara af því að það er satt. 30,000 pund hjá Liverpool hefðu verið launahækkun fyrir hann frá því sem hann þénaði hjá Blackburn, og slíkar fjárhæðir eru ekkert slor til að byrja með, en á endanum stóðst hann ekki auka 20 þúsundin.

Gangi þér vel í fallbaráttunni, Lucas. Íslendinganna vegna vona ég að þetta reddist hjá ykkur, en líka af því að þá geturðu heimsótt Anfield næsta vetur og fengið að sjá með eigin augum hverju þú slepptir fyrir aðeins ríflegri ellilífeyri.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 18:18 | 326 Orð | Flokkur: Leikmannakaup
Ummæli (35)

Mér finnst þetta vond tíðindi.

Í fyrsta lagi sá ég Lucas Neill ekki fyrir mér sem varamann. Við erum að tala um fyrirliða Blackburn. Leikmaður sem getur bæði spilað sókn og vörn, bakvörð sem hafsent. Leikmaður sem ræður oft úrslitum hjá sínu liði meðan hægri bakvörðurinn okkar gerir það aldrei.

Í öðru lagi er eitthvað stórkostlegt að í leikmannakaupunum hjá okkur. Það hverfa gæðaleikmenn trekk í trekk fyrir framan augun á okkur. Ef ég man þetta rétt þá vildi Neil koma til liðsins í haust og Blackburn var til í að þiggja Warnock sem slétt bítti. Nei - það skyldi fá pening fyrir Warnock enda lykilleikmaður hjá Liverpool og enska landsliðinu. Svo nú í janúar voru Livermenn til í slétt býtti. Það er eitthvað stórkostlegt að og það er ekki bara peningaleysi að kenna.

Í þriðja lagi þá eru stuðningsyfirlýsingar við Moores og Parry afar undarlegar á þessu stigi. Hvorugur þeirra hefur nokkurn tíman sýnt fram á að hann geti lagt sitt af mörkum til að koma liðinu í allra fremstu röð.

Í fjórða lagi er fáránlegt að halda því fram að atvinnumaður í fótbolta eigi að koma til Liverpool bara af því að Liverpool er svo æðislegur klúbbur. Ég er nánast viss um það að öllum finnst það um sinn klúbb en að það eigi að vera ákvörððunarástæða topp klassa leikmanns finnst mér undarlegt. Húlli sagði þetta alltaf þegar einhver gekk honum úr greipum og sá maður er afar lágt skrifaður hjá mér.

Í fimmta lagi verð ég að taka undir með Rafa sem gagnrýndi fyrirkomulagið hjá Liverpool við að kaupa leikmenn. Ég heyrði að það þyrfti alltaf að bera allt undir stjórnina á meðan menn frá Chelsiea (Kenyon) og hjá manu hafa umboð til að fara og semja beint við leikmenn. (Einhver leiðrétti mig ef ég fer ekki rétt með). Þetta gerir það einfaldlega að verkum að það kemur alltaf einhver og býður betur á meðan við hlaupum fram og til baka á milli manna. Afar gamaldags verð ég að segja og alls ekki til þess fallið að færa Liverpool í átt til nútíma viðskipta eins og hann blessaður Parry átti að gera.

Áfram Liverpool!

Hössi sendi inn - 18.01.07 09:21 - (
Ummæli #15)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Watford 0 - Liverpool 3
·Liverpool 3 - Arsenal 6
·Liverpool 1 - Arsenal 3
·L'pool 3 - Bolton 0
·Tottenham 0 - Liverpool 1

Leit:

Síðustu Ummæli

Friðgeir Ragnar: Manchester City manager Stuart Pearce sa ...[Skoða]
Kristján R: ég er svo samála þér eikifr... ég myndi ...[Skoða]
eikifr: Come on, guys! Það er talað um að hann ...[Skoða]
Einar Örn: Ég er ósammála þessu, SK. Mér finnst þe ...[Skoða]
Sigtryggur Karlsson: Þetta er auðvitað mjög eðlilegt hjá Nei ...[Skoða]
Júlli: Ég skil Neill mjög vel. Það er fullt að ...[Skoða]
Kristján Atli: Auðvitað er ekkert alslæmt hjá Neill að ...[Skoða]
Brúsi..: Það er líka hægt að snúa þessu við og se ...[Skoða]
Bjarki: Síðast komment frá Einari Erni segir all ...[Skoða]
Einar Örn: Þetta er ágætt: >He had two offers on t ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Chelsea á morgun!
· Rafa um Mascherano
· Eru kaupin á Neill að klikka? (Uppfært: JÁ!)
· Ungverskur táningur
· Mun Sheva spila á Anfield?
· Liverpool búið að hafa samband við Fifa vegna Mascherano.

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License