16. janúar, 2007
Liverpool búið að hafa samband við Fifa vegna Mascherano.
Við höfum nú þegar skrifað þrjár greinar um hugsanleg kaup Liverpool á hinum argentínska Javier Mascherano:
Mascherano til Liverpool eða ekki?
sagan endalausa
stutt um JM
Og núna er ljóst að Liverpool hefur sett sig í samband við FIFA vegna Mascherano en það er óljóst hvort hann megi spila með þriðja félaginu á sama tímabilinu. Það er þar með ljóst í mínum augum að Liverpool hefur mikinn áhuga á þessum dreng og er ég þess fullviss að hann muni styrkja liðið.