beach
« Liverpool býður í skoska strákinn | Aðalsíða | Héðan og þaðan (uppfært x3: Leto og Padelli koma!) - Garcia frá út tímabilið »

09. janúar, 2007
Liverpool 3 - Arsenal 6

FOKKING SJENSINN AÐ ÉG NENNI AÐ SKRIFA LEIKSKÝRSLU UM ÞENNAN LEIK!

Þið megið rífast um þetta, en ég ætla að blokka þennan leik útúr mínu minni frá og með þessari mínútu.

Góða nótt.


Viðbót (Kristján Atli): Ég er í svipað vondu skapi og Einar Örn, en ég ætla samt að reyna að hafa smá stjórn á fýlunni og koma eftirfarandi punktum frá mér. Þetta eru þau sjö atriði sem við höfum lært á leikjunum tveimur við Arsenal sl. fjóra daga:

  1. Ef Pepe Reina helst heill heilsu fram á vorið hefur Jerzy Dudek leikið sinn síðasta leik fyrir Liverpool. Hann átti sérstaklega annað og þriðja markið í kvöld og þótt hann skyldi verja vítaspyrnu sást greinilega að hann er ekki jafn góður markvörður og Pepe, auk þess sem vörnin er ótrúlega ótraust um leið og Pepe vantar. Dudek fékk á sig þrjú mörk gegn Reading, Pepe hélt hreinu gegn Birmingham með sömu vörn og nú hefur Dudek fengið á sig níu mörk í tveimur leikjum gegn tveimur ólíkum Arsenal-liðum á fjórum dögum. Game over, Jerzy.

  2. Gabriel Palletta á laaaaaaaaaaaangt í land með að geta barist um sæti í þessu Liverpool-liði. Það er kannski hart að dæma menn eftir einum leik, og hann átti vissulega tvær stoðsendingar í kvöld, en varnarlega var dómgreind hans kolröng. Jeremie Aliadiere hefur aldrei litið jafn vel út og óskar sér þess sennilega að Palletta geti dekkað hann í hverri viku.

  3. Tomas Rosicky, Julio Baptista og Jeremie Aliadiere. Arsenal-menn sem hafa farið halloka í vetur en blómstra skyndilega gegn okkar mönnum. Við hljótum að vera nýja uppáhaldslið Arsenal-manna!

  4. Mark Gonzalez og Luis García eru meiddir, og allavega sá fyrri frá í lengri tíma. Johnny Riise er í lægð og Fabio Aurelio á enn eftir að finna fæturna í Englandi. Rafa .. mér er sama hvað þarf til, reddaðu bara þessum málum með Lucas Neill og það strax! Annars endum við með hreint ótrúlegan skort á mönnum til að spila þarna vinstra megin. Og nei, ég held ekki að Stephen Warnock geti enst út tímabilið heill heilsu …

  5. Robbie Fowler er Guð. Robbie Fowler er goðsögn. Ég, eins og allir Liverpool-aðdáendur, elska og dái Robbie Fowler. En hans tími er kominn og löngu farinn sem leikmanns liðs á hæsta stigi. Það er helvíti hart þegar maður er farinn að vona að goðið sjálft fái ekki að spila meira það sem eftir er tímabils, en sú er bara staðan núna. Því miður.

  6. Ég veit ekki með ykkur hina, en ég sakna Momo.

  7. Við sem héldum fyrir tímabilið að liðið okkar væri hugsanlega með mestu breidd á Englandi. Við erum með breiðan hóp, svo mikið er víst, en það er á hreinu að gæðin í þessari breidd okkar eru alls ekki jöfn gæðum hinna þriggja toppliðanna. Þetta voru unglingar og varamenn Arsenal í kvöld sem jörðuðu okkur, að undanskildum Touré og Fabregas voru þetta aukaleikararnir þeirra. Og við áttum aldrei séns!

Úff … nóg komið af þessu í bili. Ég ætla að fara og reyna að hugsa um eitthvað annað. Ég trúi því varla að ég hafi tekið mér frí frá vinnu til að horfa á þessa hörmung.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 22:07 | 525 Orð | Flokkur: Leikskýrslur
Ummæli (36)

Got is töt...

  1. Vörnin
  2. Ósanngjörn aukaspyrna/Dudek
  3. Vörnin/Brotið á Dudek
  4. RANGSTÆÐA
  5. Paletta
  6. Paletta

Hvað á þessi helvítis fjarlægðardekking og sýndarpressa að þýða?? Það var eins og að horfa á lélegan 3. flokk spila þennan leik. Engin leikgleði ekkert skap EKKERT... Ég var búnað sæma Gerrard titlinum lélegasti maður leiksins en svo kom Paletta og datt á hausinn og er ekki annað hægt en að sæma hann þeim titli.

En hvað er málið með það að geta ekki farið í tæklingar, erum alltaf 2-3 metra frá mönnunum og leyfum þeim að komast á ferð áður en farið er í þá og menn selja sig...

Það voru þrír menn sem fóru í tæklingar... Warnock, Aurelio og Alonso. Af hverju var allediere(eða hvernig það er skrifað) ekki tæklaður út af Anfield?? Hvað er málið að hleypa honum svona auðveldlega framhjá sér??

Og að láta Song og Fabregas stjórna miðjunni alveg óáreitta...

Litlu guttarnir komust þokkalega frá sínu.

Dudek var slappur 2-3 Peltier var sprækur á kantinum 5 Hyypia hefði alveg eins getað verið heima 2 Paletta hefði betur verið heima 1 Warnock barðist vel og sýndi ákveðni 5 Guthrie týndist á löngum köflum en sýndi takta þegar hann fannst 4-5 Gerrard á að draga vagninn, varð eiginlega undir honum 3 Aurelio var ekki með í fyrri hálfleik, komst aðeins inn í leikinn í seinni 4 Gonzalez well 5 mín er nú ekki langur tími ætti sennilega að sæma hann mann leiksins :-) Fowler gamall, útbrunninn og á ekkert í fljóta varnarmenn 3 Bellamy duglegur hleypur, mjög óheppinn að línuvörðurinn er fíbbl 4

Garcia sem við elskum að hata og hataði ég hann meira í þessum leik en elskaði 3 Alonso besti leikmaðurinn okkar í þessum leik 6 Carragher gerði ekkert fór í bakvörðinn -

Ég gæti haldið áfram endalaust, en eitt verða leikmenn að gera sér grein fyrir að þeir eru að spila fyrir LIVERPOOL og menn verða nú að sýna örlítið meiri karakter en þetta.

Og þegar við erum að fá augljósa dóma á móti okkur þá mættu menn nú aðeins sýna smá skap og ræða við dómarann.

Sigurgeir sendi inn - 09.01.07 22:29 - (
Ummæli #8)

Góðannn dagiinnnn eða hvað.... úff þvílík hörmung... segi ekki annað... ég veit ekki en ég held að ég hafi aldrey skammast mín mykið á æfini fyrir að halda með eins lélegu liði og var að spila þennan leik í kvöld... ég veit ekki hvað er hægt að telja jákvætt... í þessu blessaða leik... ekki eru það meiðslin.. veit ekki held að þeir 3 sem fóru útaf hafi allir farið meiddir útaf... allavega var warlock eithvað að hvarta í bakinu... ég veit ekki hvar á að byrja... jú sá eitt jákvætt í leikskírsluni og það er að Kristján Atli er loksins búinn að viðurkenna að þessi FOWLER sem var æðislegur áður en hann var látinn fara til Leeds... er BÚINNNNNNNN og á ekkert að vera þarna.. Hvað var Bellamý að gera inná... kanski hann hafi getað reddað fyrri leiknum eins og menn töluðu um.... ekki syndi hann það í kvöld.... jú það gerðist eithvað smá á hægri kandinum... ekkert á vinstri... hvar var miðjan.... jú gerard skoraði eitt.. flott mark og átit 2-3 mishepnuð skot í viðbót.. búið... sást ekki... alanso kom inn og æ fanst hann meyra liggja í grasinu heldur en að berjast um boltan... vörnin hvar var vörninnnnnn hvað er þessi síðhærði djöfull að gera í rauðri treyju... æ ljótt að segja svona... það gerði enginn neitt í þessum leik...
dúddi átti svo sem ekkert arfaslakan dag.. hann gat ekkert gert í 1 markinu, hann varði vel og óheppinn að ná ekki að blaka í hann... veit ekki með aukaspirnuna... hefði allavega litið betur út hefði hann reynt... hornið.. hvað var málið má skora með hendini ? hvar var almenileg dekning... ? úff maður man ekki einusinni hvernig öll mörkin voru...

Og eikifr... ég verð bara að vera sammála með þenna stjóra... ég er alveg að missa álitið á honum... til hvers í andskotanum skipti hann Carra inna þegar 10 mín eru eftir og við þurfum að skora 3 mörk... ég bara náði ekki því... ekki það að hann skori í hverjum leik.. hann skorar á 8 ára fresti... og man ekki betur en í síðasta eða næst síðast markinu þá röltir hann á eftir bapista, maður sem kom inn á 10 mínutumáður.. arg... jæja við tökum þá bara í deildini eða allavega vona ég það.....

YNWA já YNWA

Kristján R sendi inn - 09.01.07 23:05 - (
Ummæli #13)

Það er hægt að læra mikið af þessum tveimur leikjum gegn Arsenal ef menn eru með opinn augun.

1) Aldrei að lofa markverði einhverjum leikjum, heldur láta hann sanna sig og vinna sér inn sæti í liðinu. Reina er í allt öðrum klassa en Dudek og guð sé lof að nú eru leikir Dudeks taldir í búningi Liverpool. Mun samt alltaf eiga góðar minnning um hann frá Istanbul.

2) Breidd liðsins er ekki nógu góð, hef sagt það frá byrjun tímabilsins en nú er það orðið staðfest. Hvernig er það með okkar síðustu tvo stjóra þurfa þeir alltaf að kaupa leikmenn til að auka breiddina. Hvernig væri að kaupa leikmennn sem eru betri en þeir er fyrir eru, þannig bætir liðið sig og breiddin verður sterkari. Hvað er fengið með því að kaupa miðlungs menn á 2-6 millj til að auka breiddina þegar augljóslega þarf að styrkja vissar stöður með sterkari leikmönnum en Liverpool hefur í dag.

3) Þeir ungu leikmenn sem Liverpool á í dag eru ekki þeim þeim klassa að framtíðin sé björt með þá innanborðs. Liðið á eitthvað í land með að byggja upp sterkt varalið með blöndu af mjög efnilegum leikmönnum og reyndum köppum sem nýlega er búið að slá út úr aðalliðinu af aðkeyptum gæða leikmönnum.

4) Benitez, Parry, Moores og co þurfa algjörlega að endurskoða stefnu sína í leikmannakaupum. Frá og með þessum leik verða verslaðir leikmenn í ákveðnum gæðaflokki. Og þó að þeir kosti 10+ millj þá breytir það engu því liðið í dag þarf klárlega á meiri gæðum að halda en MAGNI(af miðlung leikmönnum, ps ég er ekki að tala um rokkarann okkar).

5) 25 leikir búnir gegn toppliðunum 3 (arsenal, manu, Ch$$$$$$) undir stjórn Benitez. Niðurtaða 6 sigrar, 4 jafntefli og 15 TAPLEIKIR. Hér er eitthvað ekki í lagi, kannski menn viðurkenni loksins að við erum ekki með jafn sterkan mannskap og þessi lið.

Krizzi

Krizzi sendi inn - 09.01.07 23:07 - (
Ummæli #14)

þetta var nú meira ruglið. Maður er bara í hálfgerðu losti eftir þetta. 9 mörk í 6 leikjum, og það á Anfield. Ég hélt að þetta væri ekki hægt. 6 af þessum 9 mörkum skoruðu Rosicky og Babtista sem höfðu ekki náð að skora fyrir Arsenal fyrir þessa leiki. Ég hef áhyggjur af því hvaða áhrif það hefur á liðið að vera slegið út úr 2 bikarkeppnum á 2 dögum, og að hafa verið niðurlægðir í seinni leiknum.

Ungu strákarnir hjá okkur virðast ekki vera á réttri leið. Ég hef aldrei séð vörnina hjá okkur í svona svakalegu rugli. Arsenal hreinlega tætti þá í sig. Paletta og Peltier voru skelfilegir. Þeir eiga langt í land áður en þeir geta gert tilkall til sætis í aðalliðinu, og eftir þessa frammistöðu þá efast ég reyndar um að þeir muni nokkurn tímann spila fyrir aðalliðið aftur. Guthrie komst ágætlega frá þessum leik miðað við hina, en þessi frammistaða hans verður þó varla til þess að hann komist nær því að spila fyrir aðalliðið. "Störnurnar" voru þó lítið skárri. Gerrard var slakur þrátt fyrir markið og týndist gjörsamlega á löngum köflum í leiknum. Hyypia virtist gjörsmalega úti á túni í nokkur skipti, og var nærri því búinn að gefa mjög klaufalegt mark. Garcia átti ekki góðan leik, og það virtist ekkert ganga upp hjá honum. Fowler lítur ennþá út eins og hann sé ekki í neinu formi.

Jersey Dudek verður alltaf goðsögn í mínum augum fyrir það eitt að eiga einn stærsta þáttinn í því að við urðum Evrópumeistarar 2005, en ég vona samt að hann muni aldrei spila fyrir Liverpool aftur. Í þessum 2 leikjum fékk hann á sig 9 skot og þurfti að hirða boltann 9 sinnum úr netinu. Þarf þarf ekkert að hafa fleiri orð um þetta.

Ef það á að draga eitthvað jákvætt úr þessum leikjum, þá dettur mér bara það í hug að þrátt fyrir að hafa verið að skíttapa þessum leikjum, þá var völlurinn samt nánast fullur og allir sungu YNWA undir lokinn. Vonandi nær Rafa að borga þennan stuðning til baka með því að slá út Barcelona í CL. Mér finnst hann skulda það eftir þessa hörmung.

Að lokum vil ég svo óska Arsenal til hamingju.

Halli sendi inn - 09.01.07 23:19 - (
Ummæli #16)

Vá, ég sá ekki leikinn, ég er mjög feginn að ég sá ekki þennan leik, ég sá leikinn á laugardaginn og var mjög ósáttur, enda staddur heima hjá frænda mínum sem heldur með Arsenal. En VÁ! þetta er tveir leikir! Hræðilegir leikir en TVEIR LEIKIR! Róiði ykkur bara aðeins niður og náiði reiðinni í að minnsta eitthvað úr ykkur áður en þið talið um að það eigi að reka Benitez og öll sú "vitleysa" sem hefur komið út úr mönnum hérna í kommentum á þessari frábæru síðu.

Ég er búinn að lesa þessa síðu nánast frá byrjun og það sem ég hef séð hefur ekki verið eintómur pollýönnuleikur, og hreint út langt í frá, Einar og Kristján hafa að mínu mati staðið sig með stakri prýði í því að lýsa SINNI skoðunn, ekki minni og ekki ykkar heldur sinni skoðunn. Með Fowler man ég nú ekki betur en að hann hafi nú bara alls ekki verið tekinn neinum vettlingatökum á þessari síðu ef það má orða það á þann veginn, bara spurning um að lesa aðeins meira af þessari síðu heldur en það sem reynist vel til þess að koma skoti á pistlahöfunda síðunnar.

Samt ekkert hægt að taka það frá einhverjum hérna inni að þeir færa rök fyrir máli sínu og gera það með prýði.

Til hamingju Arsenal menn, við hinir þurfum bara að anda aðeins inn og jafnvel út ... og kannski hugsa bara um eitthvað annað en fótbolta (nei bara smá hugmynd...)

Óli Þ. sendi inn - 09.01.07 23:52 - (
Ummæli #17)

Einar ég er ekki að tala um að kaupa 8 leikmenn á 10+ millj nú í janúar eða í sumar, heldur vil ég sjá tvo til þrjá leikmenn vera keypta á 10 millj plús frekar en 5-6 leikmenn á 3-7 millj. Liverpool liðið er gott í dag en til að gera það betra þurfum við betri leikmenn en þá sem fyrir eru, ekki leikmenn sem koma bara til að auka breiddina og hafa eingöngu gæði til að verma bekkinn.

Ég hefði til dæmis frekar kosið að sjá Alves eða Simoa (10+) í búningi Liverpool í dag í stað Pennants (7 millj), Paletta (2 millj), Gonzalez (3 millj).

Þetta er mín skoðun.

Í viðtal við Phil Neal sigursælasta leikmanns í sögu Liverpool kemur fram að á gullaldar árum liðsins voru á hverju ári keyptir 1-2 leikmenn sem áttu að vera betri en þeir sem fyrir voru í liðinu ( voru keyptir til að taka stöðu) og því þurftu menn að bæta leik sinn til að halda stöðu sinni eða þá að bíta í það súra epli að tapa henni til nýs betri leikmanns.

Gott dæmi um þetta í dag er leikmenn eins og Drogba og Essien hjá C$$$$$$$, í sumar komu Ballack og Shevchenko. Í stað þess að missa stöður sínar til þessara nýju gæða leikmanna bættu þeir leik sinn og eru búnir að vera bestu leikmenn liðsins sem af er. Hjá okkur er Finnan besta dæmið um mikla framför vegna samkeppni um stöðu, því aldrei hefur hann verið betri en fyrir 2 árum þegar hann var í baráttu um sæti í liðinu við Josemi.

Krizzi

Krizzi sendi inn - 09.01.07 23:52 - (
Ummæli #18)

http://blogs.guardian.co.uk/sport/2007/01/10/fangettheteamthey_deserve.html

Áhugavert innlegg. Er NB ekki að segja að ég sé sammála þessu en áhugavert engu að síður...

Kjartan sendi inn - 10.01.07 13:49 - (Ummæli #33)

Málið er að það er ekki nóg að hafa pappírinn góðan (sæmilegt lið á pappírunum), það þarf manneskju á bak við liðið sem þorir að taka sénsa! Ég minni á Mark Lawrenson og hans pistil á BBC heimasíðunni en þar talar hann um svo ég quote í hann:

"If you are playing 60 games a season, it probably means you are playing in a successful team and when you are winning you are not tired. I would not want the manager tapping me on the shoulder and telling me to take a rest when we are winning. If players are tired, why not give them more time off in the week? Tell them to go and put their feet up for a few days - they are super-fit anyway. ".

Þetta er AKKÚRAT það sem er að Benitez og er það lang mesta ástæðan fyrir því að eg er orðinn verulega pirraður á honum! Ferguson og Moaning-hó stilla upp sínu sterkasta liði eins oft og þeir geta með fáeinum breytingum. Það er loksins núna sem Chelsea gerir róttækar breytingar á liði sínu og gefur t.d. Lampard frí en hann spilar nánast alla leiki fyrir Chelsea! Þetta snýst um að vinna dollur en ekki að gefa ÖLLUM unglingunum séns á sama tímanum fyrir mjög mikilvægan leik. Ef hann gefur einum og einum séns einn og einn leik til að gefa þeim nasaþefinn (eins og Wenger hefur gert og uppskar í gær), þá verður pressan minni á þessum strákum.
Svo er ég sammála þessari Guðadýrkun sem Kristján talar um varðandi Fowler. Hann er löngu búinn að vera og að vera með hann á launaskrá vegna þess að hann er goð er rugl! Því ekki að fá Kenny Dalglish bara í hópinn fyrst við erum farin að tala um goð! Okkur vantar leikmenn og fínt að fara að ríma fyrir launaþakinu núna í janúar.

eikifr sendi inn - 10.01.07 21:59 - (
Ummæli #35)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Liverpool 3 - Arsenal 6
·Liverpool 1 - Arsenal 3
·Byrjunarliðið komið!
·L'pool 3 - Bolton 0
·Tottenham 0 - Liverpool 1

Leit:

Síðustu Ummæli

Einar Örn: >Þetta er AKKÚRAT það sem er að Benitez ...[Skoða]
eikifr: Málið er að það er ekki nóg að hafa papp ...[Skoða]
Fíllinn: þetta er einfalt rekum raffa. eftir höfð ...[Skoða]
Kjartan: <a href="http://blogs.guardian.co.uk/spo ...[Skoða]
Einar Örn: Jamm, mig minnir að Liverpool hafi átt 1 ...[Skoða]
Óli: Veit ekki hvort þetta hefur komið fram e ...[Skoða]
Kristján R: Í istanbul erumvið að tala um 45 mínútur ...[Skoða]
Einar Örn: Hann setti Carra til að hleypa Aurelio f ...[Skoða]
Kristján R: jæja þá er nýr dagur byrjaður.... Einar ...[Skoða]
Sigtryggur Karlsson: :-) Það sem Aggi segir hér fyrir ofan ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Bascombe skýrsla
· Garcia frá út tímabilið
· Héðan og þaðan (uppfært x3: Leto og Padelli koma!) - Garcia frá út tímabilið
· Liverpool 3 - Arsenal 6
· Liverpool býður í skoska strákinn
· Stutt um JM

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License