beach
« Liverpool 1 - Arsenal 3 | Aðalsíða | Lið ársins hingað til að mati Guardian »

07. janúar, 2007
Liverpool 1 - Arsenal 3

Hingað til hef ég forðast það eins og heitan eldinn að skrifa leikskýrslur. Ég hef haft svo mikla ánægju af því að lesa svoleiðis eftir félaga mína hér á síðunni að ég hef hreinlega ekki lagt í það. Við sátum fjórir saman yfir þessum leik í dag á Players. Ég, Einar Örn, Kristján Atli og Aggi. Ég viðurkenni það alveg fúslega að ég naut þess að eiga góðar og uppbyggilegar umræður yfir leiknum við þá félaga. Ég meira að segja naut þess að horfa á þennan leik. Við töpuðum og erum úr leik í FA bikarnum. Simple as that. Ég sit hérna fyrir framan tölvuna, mörgum tímum eftir að ljóst var að Arsenal sló okkur út úr bikarnum, en samt er ég alveg bálreiður. Ég er til í yfirdrullun dauðans hér og nú…

En…ég ætla ekki að falla í þann pakka að drulla yfir leikmenn Liverpool. Ég er á því að Reina hefði allavega haldið tveim af þessum mörkum úti. Ég er líka á því að Riise fær afar brátt í brók í hvert skipti sem hann lítur í augun á Hleb. Ég er líka á því að þeir tveir leikmenn sem geta borið titilinn Hr. Traustur almennt, voru langt frá því í dag í tveimur tilvikum. Carra og Finnan eru líklega okkar traustustu menn, en klikkuðu illa í dag. En þrátt fyrir allt þetta þá er bara ein spurning í mínum huga…

HVERNIG Í ÓSKÖPUNUM FÓRUM VIÐ AÐ ÞVÍ AÐ TAPA 1-3 FYRIR ÞESSU ARSENAL LIÐI Í DAG?????????????????????????

Ég bara spyr. Þeir áttu bara ekki break, ekkert flóknara en það. Þetta “besta sóknarlið allra tíma” byrjaði leikinn í vörn og kláruðu hann í vörn. Akkúrat ekkert að því, mínir menn hafa marg oft unnið leiki á slíkan hátt. Lagt upp með góðum varnarleik og beitt skyndisóknum. Þeirra leikkerfi gekk upp í dag og flóknara er það bara ekki. Þessi leikur sýndi manni þó það að það skiptir engu máli hvernig lið spila, það eru úrslitin sem skipta máli. Arsenal voru SLAKIR í dag. Ég sagði hérna í upphafi að ég myndi ekki drulla yfir Liverpool og ég ætla mér að standa við það. Menn eiga eflaust eftir að gagnrýna þessi orð mín, en ég stend við þetta. Arsenal liðið, sem á að heita “skemmtilegasta lið deildarinnar” og er ég oft sammála því, spilaði bolta sem við höfum verið gagnrýndir fyrir lengi. Það virðist sem svo að það skipti engu máli hvernig leikirnir þróast, það er búið að ákveða umsagnir löngu áður. Arsenal gátu EKKERT í dag. Því var þetta enn sárara. Við áttum leikinn og vorum betri allan tímann að öllu leiti, nema…að skora f**ing mörkin.

Í mínum huga átti Xabi Alonso stjörnuleik á miðjunni og Stevie var öflugri en undanfarið. Dirk og Luis voru einnig ákaflega duglegir og Pennant kom til þegar á leið. Mér fannst Riise algjörlega úti á þaki og þvílík breyting þegar Fabio kom inná fyrir hann. Dudek gerði engin mistök, en hann ÁTTI að loka fyrir tvö síðustu mörkin. Eins og KAR sagði í kvöld, þá verður aldrei hægt að kenna Dudek um mörkin, en Reina hefði líklega komið í veg fyrir þau. Þarna skilur á milli.

Þá kemur að félaga vorum Bennett. Hvaðan úr Breiðdalnum er sá náungi? Hvernig í ósköpunum fékk hann það út að Xabi ætti skilið gult spjald þegar hann var tekinn niður í teignum í stöðunni 0-0? Hann var einfaldlega al versti maður vallarins. Mistök á mistök ofan og er ég afskaplega feginn hans vegna að hann hitti ekki félaga minn, Sigurð Hjaltested, í kvöld. Bara hans vegna. Ég mun aldrei kenna honum um tapið, en hann var engu að síður HÖRMUNG. En hvað um það. Tökum bara eina Pollýönnu hérna í lokina. Dottnir út úr bikarnum og þurfum ekki að ferðast alla þessa vegalengd til Cardiff. Getum einbeitt okkur að blessaðri deildinni, deildarbikarnum og svo Meistaradeildinni. Ahhh, Arsenal á þriðjudaginn og nú vil ég sjá Bellamy gera þessa stráka í vörn Arsenal vitlausa.

Overall…sigur Arsenal staðreynd, sanngjarn? Aldrei spurt að því, þeir skoruðu fleiri mörk en við og því telst það sanngjarnt, alveg sama hvort þeir gátu eitthvað eða ekki. Liðið sem skorar fleiri mörk í leiknum VINNUR, flóknara er það ekki. En gerið það fyrir mig að hætta að kalla þetta eitt mesta og besta sóknarlið allra tíma. Þeir geta spilað skemmtilega, við getum það líka, en þeir hafa margoft sýnt það að þeir spila eins og við bara taktískt eftir því hverjir mótherjarnir eru. Til hamingju Arsenal, þið eruð komnir áfram. Nú er bara að rífa sig upp á rasshárunum og klára næstu leiki.

YNWA

.: SSteinn uppfærði kl. 01:05 | 759 Orð | Flokkur: Leikskýrslur
Ummæli (41)

Flottur. Ég bjóst nú við þér reiðari, en þetta nægir svo sem. Maður getur samt lesið á milli línanna að þú varst að halda töluvert aftur af þér þegar þú skrifaðir þessa skýrslu. Augljóst að þig langar til að gagnrýna suma leikmenn Liverpool meira en þetta. :-)

Annars hef ég nokkra punkta út frá leiknum:

  • Steve Bennett hatar Xabi Alonso. Siggi Hjaltested benti mér á að Bennett var sá sem rak Alonso útaf á Highbury í fyrra, þegar Alonso datt á Fabregas og Bennett sneri baki í atvikið en gaf honum samt spjald án þess að ráðfæra sig við línuvörð. Og í kvöld sleppti hann tveimur augljósum vítaspyrnum og spjaldaði Xabi fyrir leikaraskap! Fáránlegt.

  • Johnny Riise þarf hvíld. Mér er sama þótt við látum Hyypiä spila næsta leik í bakverðinum, komið þeim norska bara út úr liðinu í 1-2 leiki. Hann hefur oft átt góða leiki fyrir Liverpool og oft átt slæma leiki, en síðustu vikurnar hafa verið pínlegar á að horfa. Kannski nær hann áttum aftur við að horfa á næstu tvo leiki eða svo.

  • Þessi leikur sigraðist fyrst og fremst á taktík. Ljótt að segja það, en Wenger vann Benítez í dag. Svo einfalt er það nú bara. Þeir lágu í vörn og þetta spilaðist nákvæmlega eins og Wenger hafði lagt upp fyrir sína menn, á meðan okkar menn náðu ekki að brjóta þá aftur þrátt fyrir yfirburðastöðu á vellinum. Skýrasta sönnunargagnið er svo það að Rafa skipti aðeins einum leikmanni inná í dag. Aðeins Fabio Aurelio kom inn fyrir Johnny Riise. Benítez hafði einfaldlega engin brögð í vasanum til að svara leikaðferð Arsenal í kvöld.

  • Burtséð frá taktíkinni, þá hefðum við unnið þennan leik ef (1) Reina hefði verið í markinu í stað Dudek og (2) Riise, Finnan/Gerrard og Carragher (í þeirri röð) hefðu ekki gert sig seka um slæm einstaklingsmistök í vörn. Hleb var með Riise í vasanum annan leikinn í röð, Finnan og Gerrard ákváðu að besta vörnin væri að leyfa Rosicky að skjóta á vítateigslínunni og Carra reyndi að sóla Henry þegar hann væri sjálfur vanur að dúndra bara uppí stúku. No nonsense, Carra, no nonsense!

  • Pennant. Ef það er eitthvað jákvætt við þennan leik þá er það frammistaða hans í síðari hálfleik. Ég sagði við ykkur hina í hálfleik að það ætti að taka hann útaf fyrir Gonzalez, en í seinni hálfleik stórbatnaði hann og var okkar hættulegasti maður. Hvað gerðist? Jú, í síðari hálfleik hættu bakverðirnir að dæla boltanum upp í loftið á Crouch frá miðjum vallarhelmingi Arsenal og fóru þess í stað að reyna að opna kantana með spili niðri á jörðinni. Pennant getur ekki sett mark sitt á leiki þegar boltanum er sífellt lyft yfir hann í átt að Crouch, en um leið og okkar menn fóru að láta boltann ganga fór hann að fá svæði til að athafna sig gegn Clichy og maður sá strax muninn.

  • The Kop. Það bara verður að minnast á aðdáendurna á vellinum í kvöld. Þeir voru einfaldlega stórkostlegir! Mósaíkin í byrjun var ótrúleg og þeir héldu henni fyrstu 6-8 mínútur leiksins, áður en þeir settust! Stemningin á vellinum dó aldrei, jafnvel ekki þegar Henry skoraði þriðja mark Arsenal, heldur sungu menn hástöfum jafnvel á meðan liðin gengu út af vellinum í leikslok! Hvar annars staðar í heiminum finnur maður þessa ástríðu?!?

Ég spáði á sínum tíma að við myndum tapa einum og vinna tvo af þremur heimaleikjum okkar gegn Arsenal í vetur og sú spá stendur. Tapið í dag var slæmt en ég er vongóður um sigur á þriðjudag. Come on you Reds!

Kristján Atli sendi inn - 07.01.07 01:23 - (Ummæli #2)

Kristján, hvaða tvær augljósu vítaspyrnur voru það? Var önnur þegar Alonso hoppaði sjálfur uppí loftið? Hver var hin?

Mér fannst Bennett ekkert sérstakur, hann hefði mátt spjalda Garcia þegar hann sparkaði Hleb niður. Gat ekki séð að dómgæslan hafi hallað á ykkur.

SSteinn, átti Arsenal bara að spila uppí hendurnar á ykkur og leggjast í blússandi sókn? Þó að Arsenal reyni að spila góðan og skemmtilegan fótbolta þá er liðið jú líka að reyna að vinna og þessi taktík meikaði einfaldlega mest sens miðað við þann mannskap sem við höfðum. Ef Cesc hefði verið með þá hefði okkur örugglega gengið betur að halda boltanum á miðjunni og spila honum fram, hvorki Flamini né Gilberto eru góðir sendingamenn eða skapandi leikmenn.

Svo á ég erfitt með að skilja hvers vegna þið eruð svona ánægðir með leik ykkar manna í dag. Vissulega voruð þið mikið með boltann en þið náðuð ekki að skapa ykkur nein færi. Markið ykkar kom uppúr föstu leikatriði en þið fenguð engin opin færi og áttuð tvö skot sem hittu á rammann, Arsenal átti fjögur. Alonso og Gerrard áttu miðjuna en kantmenn og framherjar ykkar höfðu ekki hæfileikana til að brjóta vörn Arsenal á bak aftur. Þið reynduð það sama allann leikinn, háar sendingar fram, engin fjölbreytni í sóknarleik ykkar.

Ég á von á að þið vinnið leikinn á þriðjudaginn í uppáhaldsbikarnum ykkar og það mun örugglega gleðja ykkur mikið. Efast samt um að margir Arsenalmenn sem spiluðu í dag muni verða þar. Lið okkar mun örugglega líta einhvern veginn svona út:

Almunia Lauren - Djourou - Gallas - Traore Walcott - Flamini - Denilson - ???? Baptista - Aliadiere

Joe sendi inn - 07.01.07 01:41 - (
Ummæli #4)

Arsenal spiluðu nú aðallega eins og þeir gerðu í dag vegna þess að þá vantaði Cesc Fabregas, sem er nú orðinn ansi stór hluti af liðinu þarna á miðjunni sem playmaker. Leikur Liverpool breyttist t.d. mjög (til hins betra) þegar Gerrard fór á miðjuna.

Þá finnst mér eins og menn séu að reyna að nota Dudek sem blóraböggul með því að segja að Reina hefði varið seinni tvö mörkin. Mark nr. 2 var "a smartly struck shot" eins og Guardian orðaði það og erfitt við að eiga, og það er erfitt að segja að einhver markmaður verji svona ground shot sem er af markteigslínu og ekki beint á hann. Ég er vissulega á því að Reina sé mun betri markvörður, og kannski hefði hann líka varið eitthvað af þessum skotum. Þá má líka spyrja sig hvort Warnock hefði náð að hemja Hleb betur, hvort Bellamy hefði getað splundrað vörn Arsenal manna o.s.frv.

Og gula spjaldið var nú held ég bara vegna þess að þetta var hreinn og klár leikaraskapur. Vissulega var þetta snerting, en maður sá í endursýningu að Alonso lét sig detta áður en Gilberto snerti hann, og fyrir það fékk hann gult spjald.

Annars virtist líka sem að Flamini hefði fengið það hlutverk að elta Gerrard í leiknum. Þeir voru a.m.k. hvorugir mjög sýnilegir í leiknum. Hins vegar fannst mér Arsenal vera aðeins skárra liðið í fyrri hálfleik, þótt Liverpool hafi svo verið miklu betri í seinni hálfleik.

Halldór sendi inn - 07.01.07 02:35 - (
Ummæli #7)

Þetta var ágætis upprifjun afhverju við keyptum Reina í markið í stað Dudek. Að mínu mati á Dudek að gera betur í fyrsta markinu, þrátt fyrir að þetta hafi verið bogabolti hjá Rosicky þá stóð Dudek of framarlega og því fór boltinn yfir hann í mitt markið. Einnig set ég spurningarmerki við hin mörkin. Stærsta vandamálið er að með Dudek í markinu kemur upp ákveðið óöryggi í vörninni og menn fara að gera mjög sjaldgjæf mistök.

Í marki eitt þá spiluðu Hleb og Rosicky boltanum sín á milli frá miðjulínu án þess að nokkur maður næði að loka sendingarleiðum þeirra, þar fór hann Riise fremstur í flokki með skelfilegri varnarvinnu og dekkningu. Klárt mál að Liverpool verður að versla eitt stykki vinstri bakvörð næsta sumar nema að Aurelio taki upp á því að blómstra á nýju ári.

Í marki tvö átti Finnan að vera löngu búinn að stíga Rosicky út þannig að hann fengi ekki að nálgast vítateiginn í fullu jafnvægi með boltann á hægri fæti, því eins góður skotmaður og hann nýtir sér svona færi. Einnig var mjög óvenjulegt að sjá Gerrard koma inn í tæklinguna með hálfum hug, á betri degi hefðum við séð strauun ala Gerrard.

Síðan er þetta allt toppað með ótrúlegum klaufaskap Carra í þriðja marki Arsenal, í öllum öðrum leikjum hefði hann dúndrað þessum bolta upp í stúku. Það má því með sanni segja að öll þrjú mörk Arsenal komu vegna mistaka og lélegs varnarleiks Liverpool (Dudek er hluti af vörninni). Það var bara Agger sem stóð undir nafni í öftustu línu og lét menn ekkert fífla sig.

Krizzi sendi inn - 07.01.07 09:50 - (
Ummæli #13)

Sorry Liverbird, þetta var ekki alveg rétt samsett setning. Þetta í lokin átti að vera á eftir Bennett dæminu og hefur hér með verið leiðrétt.

Jú, Kristján, ég var mun minna reiður í skýrslunni en ég hefði verið ef ég hefði ekki farið í gegnum eitt stykki matarboð, nokkur glös af rauðvíni og nokkrum góðum fjölskyldusamræðum :-) .

Ég var nú rétt í þessu að horfa aftur og aftur á þetta Xabi Alonso atvik. Ég veit ekki hvaða gleraugu menn eru að horfa í gegnum, en að tala um að hoppa upp í loftið og eitthvað 50/50 dæmi finnst mér fáránlegt, sorry. Alonso er heppinn að hafa hoppað upp úr þessu, því tæklingin hjá Gilberto var vægast sagt glæfraleg. Hann sparkar í Alonso, það er ekki einu sinni vafi um það. Hvað þýðir það? Gult spjald á Alonso!!! Nei, give me a break. Þegar þú ferð í tæklingu inn í teig, nærð ekki boltanum og ferð í manninn, þá er það víti, simple as that.

Mér fannst Bennett hörmung. En eins og ég segi í skýrslunni, þá er ekki séns að ég kenni honum samt um tapið.

Varðandi Dudek, Daði, þá held ég að enginn hafi verið að kenna honum um eitt eða neitt, eins og skýrt hefur komið fram. Hann átti ekki sök á neinu marki. Ég er þó handviss um það að ferskur Reina hefði tekið eitthvað af þessum skotum. Þriðja markið var t.d. eitthvað sem ég er 100% viss um að Reina hafði tekið. Hann er bara mun fljótari niður en Jerzy.

Joe, auðvitað reyna öll lið að vinna, þetta er slakur útúrsnúningur hjá þér. Arsenal vann leikinn á taktík, og eins og kom fram í skýrslunni, þá er bara ekkert út á það að setja. Þetta sýnir þó svo ekki verði um villst að úrslitin skipta öllu máli og það er alveg sama um hvaða lið við erum að ræða. Liverpool hefur verið rakkað niður sem "boring" þegar þeir beita þessari taktík. Hjá Arsenal, þá er þetta bara taktísk snilld. Get the point?

Svo blæs ég á þetta ef Cesc...bullshit. Hann var í banni. Ef Momo, ef Kewell, ef Reina...Ef skila okkur ekki neinu. Ég hef farið yfir það að ég tel að Reina hefði tekið bolta sem Jerzy náði ekki að taka. Við töpuðum samt leiknum. Heldur þú að Arsenal hefðu spilað blússandi sóknarbolta ef Cesc hefði verið með?

Af hverju getum við ekki verið ánægðir með okkar menn? Jú, markið kom uppúr föstu leikatriði og er það afar ánægjulegt, því það hefur ekki verið okkar sterka hlið. Eruð þið Arsenal menn þá bara ekki hundóánægðir með ykkar menn? Mörkin ykkar komu öll eftir hörmuleg mistök Liverpool manna? Voruð þið þá ekki óánægðir með ykkar leik þar sem menn náðu varla þrem sendingum í röð innan liðsins? Eru Arsenal menn ekki bara hundóánægðir? Get tekið undir það að það hefði mátt vera meiri fjölbreytni í sóknarleik okkar, það er bara alltaf vandamál þegar lið koma á Anfield með 11 menn fyrir aftan bolta. Arsenal gerðu það vel og því fór sem fór.

Þykist vita að það sem Kristján Atli var að vísa í sem mont, er leiðindakomment þitt í lokin þar sem þú talar um uppáhalds bikarinn okkar. Sammála Kristjáni með það og alveg magnað hvað menn verða vel cocky á einum sigri.

SSteinn sendi inn - 07.01.07 12:43 - (
Ummæli #17)

Að kenna Dudek um neitt annað en þriðja markið finnst mér fáránlegt

Við vorum ekki að kenna Dudek um mörkin. Við erum einfaldlega að segja að ef Reina hefði verið í markinu, þá hefðum við búist við því að hann verði boltana. Víst að Dudek var þarna, þá bjóst maður ekki endilega við því. Ég er ekkert sérstaklega reiður útí Dudek, Pepe Reina hefur bara sýnt að hann er miklu betri markvörður.

Varðandi það að Xabi Alonso hafi verið að leika, þá er það gjörsamlega fáránlegt. Varnarmaðurinn (var það ekki Gilberto) kemur og skriðtæklar Alonso, Xabi reynir að hoppa yfir tæklinguna til að komast inní teiginn, en hann nær ekki að hoppa nógu hátt, þannig að löppin krækir í Gilberto. Þeir á BBC sýndu þetta ítrekað aftur og þetta var klár vítaspyrna að mínu mati. Einsog Aggi sagði á Players, þá á sóknarmaðurinn að njóta vafans, en það á ekki að fara með það viðhorf að menn séu alltaf að leika. Ef að Xabi hefði fengið að njóta vafans, þá hefði verið dæmd vítaspyrna. Af endursýningum fannst mér það vera augljóst. Alonso er að hoppa yfir tæklingu (sem var það EINA, sem hann gat gert í stöðunni til að komast áfram - ekki gat hann farið í gegnum lappirnar á Gilberto) en ekki að láta sig detta.

Og varðandi þetta sem Joe segir. Það fer einfaldlega í taugarnar á mörgum að þegar að Liverpool leikur svona bolta, þá er það dæmi um leiðinlegan varnarbolta, en þegar Arsenal leikur svona, þá er það merki um það hversu Arsene Wenger er mikill snillingur. Það er aldrei talað um það að Arsene Wenger sé kannski ekki svo mikill snillingur þegar liðið tapar gegn liðum einsog Sheffield United með miðjumann í markinu.

Ég á von á að þið vinnið leikinn á þriðjudaginn í uppáhaldsbikarnum ykkar

Nei, þetta er vitlaust hjá þér, Joe. Uppáhaldsbikarnn okkar er með stór eyru og við höfum unnið hann fimm sinnum, en þitt lið aldrei. Til upprifjunnar getum við bent þér á þetta hér.

:-)

Einar Örn sendi inn - 07.01.07 12:54 - (Ummæli #18)

þurfti frá að hverfa áðan án þess að hafa klárað að ausa úr skálum reiði minnar.

Hvernig stendur á því að Arsenal getur keypt Rosicky á bara á 7 millj punda á meðan Liverpool borgar ca. 7 millj fyrir Pennant. Þetta er gott dæmi um undirverð og yfirverð. Rosicky er í allt öðrum klassa en Pennant og var meðal annars tilnefndur sem einn að 50 bestu fótboltamönnum heims árið 2006, ég held að Pennant hafi verið í baráttunni um að komast á topp 500.

Hann er ekki einu sinni einn af 5 bestu hægri könturum Englendinga. Lennon, Beckham, Gerrard, Dyer, Wright Phillips eru allir betri og hér mætti líka telja með Agbonlahor hjá Aston Villa að mínu mati.

Ekki veit ég hvaða leik Kristján var að horfa á en í þeim leik sem ég sá í gær var Pennant jarðaður af Clichy. Þar sem Pennant komst ekkert áleiðis upp kantinn byrjaði hann að leita mikið inn á miðjuna sem þrengdi svæði Gerrard til að hlaupa inn á auð svæði. Á meðan að vinstri bakvörður arsenal át okkar kantmann var vintri bakvörður LFC með opið hús.

Í gær vantaði allt bit á kantana okkar eins og svo oft í vetur. Á meðan kantmenn okkar helstu keppinauta eru í heimsklassa Ronaldo, Giggs, Robben,J. Cole, Van Persie, Rosicky, Hleb, þá spilum við á Pennant, Gonzalez, Garcia. Í fyrra vorum við reyndar í mjög góðum málum með Gerrard og Kewell á köntunum enda hefur liðið sjaldan verið sterkara.

Vonandi kemur sem fyrst inn fjármagn svo að LFC getur verslað eitt eða tvö stykki af klassa kantmönnum, ég mæli með Simao.

Krizzi

Krizzi sendi inn - 07.01.07 13:22 - (
Ummæli #19)

Laukrétt jogi ég var að bera Pennant og Rosicky saman vegna þess að þeir kostuðu báðir um 7 millj punda og voru keyptir í sumar. Kristján hvergi kem ég inn á það að hann hafi spilað sem hægri kantmaður í leiknum þ.e. Rosicky. Persónulega hef ég alltaf haft mikið álit á Rosicky sem leikmanni, hann er lykilmaður í mjög góðu landsliði og var frábær hjá Dortmund áður en meiðsli komi til.

Varðandi tölfræði hans gegn Gonzalez og Garcia þá er niðurstaðan ekki eins slæm og sumir halda. Í deild og bikar er hann kominn með 2 mörk skoruð og 2 lögð upp í 17 leikjum. Gonzalez, 14 leikir tvö mörk skoruð og ekkert lagt upp. Garcia, 17 leikir 3 mörk og 4 lögð upp. Og Rosicky er á sýnu fyrsta tímabili á Englandi og því að aðlagast boltanum þar.

Tölfræði Hlebs sem hægri kantmans Arsenal í vetur er góð, í deildinni er hann búinn að spila 16 leiki og skora 2 mörk og leggja upp 3 mörk. Að mínu mati er hann í allt öðrum klassa en Pennant sem er búinn að spila 19 leiki og leggja upp í þeim 2 mörk en er með ekkert mark skorað. Þessi samanburður var ekki mín hugmynd í upphafi en ég er einfaldlega að svara Kristjáni því hann er að bera þá saman sem hægri kantmenn og sagði að hvorugur hefði skorað mark í vetur.

Þar að auki tekur Pennant flestar hornspyrnur Liverpool þegar hann er inn á og því ekkert óeðlilegt að hann leggi upp eitt og eitt mark.

Kristján, Pennant lagði upp mark okkur úr föstu leikatriði gegn liði sem í vetur hefur fengið á sig fjölda marka út föstum leikatriðum.

En auðvitað vona ég sem Liverpool aðdáandi að Pennant blómstri, en eins og staðan er í dag þá er mitt mat að hann sé ekki nógu góður fyrir LFC.

Svo er ótrulegt til þess að hugsa þegar maður skoðar tölfræði Garcia að hann skuli ekki byrja alla leiki Liverpool. Að mínu mati lang hættulegasti kantmaður liðsins Í DAG.

Krizzi

Krizzi sendi inn - 07.01.07 21:55 - (
Ummæli #27)

Sjá myndband hér: Atvikið með Alonso (Save As) (Ísl dl)

Horfið á þetta, sést sérstaklega í síðustu tveimur endursýningunum að það er bara hneyksli að dæma ekki víti á þetta. Hvað á Alonso að gera? Á hann að hlaupa áfram og Gilberto tæklar bara í gegnum hnén á honum?

Síðan segja sumir að hann hafi dottið áður en mér finnst eins og hann sé bara hræddur við tæklinguna, reynir að fara yfir hana en svo fer Gilberto í hann og þá er svo auðvelt að missa jafnvægið.

Andri Fannar sendi inn - 08.01.07 11:54 - (Ummæli #33)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Liverpool 1 - Arsenal 3
·Byrjunarliðið komið!
·L'pool 3 - Bolton 0
·Tottenham 0 - Liverpool 1
·Blackburn 1 - Liverpool 0

Leit:

Síðustu Ummæli

Páló: Gilberto var ALDREI nálægt því að fara í ...[Skoða]
jogi: Ég var einfaldlega að ítreka það að Alon ...[Skoða]
SSteinn: Ég vona þín vegna að þú hafir verið að g ...[Skoða]
jogi: Gilberto hefði náð boltanum ef Alonso he ...[Skoða]
Páló: Þess vegna hoppar Xabi uppúr tæklingunni ...[Skoða]
jogi: Efast um að hann sé til í að fórna löppu ...[Skoða]
Einar Örn: Jogi, ef að Alonso ætlar að fá víti, af ...[Skoða]
jogi: Ef Alonso væri að reyna að hoppa upp úr ...[Skoða]
Andri Fannar: Sjá myndband hér: <a href="http://fotbol ...[Skoða]
Jón H: Ef sama atvik hefði átt sér stað upp við ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Liverpool býður í skoska strákinn
· Stutt um JM
· Arsenal á morgun - aftur...
· Lið ársins hingað til að mati Guardian
· Liverpool 1 - Arsenal 3
· Liverpool 1 - Arsenal 3

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License