beach
« Arsenal á morgun | Aðalsíða | Byrjunarliðið komið! »

05. janúar, 2007
Sagan endalausa....

… heldur enn áfram. Varð að skjóta þessu að en Rafa segir að það skipti engu máli hversu mörgum félögum Mascherano hefur spilað með, hann geti alveg komið! Reyndar nefnir hann Mascherano ekki á nafn en það þarf engan enskusnilling til að sjá um hvern verið er að tala…

‘There are a lot of similar situations with players who have played for three clubs in the same season, and in some cases four, so I think it is not a problem. ‘We are watching good players and we want to find someone who can add more balance but at this moment we are focusing on the next game, and we are not talking about players.’

Þannig að…. spennandi hlutir að gerast? :-)

Bæti því einnig við að West Ham var að fá tvo miðjumenn, Luis Boa Morte, sem reyndar getur spilað allsstaðar fram á við, og svo er Alexei Smertin á leiðinni til þeirra líka. Chelsea keyptu hann (reyndar líklega bara af því Roman vildi hafa einhvern Rússa í liðinu) og hann gerði fína hluti hjá Portsmouth og Charlton áður en hann fór til Dynamo í heimalandi sínu. Þannig að…

.: Hjalti uppfærði kl. 16:48 | 192 Orð | Flokkur: Leikmannakaup
Ummæli (23)

Liverbird! Cesc og van Persie verða BÁÐIR í banni á morgun

Tel þetta talsvert áreiðanlegri heimild en soccernet

Páló sendi inn - 05.01.07 18:47 - (Ummæli #5)

Málið er bara Stefán að það er búið að fara í gegnum þessa umræðu. Það eru allir sammála um það að það vantar backup fyrir hægri bakk, og verið er að vinna í þeim málum. Við höfum núna verið berskjaldaðir á miðjunni vegna meiðsla og því eru menn að horfa þangað. Sammála með hægri kant, en eins og flestir vita þá hefur lítið gengið við að bæta honum við. Vinstri kant? Held að það séu bara fá lið í boltanum sem hafa úr jafn mörgum vinstri kantmönnum að spila. Í dag höfum við Gonzalez, Garcia, Riise og Aurelio sem spilað geta þessa stöðu og hafa gert það oft á sínum ferli með prýði. Þar fyrir utan eru þeir Bolo og Kewell meiddir. Held að vinstri kantstaðan sé líklega sú staða sem þarfast síst styrkingar. Og svo framherja? Við erum með fjóra heila framherja og svo Garcia í þokkabót. Kewell er svo meiddur. Hvernig fá menn það út að okkur bráðvanti að kaupa framherja frekar en miðjumann eins og liðið er í dag?

Það sem gerði það að verkum að ég fékk bjánahrollinn var þessi ótrúlega samsæriskenning hjá seðlinum og það að vera að fárast yfir því að við gætum verið spenntir fyrir þessum kaupum. Menn verða bara að koma sér niður á jörðina og átta sig á því að Henry, Ronaldinho og þessir kappar eru bara ekki að koma til liðs við okkur í janúarglugganum. Það getur gerst í FM en ekki í raunveruleikanum.

SSteinn sendi inn - 06.01.07 15:09 - (
Ummæli #18)

Sá fyrst núna að innlegg mitt hefur komið af stað miklum tilfinningum. Ætla ekki að svara þeim enda tel ég þau dæma sig flest sjálf. Vil eingöngu ítreka það sem ég var að segja, vegna þess að hér voru mér lögð orð í munn.

Í fyrsta lagi tel ég komu Mascherano ÓSPENNANDI, ekki að ég vilji hann ekki. Það er enginn annar að eltast við hann og ekki einn heldur tveir stjórar West Ham hafa ekki getað notað hann. Aðalpunkturinn er samt að þessi staða er frábærlega mönnuð hjá okkur og því finnst mér ekki spennandi að fá mann þar (ég er mótfallinn því bara ekki spenntur (excited)). Kemur alveg skýrt fram hjá mér.

Í öðru lagi óska ég þess að keyptur væri framherji eða kantmaður sem teldist fyrsta flokks - þ.e. byrjunarliðsmaður sem væri "betri" en þeir sem fyrir eru. Ekkert óeðlilegt við það og skil ekki afhverju það veldur æsingi. Ég tel það ekki óraunhæft miðað við að nýjir eigendur kæmu inn, tala nú ekki um ef þeir væru olíufurstar. Í því samhengi pirra ég mig á hversu hægt allt gengur með yfirtökuna, sem byggir á pirring yfir öllum aðgerðum sem ég tel Moore/Parry tengjast, s.s. leikmannakaup sem falla á tíma eða gerast korteri fyrir lokun. Auðvitað vinnur Parry fullan vinnudag, fyrirgefðu SSteinn og allir hinir sem tóku það bókstaflega hjá mér. Og SSteinn, þá veit ég allt um hvernig svona hlutir ganga fyrir sig og veit því að þeir þurfa ekki (og eiga ekki) að gerast svona hægt eftir að þeir hafa komið fyrir almannasjónir. Sem þýðir einnig að ég tel að þessi yfirtaka hafi verið komin í gang löngu áður en við heyrðum af henni og að Gerrard sem fyrirliði hafi verið viðriðin hana. Það er svo mín skoðun að það hafi létt hann í lundu og valdið því að hann fór að spila mun betur. Fullyrði ekkert um rekstur Liverpool, enda eru þeirra gögn ekki opinber sökum þess að um einkafyrirtæki er að ræða en menn geta skoðað reikninga nokkurra annarra klúbba ef þeir hafa áhuga. En ef það er rekið illa þá hefur það að sjálfsögðu áhrif á starfsmenn. Er persónulega farinn að telja að svo gæti verið, svipað og aðrir telja að sígaunar hafi lagt álög á Anfield. Öllum frjálst að hafa sína skoðun og hef ég mikin áhuga á að ræða þetta og lagði þetta því til hér. Ef það er ekki áhugi á því þá allt í lagi.

Í þriðja lagi, kom ekki skýrt fram hjá mér að það er fáranlega óraunhæft að Henry komi til Liverpool? Hélt það. En rosalega er gaman hversu mikið það fer í taugarnar á Arsenal mönnum, kemur á óvart að það fer líka í taugarnar á Liverpool mönnum.

Seðill sendi inn - 08.01.07 11:10 - (
Ummæli #23)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Watford 0 - Liverpool 3
·Liverpool 3 - Arsenal 6
·Liverpool 1 - Arsenal 3
·L'pool 3 - Bolton 0
·Tottenham 0 - Liverpool 1

Leit:

Síðustu Ummæli

Seðill: Sá fyrst núna að innlegg mitt hefur komi ...[Skoða]
Aggi: Ég las þessi ummæli Seðils og vissi ekki ...[Skoða]
Kristinn J: Aðalkostur þessarar síðu og meginástæðan ...[Skoða]
Einar Örn: >Enn einu sinni þegar menn eru ósammála ...[Skoða]
Einar Örn: Æji, kræst Stefán. Maður getur gert tve ...[Skoða]
SSteinn: Málið er bara Stefán að það er búið að f ...[Skoða]
Stefán: Ekki skil ég alveg Einar og SStein. Þeir ...[Skoða]
Hannes: hehe..ég ætlaði bara að svara honum kurt ...[Skoða]
SSteinn: Fyrirgefðu Seðill, af hverju ertu undran ...[Skoða]
Einar Örn: Bíddu, má ég súmmera þetta stjarnfræðile ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Parry um Rafa, Dubai og leikmenn
· Raúl slúðrið snýr aftur
· Watford 0 - Liverpool 3
· Liðið gegn Watford
· Padelli kominn (staðfest)
· Watford á morgun.

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License