01. janúar, 2007
Gleðilegt ár eða hvað?!?
Okkar menn hófu árið á besta mögulega hátt í dag með því að vinna auðveldan og afgerandi 3-0 sigur á Bolton, leiðinlegasta liði deildarinnar að mínu mati en einnig einu af þeim sterkustu. Leikir þessara liða hafa jafnan verið grimmir og umdeildir og það er ljóst að það er ekki mikil ást á milli stjóra liðanna, Rafa Benítez og “Big” Sam Allardyce. Í dag var þó ekkert umdeilt á seyði heldur bara burstun, hrein og klár.
Rafa Benítez gerði fjórar breytingar á liðinu sem sigraði Tottenham í mjög erfiðum leik fyrir tveimur dögum. Þótt liðið hafi þar verið á erfiðum útivelli við mjög erfiðar aðstæður að spila við mjög erfitt lið, fyrir aðeins tveimur dögum síðan, stoppaði það ekki þuli SkjáSports, þá Snorra Má og Willum Þór, í að gagnrýna Rafa Benítez fyrir að voga sér að hvíla menn í dag. Eins og leikmenn séu bara vélmenni sem eigi að spila hvern leik á 100% getu. Ótrúlegt hvað “sérfræðingarnir” geta verið misgáfaðir.
En allavega, liðið sem Rafa vogaði sér að stilla upp í dag var sem hér segir:
Reina
Finnan - Carragher -Hyypiä - Riise
Pennant - Gerrard - Alonso - Gonzalez
Kuyt - Crouch
Bekkur: Dudek, Agger, Aurelio, Fowler, Luis García. Craig Bellamy er heill en var hvíldur í dag svo að læristognunin sem hann lenti í gegn Tottenham fái tíma til að heila sig alveg.
Að leiknum. Allt frá fyrstu spyrnunum varð ljóst í hvað stefndi; krafturinn og baráttan í okkar mönnum virtist koma Bolton-liðinu í opna skjöldu og þeir voru einfaldlega næstbestir í öllum aðgerðum á vellinum. Okkar menn fóru mikinn um allan völl og unnu alla baráttubolta og þrýstu Bolton-liðinu hægt og bítandi inn í eigin vítateig. Yfirburðir þeirra Xabi Alonso og Gerrard á miðjunni gegn þremur miðjumönnum Bolton voru gríðarlegir og það skilaði sér í algjörum yfirburðum út um allan völl.
Þó gekk illa að skapa færin í fyrri hálfleik, þrátt fyrir yfirburðina, en liðin fóru til leikhlés með markalaust jafntefli á borðinu en í fyrri hálfleiknum áttu Liverpool átta marktilraunir gegn engri hjá Bolton. Bestu færin voru þegar Xabi Alonso skaut naumlega framhjá af vítateigslínunni eftir gott spil upp hægri kantinn og svo þegar Jussi Jaaskelainen varði stórvel í slána frá Steve Finnan eftir, aftur, gott spil upp hægri kantinn.
Seinni hálfleikur hófst og ekkert breyttist; okkar menn voru með yfirburði, Riise og Gonzalez átu Diouf, Anelka og Hunt sín megin og á hægri vængnum voru þeir Steve Finnan og Jermaine Pennant allt í öllu í sóknarleik Liverpool. Gerrard og Alonso hægðu örlítið á sér og létu sér nægja að stjórna umferðinni úr yfirburðastöðu á miðjunni á meðan Kuyt og Crouch virtust vera út um allan völl, sívinnandi og skapandi. Crouch átti nokkrar góðar einleiksrispur sem glöddu augað og liðið virtist vera að færast nær marki svo að á endanum hlaut eitthvað að bresta.
Á 61. mínútu fékk Kuyt boltann á miðjum vallarhelmingi Bolton og lék að marki, framhjá tveimur varnarmönnum og renndi boltanum svo upp í hornið á Pennant sem gaf flotta fyrirgjöf í miðjan teiginn þar sem Peter Crouch tók boltann með bakfallsspyrnu - keimlíka þeirri gegn Galatasaray fyrr í haust - og þrumaði boltanum í bláhornið! 1-0 fyrir Liverpool og maður fann til mikils léttis að markið væri loksins komið.
Bolton-menn virtust slegnir út af laginu við þetta mark svo að okkar menn létu kné fylgja kviði og settu annað strax í næstu sókn. Aftur var leikið upp hægri kantinn og eftir gott samspil Finnan og Pennant barst boltinn inná Kuyt í teignum sem gaf hann áfram fyrir markið, þar sem fyrirliðinn Steven Gerrard kom aðvífandi og negldi boltanum viðstöðulaust upp í markvinkilinn! 2-0 fyrir Liverpool, game over Bolton!
Í kjölfarið á þessum mörkum fór Rafa að skipta varamönnum inná. Fyrst kom Luis García inn fyrir Gonzalez, svo Fabio Aurelio fyrir Gerrard undir lokin kom Robbie Fowler inn fyrir Kuyt.
Þessi tvö ofurfallegu mörk voru varla nóg til að undirstrika yfirburði Liverpool í leiknum - liðið endaði leikinn með nítján marktilraunir gegn einni hjá Bolton - þannig að þegar tíu mínútur voru til leiksloka fékk Luis García boltann og geystist upp að vörn Bolton-manna óáreittur, lagði hann svo innfyrir vörnina á Dirk Kuyt sem skýldi boltanum vel fyrir varnarmanni Bolton og lagði hann svo snyrtilega í fjærhornið! Staðan orðin 3-0 og það urðu lokatölur leiksins, en síst of stór sigur miðað við yfirburðina!
Þessi leikur var einfaldlega einn sá besti sem ég hef séð Liverpool spila í marga mánuði, sennilega á þessu tímabili eins og það leggur sig. Bolton-liðið mætti eins og venjulega með það að markmiði að tefja, halda hreinu, vera leiðinlegir og reyna svo að skora úr föstu leikatriðunum en þrátt fyrir að fá átta hornspyrnur áttu þeir aldrei séns og náðu varla skoti að marki, eina tilraun þeirra var vonlaus skalli frá Faye sem endaði uppá þaki stúkunnar fyrir aftan mark Liverpool.
Ég hallast frekar að því að Liverpool hafi bara verið svona góðir í dag en að Bolton-menn hafi verið lélegir. Þú spilar aldrei betur en andstæðingurinn leyfir þér og strax frá fyrstu sekúndu leiksins var eins og Liverpool-liðið tæki Bolton-liðið hálstaki og sleppti aldrei nokkurn tímann takinu. Okkar menn voru einfaldlega frábærir í dag og hver einasti maður átti að mínu mati skínandi góðan leik.
MAÐUR LEIKSINS: Ég ætla að gefa Dirk Kuyt nafnbótina þó að hann hafi ekki verið sá eini sem átti stórleik í dag. Dugnaðurinn í þeim hollenska er lýsandi dæmi fyrir dugnað og kraft liðsins í heild sinni í dag en hann átti þátt í tveimur fyrstu mörkum liðsins og skoraði svo það þriðja sjálfur. Frábær leikur hjá honum, sem og öllum hinum!
Framundan eru spennandi tímar. Okkar menn eru komnir í þriðja sætið með 40 stig og verða þar þangað til 13. janúar, þegar næsta umferð Úrvalsdeildarinnar fer fram og okkar menn leika á útivelli við Watford. Fyrir þann leik koma Arsenal þó tvisvar í heimsókn á Anfield til að leika bikarleiki, og eflaust eigum við einnig eftir að heyra eitthvað af slúðri því félagaskiptaglugginn opnaði jú á miðnætti.
Frábær sigur í höfn og við getum brosað í bili. Góðar stundir!