25. desember, 2006
Gleðileg jól öllsömul!
Vonandi hafið þið étið yfir ykkur um hátíðina, og enn meira á leiðinni. Þó veit ég um nokkra sem hafa borðað litla skammta síðustu daga, því okkar menn í Liverpool heimsækja Blackburn Rovers í Úrvalsdeildinni á morgun. Fyrir leikinn eru okkar menn í þriðja sætinu með 34 stig eftir 19 umferðir (mótið hálfnað) en Blackburn eru í því sautjánda með nítján stig og í bullandi fallhættu. Hvað svo sem má segja um jólaandann er því alveg ljóst að þeir bláhvítu munu vera mjög grimmir á morgun.
Ein stór spurning sem hlýtur að vekja forvitni margra er hvort að fyrirliði Blackburn, Lucas Neill, muni spila. Ef við trúum sögusögnunum eru innan við tvær vikur þangað til hann verður orðinn leikmaður Liverpool og því gæti í það minnsta verið áhugavert að fylgjast með honum mæta okkur á morgun.
Þá mun Craig Bellamy mæta sínum gömlu félögum aftur á morgun og í fyrsta skipti á Ewood Park eftir að hann skipti um félag í sumar. Hann lék gegn Blackburn-liðinu á Anfield í miðjum október en þá lék liðið illa og Bellamy þurfti að bjarga jafntefli fyrir okkur með fyrsta Úrvalsdeildarmarki sínu fyrir Liverpool. Síðan þá hefur bæði liðið og Bellamy hrokkið allsvakalega í gang og í dag er hann heitasti framherji á Englandi og Liverpool á mestu sigurhrinu allra liða í deildinni. Spurningin er svo bara hvort að bæði haldi áfram á morgun.
Ég held að Rafa geri lágmarksbreytingar á liðinu fyrir morgundaginn. Það er ljóst að hann þarf að rótera eitthvað, aðeins þremur dögum eftir Watford-leikinn og stutt í leiki við Tottenham og Bolton, en ég held að hann reyni að halda því í lágmarki. Ég gæti séð Sami Hyypiä og Peter Crouch fyrir mér koma inní þennan leik fyrir Daniel Agger og Dirk Kuyt, en meira er það ekki í bili.
Liðið ætti því að líta nokkurn veginn svona út:
Reina
Finnan - Carragher - Hyypiä - Riise
Pennant - Gerrard - Alonso - Luis García
Crouch - Bellamy
BEKKUR: Dudek, Agger, Aurelio, Gonzalez, Kuyt.
Agger gæti alveg eins spilað og Hyypiä en ég held að Rafa velji reynsluna í þennan erfiða útileik, á meðan hann þarf að hvíla Kuyt á morgun til að eiga hann inni gegn Tottenham, en hann skoraði tvennu gegn þeim í september á Anfield. Bellamy spilar að sjálfsögðu á morgun þar sem Blackburn-menn munu pressa okkur og hann nýtist best í þannig leikjum.
MÍN SPÁ: Þótt við viljum að liðið vinni helst hvern einasta leik og jafnvel þótt það sé á blússandi siglingu um þessar mundir held ég að þetta sé leikur sem liðið gæti hæglega gert jafntefli í, og jafnvel tapað. Þetta verður í alla staði jafn leikur og við höfum oftar en ekki farið með eitt stig frá Ewood Park.
Ég spái því að okkar menn muni vinna 2-1 sigur eftir að lenda undir á morgun, en það verður enginn annar en Peter Crouch sem slær í gegn á morgun með tvennu! Þetta held ég og af því að það eru jólin ætlast ég til að fá þetta í jólagjöf!
Gleðilega hátíð … og áfram Liverpool!