18. desember, 2006
Fyrir rétt rúmum mánuði síðan töpuðu okkar menn fyrir Arsenal á útivelli í deildinni, 3-0. Eins og myndin hér til hliðar ætti að minna menn rækilega á skoruðu ekki ólíklegri menn en Flamini, Kolo Touré og Gallas mörkin fyrir Arsenal þann daginn. Síðan þá hefur gengi liðanna í deildinni verið á ólíka vegu og nú eru okkar menn komnir upp fyrir Arsenal í deildinni. Sú athyglisverða staða er svo komin upp að okkar menn eiga eftir að spila þrisvar gegn Arsenal fram á vorið og allir þeir leikir verða háðir á Anfield. Þann 31. mars næstkomandi mætast liðin í leik sem gæti ráðið mörgu í deildinni, þann 6. janúar næstkomandi mætast liðin í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar en fyrst mætast liðin annað kvöld í 8-liða úrslitum Deildarbikarsins.
Reglurnar eru einfaldar: níutíu mínútur af fótbolta, plús framlenging og vító ef þörf krefur, og sigurvegarinn fer í undanúrslit Deildarbikarsins. Til mikils að vinna í þessum eina leik, og það er okkar mönnum í hag að þetta verður útkljáð annað kvöld á Anfield.
Nú, fréttir af Arsenal-liðinu eru helst þær að fyrirliðinn Thierry Henry er frá fram yfir áramót, auk þess sem menn á borð við Rosicky, Gallas, Diaby, Lauren og jafnvel kannski Hleb og Ljungberg missa af leiknum annað kvöld vegna meiðsla. Reikna má með að hinn sjóðheiti Adebayor muni spila einn frammi annað kvöld og að Wenger stilli liðinu upp nokkurn veginn svona:
Lehmann
Eboue - Touré - Senderos - Glichy
Hleb/Ljungberg - Gilberto - Flamini - Van Persie
Fabregas
Adebayor
Þetta eru hæfileikaríkir strákar en vörnin þeirra er enn óreynd og þetta lið hefur sýnt mikla brothættu í undanförnum leikjum. Á móti kemur að Rafa Benítez segist ætla að stilla upp sterku liði annað kvöld og freista þess að sigra þetta Arsenal-lið.
Hvernig verður svo það lið? Það er eitthvað sem segir mér að Dirk Kuyt og Johnny Riise fái hvíld á morgun, enda hafa þeir tveir virkað hálf þreytulegir og ráðvilltir í síðustu leikjum á meðan flest allir aðrir leikmenn hafa verið að detta í þrusuform. Ef ég hef rétt fyrir mér og þeir verða hvíldir gætu Fabio Aurelio og markahæsti framherji enska landsliðsins komið inn í liðið í staðinn. Þetta myndi þá líta einhvern veginn svona út:
Reina
Finnan - Carragher - Agger - Aurelio
Pennant - Gerrard - Alonso - Luis García
Crouch - Bellamy
Ég held að Agger muni spila frekar en Hyypiä því hann hefur meiri hraða og þá tel ég að Luis García muni nær pottþétt koma inní liðið fyrir þennan leik og þá væntanlega fyrir Gonzalez sem hefur ekki jafn mikla reynslu af stórleikjum á Englandi og Pennant. Þá gætu menn eins og Dudek, Hyypiä, Riise, Gonzalez, Fowler, Kuyt, Guthrie, Peltier og Warnock barist um fimm laus sæti á bekknum.
MÍN SPÁ: Ég ætla að láta þá spá falla núna að við munum vinna tvo og tapa einum af þessum þremur leikjum okkar á Anfield gegn Arsenal. Við erum sterkir á heimavelli og Arsenal í smá lægð þessa dagana en þeir eru ekki það slappt lið að við förum létt með þá í þremur leikjum. Spurningin er bara hvaða leik af þessum þremur töpum við? Ég held að allt kapp verði lagt á sigur í deildarleiknum í lok mars, og mér finnst einhvern veginn líklegra að okkar menn vinni á morgun og tapi í janúar en öfugt, af því að liðið er á svo blússandi siglingu núna.
Ég ætla því að spá okkar mönnum 2-0 sigri gegn Arsenal á morgun. Gerrard er byrjaður að skora og setur eitt og svo er kominn tími á að Aurelio sýni okkur hvers vegna Rafa sagði að hann væri betri spyrnumaður en Alonso. Ef þetta gengur eftir hjá mér mun ég fagna á morgun og byrja svo í rólegheitunum að búa mig undir tap fyrir Arsenal í janúar …
Leikurinn verður sýndir í beinni útsendingu á Sýn kl. 19:35. - ÁFRAM LIVERPOOL!