14. desember, 2006
Í gær vorum við linkaðir við markvörð ítalska liðsins Livorno, Marco Amelia. Hann segist sjálfur verið eftirsóttur af næstum öllum stórliðum Evrópu! Og í dag þá er verið að segja að Valencia hafi áhuga á Reina og séu við það að leggja fram tilboð í drenginn.
Er þetta bara tómt bull eða er eitthvað til í þessu? Það er ljóst að ef Reina verður seldur þá verður það aldrei í janúar og eingöngu ef almennilegt tilboð kemur í hann. Jafnframt er ljóst að þessi Marco Almenia er ekki ódýr heldur. Ég persónulega gef lítið fyrir þessar vangaveltur en maður á víst aldrei að segja aldrei. Við keyptum Michael Thomas og eftir markið hans 1989 þá hefði ég ALDREI trúað því að hann myndi klæðast Liverpool treyju!