beach
« L'pool 4 - Fulham 0 | Aðalsíða | Diao og Djib »

10. desember, 2006
Uppboð 2006

Líkt og í fyrra stend ég fyrir uppboði á heimasíðunni minni. Ég hvet alla til að taka þátt, þar sem þetta er til styrktar góðu málefni. Hérna er textinn af síðunni minni, pósta honum líka hérna inn.

Kv. Einar Örn


Jæja, þá er komið að því. Í fyrra stóð ég fyrir uppboði hérna á síðunni, sem heppnaðist gríðarlega vel.

Ég safnaði yfir hálfri milljón króna með því að selja dót sem ég átti og með því að gefa hluta af laununum mínum. Í fyrra lýsti ég því ágætlega af hverju ég væri að standa í þessu. Þær forsendur hafa ekki breyst.

Núna er ástandið hjá mér þó auðvitað öðruvísi. Ég er ekki lengur í jafn vel launaðri vinnu og þar sem ég seldi svona mikið af draslinu mínu í fyrra, þá á ég auðvitað ekki jafnmikið í ár. En samt, þá er þetta slatti af dóti.

Ég ferðaðist til Suð-Austur Asíu í haust og langar mig til þess að peningurinn fari á það landsvæði. Mér leið afskaplega vel með framlag mitt í fyrra og fyrir þessi jól vil ég líka leggja mitt af mörkunum. Einsog áður getur fólk boðið í eigur mínar og ef einhverjir vilja koma með frjáls framlög, þá getiði sent mér póst á einarorn@gmail.com. Ég býst við að framlagið mitt muni fara til munaðarleysingjahælis í Laos eða þá til OXFAM.

Inná síðuna mína er komin inn fyrsti hlutinn, en það eru sjónvarpsþættir á DVD diskum. Þetta mun virka einsog í fyrra, þú setur einfaldlega inn tilboðið sem ummæli við færsluna. Ég mun reyna að setja inn nýja hluti á hverjum degi næstu daga. Mun m.a. bjóða upp DVD myndir, geisladiska, bækur, sjónvarp og leikjatölvu.

Nota bene, ef einhverjir vilja leggja til hluti til þess að bjóða á þessu uppboði, þá getiði sent mér póst. Takk takk :-)

Einsog í fyrra þá er ég mjög þakklátur ef fólk nennir að vísa á þetta uppboð á sínum síðum. Því fleiri sem vita um þetta, því hærri ættu framlögin að vera. Ég er búinn að búa til síðu um þetta á eoe.is/uppbod.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 21:36 | 344 Orð | Flokkur: Auglýsingar
Ummæli (0)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·L'pool 4 - Fulham 0
·Galatasaray 3 - L'pool 2
·Wigan 0-4 Liverpool
·L'pool 0 - P'mouth 0
·Liverpool 1 - Manchester City 0

Leit:

Síðustu Ummæli

Síðustu færslur

· Diao og Djib
· Uppboð 2006
· L'pool 4 - Fulham 0
· Byrjunarliðið gegn Fulham
· Fulham kemur í heimsókn á morgun.
· Sevilla ætla að halda í Alves

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License