04. desember, 2006
Liverpool snýr aftur til fyrirheitnu borgarinnar, Istanbúl á morgun
Þar verður leikið við Tyrkina í Galatasaray í lokaumferð Meistaradeildarinnar. Þessi leikur skiptir í raun ekki neinu máli fyrir liðin, við erum búnir að tryggja okkur efsta sætið í riðlinum og Galatasaray geta ekki komist í UEFA keppnina. Það er því aðeins stoltið sem er í húfi fyrir þennan leik.
Hvar varst þú þann 25. maí 2005? Úffff…. ég var á Players og felldi tár eftir að Jerzy Dudek varði frá Shevchenko. Einar og Steini voru úti í Istanbúl (lucky bastards
) og Einar skrifaði frábæra ferðasögu sem lesa má hér og hér eru myndir hans frá ferðinni. Ef ég væri ekki í miðjum prófalestri þá myndi ég horfa á leikinn í kvöld, ég fékk svo mikla gæsahúð af því að lesa ferðasöguna og skoða myndirnar!
Galatasaray er eitt af þremur risum í Tyrklandi, ásamt Besiktast og Fenerbahce. Ég fæ ekki betur séð en að þeir séu í svipuðum sporum og við, með frábært record á heimavelli en slakt record á útivelli. Mér sýnist þeir hafa tapað 2-1 fyrir Fenerbache í leik í gærkvöldi, sem mér finnst mjög skrýtið. Þeir fá þá aðeins einn dag í hvíld.
Gala hefur aðeins tapað einum leik á heimavelli í ár, fyrir PSV í Meistaradeildinni. Hakan Sukur, besti leikmaður Tyrklandsmeistaranna, er meiddur og því treysta þeir á Umit Karan sem skoraði einmitt bæði mörk þeirra í fyrri leiknum á Anfield sem við unnum 3-2. Það var ansi dapurt að fá á sig tvö mörk eftir að hafa komist í 3-0 með tveimur mörkum frá Crouchy og einu í millitíðinni frá Luis Garcia.
Að okkar mönnum. Rafa hvílir fjóra leikmenn, Jose Reina, Steve Finnan, Sami Hyypia og Steven Gerrard. Það kemur ekkert á óvart. Miki Roque, Paul Anderson og Stephen Darby, fyrirliði unglingaliðsins, eru allir í hópnum ásamt Danny Guthrie og Lee Peltier.
Ég veit ekki alveg hvað Rafa ætlar sér að gera. Ég held að það sé ekki hægt að giska á rétt byrjunarlið. Eftir síðasta leik voru miklar vangaveltur um leikkerfið og því er stóra spurningin hvaða kerfi Rafa spilar. Mun hann spila 4-4-2, með Lee Peltier í hægri bakverði og jafnvel Paul Anderson á kantinum, eða verður hann með 3-5-2 þar sem Paletta, Carra og Agger yrðu í vörninni og Guthrie jafnvel í liðinu?
Hérna eru tvær útgáfur af byrjunarliðum sem kæmu til greina: - 4-4-2
Dudek
Peltier - Paletta - Carragher - Riise
Guthrie - Luis Garcia - Alonso - Pennant
Bellamy - Crouch
3-5-2:
Dudek
Paletta - Carragher - Agger
Pennant - Guthrie - Luis Garcia - Alonso - Riise
Bellamy - Crouch
Soldið easy way out hjá mér að stilla bara upp tveimur liðum, viðurkenni það
Mark: Það er staðfest að Dudek byrjar…
Miðverðir: Carra veitir ekki af hvíldinni, en auðvitað þurfa Riise og Agger líka að hvílast. Ég gæti trúað þvi að Paletta komi inn, ég vona það. Er hrifinn af þessum strák og vil sjá hann spila aðeins meira. Spurningin er hvort Rafa treysti þessum ungu piltum fyrir því að vera einum í byrjunarliðinu í 4-4-2, Agger og Paletta, held ekki og því nokkuð öryggt að Carra spili. Allir þrír gætu svo verið inn á í 3-5-2 kerfinu.
Bakverðir: Finnan er hvíldur og Peltier gæti því komið inn. Væri gaman að sjá hann. Riise heldur svo sinni stöðu. Norðmaðurinn gæti verið Wing Back í hinu kerfinu, þá gæti Pennant eða Guthrie verið Wing Back hinumegin… Veit ekki hvort Peltier sé maðurinn í þá stöðu, þekki hann bara ekki það vel. Anderson er annar kostur líka.
Miðjan: Xabi er pottþétt í liðinu, spurningin er hver verður með honum. Ég aðhyllist Luis Garcia sem fengi þá nokkuð frjálst hlutverk fram á við. í 3-5-2 kæmi þá aukamaður á miðjuna, sem gæti verið Guthrie eða Pennant.
Kantarnir: Pennant hlýtur að byrja inn á. Hann verður að fá nokkra leiki til að pumpa upp sjálfstraustið. Hann hefur hæfileikana, á eftir að sýna okkur þá, en með sjálfstrausti er ég viss um að það komi. Hef fulla trú á honum. Hinn kanturinn? Danny Guthrie? Mér finnst það líklegra en ég væri meira en lítið til í að sjá Paul Anderson. Hann hefur hrifið mig mikið með frábærum leikjum með varaliðinu. Kantmennirnir gætu því skipt á milli í 4-4-2 en Riise væri Wing Back í 3-5-2.
Framherjar: Crouchy hefur verið sjóðheitur í Meistaradeildinni og fékk frí um helgina. Bellamy er heitur og heldur því sæti sínu. Ég spái því að Kuyt verði hvíldur alveg og Fowler komi inn á…
En hvað veit ég?! Carra gæti allt eins verið á miðjunni og Garcia á kantinum ásamt Pennant. Kannski byrja bæði Guthrie og Anderson…. úff, ég bara hreinlega veit það ekki!
Mín spá: Ég held að þetta verði erfiður leikur. Gala eru góðir á heimavelli en eru á móti með ekkert sérstakt lið. Ég ætla að spá þessum leik 1-1 jafntefli, þeir komast yfir en Crouchy jafnar.
Þar hafið þið það! Hvað segið þið annars? 4-4-2? 3-5-2? Paul Anderson? Fowler? Carra á miðjunni? Þegar stórt er spurt….
YNWA