24. nóvember, 2006
Jæja, Sýn hafa unnið sýningarréttinn að enska boltanum á næsta tímabili. Ofurbloggarinn Steingrímur Sævarr skúbbaði þær fréttir í dag.
Hvernig lýst mönnum á þetta?
Í dag er ég að borga 4.790 fyrir Sýn og einhvern rúman tvö þúsund kall fyrir Skjá Sport. Semsagt, nærri því 7.000 krónur fyrir beisiklí Meistaradeildina, Barcelona og enska boltann, því ég horfi á lítið annað á þessum stöðvum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig verðið á Sýn breytist við þetta, því ekki lækkuðu þeir verðið mikið (ef það var eitthvað) þegar þeir misstu enska boltann.
Nú veit ég ekki til þess að Sýn sé að missa neitt af sínum stóru atriðum þegar að enski boltinn kemur inn. Held örugglega að þeir séu með spænska boltann og Meistaradeildina tryggða næstu ár. Þannig að spurningin er hvernig í ósköpunum þeir ætla að rukka fyrir þetta. Ætla þeir að rukka sér fyrir enska boltann, eða ætla þeir að rukka 7.000 krónur fyrir áskriftina? Það væri ótrúlega hátt gjald.
Hins vegar hafa Sýnar menn staðið sig frábærlega í atburðum einsog HM og Meistaradeildinni (þótt við séum oft ósáttir við lýsendurna) og það er vonandi að þeir geri álíka vel fyrir enska boltann.