beach
« Brokkolí | Aðalsíða | Crouch lofar 20 mörkum. »

23. nóvember, 2006
Skoðanaskipti

Þessi áminning er skrifuð af gefnu tilefni og er ætluð ykkur sem lesið þessa síðu jafnt og okkur sem skrifum á hana. Með öðrum orðum, öllum sem taka þátt í umræðum á þessari síðu.

Þegar við Einar Örn stofnuðum þessa síðu var það í einföldum tilgangi: að fá vettvang þar sem við gætum viðrað skoðanir okkar á málefnum Liverpool án þess að vera ritskoðaðir, og að gera öðrum kleift að gera það sama. Þetta gildir ennþá í dag. Við erum ekki einu sinni alltaf sammála hvor öðrum, hvað þá þeim Agga, Hjalta og Sigursteini sem skrifa einnig á þessa síðu. Einnig erum við oft ósammála þeim sem skrifa ummæli og þá notum við tækifærið og rökræðum málin.

Það hefur gerst æ oftar síðustu vikurnar að menn taka því illa þótt við séum þeim ósammála. Endilega reynið að gleyma því að við stjórnum þessari síðu, það skiptir engu máli í ummælunum. Segjum t.d. að ég skrifi leikskýrslu og svo fari af stað umræður. Ef ég tjái mig í umræðunum í kjölfar leikskýrslunnar er ég ekkert að gera það úr einhverjum fílabeinsturni - ég er ekki rétthærri en þið, mín skoðun er ekkert merkilegri, en ég má viðra hana fyrir því eins og aðrir og ég áskil mér rétt til að vera ósammála ykkur hinum rétt eins og þið megið vera ósammála mér. Þetta er það sem umræðuþráðurinn gengur út á og það er hið fínasta mál.

Af hverju taka menn því þá persónulega ef að einn eða fleiri af umsjónarmönnum þessarar síðu “voga sér” að vera ósammála? Ef þú sem lest þetta skrifar ummæli við færslu á þessari síðu og ég skrifa svo svar við þeim ummælum þar sem ég segist vera ósammála þér, þá er ég ekki að meina að þú sért ömurlegur hálfviti sem þurfi að láta þessa síðu vera. Ég meina bara að ég er ósammála þér um þetta ákveðna málefni. Það þýðir ekki að ég sé að reka þig í burtu, það þýðir ekki að þú megir ekki halda áfram að viðra þína skoðun (og ég mína) … það þýðir einfaldlega að ég er ósammála. Ég má alveg vera ósammála.

Við hér á síðunni höfum hingað til haldið okkur við aðeins eina reglu þegar kemur að því að ritskoða ummæli hérna inni: við tökum út þau ummæli sem eru á einhvern hátt ærumeiðandi og/eða innihalda skítkast. Ef þú skrifar ummæli og segir að Rafa Benítez sé handónýtur þjálfari sem hafi ekkert gott gert fyrir Liverpool ritskoðum við þig ekki, því þetta er þín skoðun og þú átt rétt á henni. En ef þú skrifar að Rafa Benítez sé feitur, heimskur spanjóli sem ætti að drulla sér aftur til síns heima hendum við ummælum þínum út, því þau eru ekkert annað en árás á persónu mannsins.

Ég hef hins vegar undanfarið velt því fyrir mér hvort við þurfum ekki að taka upp aðra reglu fyrir ritskoðun: að henda út öllum ummælum við tiltekna færslu sem varða ekki beint málefni færslunnar. Það hefur nefnilega borið mikið á því síðustu vikurnar, í kjölfar slæms gengis liðsins í Úrvalsdeildinni ensku, að það virðist sama um hvað við pennarnir skrifum færslur, alltaf endar umræðan á því að ræða það hversu lélegir leikmenn liðsins eru og hvað þarf að laga.

Gott dæmi um þetta er færslan frá því fyrr í morgun þar sem Einar Örn sagði frá því að Liverpool væru við það að tryggja sér þjónustu 17-ára argentínsks vinstri bakvarðar. Strax í fyrstu ummælum við þá færslu skrifaði Benni Jón eina setningu um að það væri jákvætt að kaupa unga stráka, og svo tvær langar málsgreinar í kjölfarið þar sem hann fjallaði um það hvaða fimm leikmenn Liverpool þyrftu að selja eða henda út fyrir betri menn. Sem sagt, á mettíma var möguleg umræða um argentínskt ungstirni dauð og menn aftur farnir að ræða það að liðið hafi tapað fimm leikjum á útivelli í vetur og sé ekki nógu gott.

Þetta er vissulega óþolandi fyrir okkur sem skrifum hérna inn. Við erum ekki fréttasíða, við setjum svona færslur inn til að fá viðbrögð við færslunum og til að geta rætt hlutina við aðra Púllara. En í stað þess að geta haldið sig við umfjöllunarefni færslunnar fara menn ítrekað út fyrir efnið og ræða bara það sem þeir vilja. Til hvers erum við þá að skrifa inn færslur, ef enginn vill ræða neitt annað en það að Crouch sé enginn Thierry Henry? Eigum við ekki bara að minnka skrifin hér inn og skrifa bara nýja færslu þegar liðið tapar leik, úr því að það virðist vera það eina sem menn vilja ræða?

Á endanum hef ég þó þá skoðun að það sé ekki rétt hjá okkur að fara að ritskoða öll ummæli sem ekki varða beint efni gefinnar færslu. Bæði af því að slík ritskoðun væri allt of tímafrek fyrir okkur umsjónarmennina og myndi fæla væntanlega ummælaskrifara frá þessari síðu okkar - sem er það síðasta sem við viljum gera, við viljum fá ykkar álit - og eins af því að þá fyrst myndi andúðin í garð okkar umsjónarmannanna fara upp úr öllu valdi. Þannig að ég tel það ekki rétt.

Við ætlum ekki að ritskoða ykkur, en þess í stað langar mig að biðja ykkur öll, sem lesið þessa síðu og skrifið af og til ummæli hérna inn, að sýna okkur þá virðingu að hafa eftirfarandi í heiðri:

Þegar þið skrifið ummæli, gætuð þið þá vinsamlegast haldið ykkur við umfjöllunarefni færslunnar sem þið eruð að skrifa ummæli við?

Ef þið viljið ræða lélegt gengi liðsins, gerið það þá í færslunni fyrir síðasta tapleik, í stað þess að gera það í færslunni fyrir sigurleik í Meistaradeildinni þar sem liðið fagnaði sigri í sínum riðli með leik til góða og setti stigamet í riðlakeppninni. Ef þið viljið ræða ömurleika Peter Crouch, gerið það þá í síðustu færslu sem var skrifuð um hann eða framherja liðsins, í stað þess að gera það í færslu sem fjallar um 17-ára vinstri bakvörð frá Argentínu sem er að koma til liðsins.

Er þetta til of mikils ætlast? Ég vona ekki.

Takk fyrir að lesa síðuna,
Kristján Atli

e.s.
Ég tók ummæli Benna Jóns við færslu Einars frá því í morgun viljandi sem dæmi, aðallega af því að ég veit að hann getur höndlað að vera gerður að dæmi. Benni er einn af fáum ummælurum á þessari síðu sem ég þekki persónulega og því þykir mér miður að hann hafi tekið svörum Einars persónulega. Benni hefur skrifað á þessa síðu í fjarveru okkar og staðið sig vel, og er með málefnalegri pennum sem skrifa hérna inn. Innihald ummæla hans í morgun voru ekki vandamálið, heldur það að hann “stal” umræðunni um argentínskt ungstirni og sneri henni uppí umræðu um þá leikmenn aðalliðsins sem honum finnst ekki nógu góðir.

Benni, ef þú lest þetta þá býð ég þér í einn gylltan næst þegar ég á leið á Players. :-)

.: Kristján Atli uppfærði kl. 22:46 | 1139 Orð | Flokkur: Almennt
Ummæli (20)

Heyr heyr :-)

Hjalti sendi inn - 23.11.06 23:26 - (Ummæli #1)

Veistu það Kristján, að ég get alveg af flestu leiti tekið undir þetta hjá þér. Ég er búinn að lesa þessa síðu frá upphafi og kem hérna inn á hverjum degi, hún er mjög framarlega í netrúntinum hjá manni sem maður tekur nokkum sinnum á dag :-)

En það sem mér fannst verst í gær var viðbrögðin hjá Einari. Ég skal alveg viðurkenna að ég hefði nú kannski átt að tala meira um þennan Argentínumann(sem ég veit nú samt ekkert um) og jafnvel setja þessar kaup/sölu hugleiðingar mínar í aðra færslu, en þegar ég byrjaði að kommenta á færsluna vatt þetta uppá sig. Við kaupum vinstri bakvörð --- við þyrftum nú að styrkja byrjunarliðið --- hvernig getum við styrkt byrjunarliðið. Allur pistillinn var mjög málefnanlegur, ekki drullað á einn eða neinn, enda ekki beint minn stíll, og ég útskýrði mál mitt ágætlega. Þessar kauphugleiðinegar komu sem sagt í beinu framhaldi af kaupum okkar á þessum Argentínumanni. Þessar hugleiðingar mínar eru ekkert eitthvað sem urðu til eftir PSV leikinn(sem btw mér fannst ekki mjög vel spilaður af okkar hálfu þó að auðvitað var ég ánægður með sigurinn). Þetta er eitthvað sem ég er búinn að vera hugsa undanfarið.

Samt vogar Einar sér að stimpla mig sem einhvern bölsýnismann, sem ég held nú að hann viti alveg að ég er ekki, og segir óþolandi að sjá svona skrif. Þú talar um að menn taki því persónulega þegar þið svarið, það er alls ekkert málið í þessu tilfelli. Ef Einar hefi einfaldlega svarað mér málefnanlega, sagt eitthvað stutt um þessar hugleiðingar mínar og beðið mig síðan að halda mig við ramma færslunar, þá hefði þetta ekki verið neitt mál. Þess í stað líkir hann skrifum mínum við brokkolí og ofanálag skrifar nýja færslu brokkolí það til að gera örugglega nógu lítið úr skrifum mínum...þrátt fyrir að ég hafi nú alltaf verið málefnanlegur hérna og þessi pistill minn ekkert annað en kaup/sölu hugleiðinegar í beinu framhaldi af kaupunum á þessum Argentínumanni.

En þetta er nú svo sem ekkert stórmál. Ég verð nú seint talinn langrækinn þannig að þetta er bara "water under the bridge" í mínum huga. Ég er nú bara samt þannig gerður að ef ég skynja það að menn vilja mig ekki nálægt sér(skrif mín í þessu tilfelli) þá einfaldlega nenni ég ekkert að púkka uppá þá. Ef til vill var Einar aðeins of bráður, og ég get mér nú þess til að það sé málið í þessu tilfelli, og er það ekkert mál, við gerum það öll endrum og eins.

En með bjórinn, heldurðu í alvöru að ég þyggi einhvern helvítis pitty bjór??? :-) :-) :-) ....ahh, hvern er ég að plata, bjór er bjór og auðvitað þygg ég hann :-)

Benni Jón sendi inn - 24.11.06 10:45 - (
Ummæli #12)

Þið virðist vera ofboðslega hörundsárir ef menn eru ósammála. Mismikið eftir pistlahöfundum þó.

Ég er einfaldlega ekki sammála þessu.

Málið er bara, og mér finnst ekkert vandræðalegt við það, að það er nauðsynlegt að umræðin fari ekki alltaf í sömu hjólförin. Það hefur án efa verið að hlaðast upp pirringur hjá mér varðandi þetta málefni. Mér er annt um að síðan sé skemmtileg og fjölbreytt. Það er ágætt að fá málefnalega gagnrýni, en þegar að menn eru búnir að vera málefnalegir með sama hlutinn 10 færslur í röð, þá verður það bara leiðinlegt.

Einsog ég sagði, það kann að vera að aðrir séu ósammála mér um hvað sé skemmtilegt og hvað leiðinlegt, en so be it.

Og Birgir, við erum sko alls ekki að hugsa um að hætta með þessa síðu. En ég tel að það sé nauðsynlegt að fara í smá naflaskoðun varðandi efni síðunnar öðru hvoru.

Og Benni, ég var ekki að stimpla þig eitt né neitt. Grundvallarmálið er þessi pirringur varðandi það að við getum skrifað um hvaða mál sem er, en alltaf fer umræðan í sama horf. Mér fannst einfaldlega komið nóg og ég hef heyrt það annars staðar að aðrir eru mér sammála.

Benni segir:

Samt vogar Einar sér að stimpla mig sem einhvern bölsýnismann, sem ég held nú að hann viti alveg að ég er ekki, og segir óþolandi að sjá svona skrif.

og

Þess í stað líkir hann skrifum mínum við brokkolí og ofanálag skrifar nýja færslu brokkolí það til að gera örugglega nógu lítið úr skrifum mínum

What?

Ég sagði einfaldlega þetta:

Er ekki hægt að fagna einni frétt eða einum leik án þess að fara yfir í sömu endurteknu ræðuna um vandamál liðsins?

og þegar þú talar um að ég sé að banna umræðuna þá segi ég:

Ég er bara þannig gerður að ég verð með tíð og tíma þreyttur á stanslausri neikvæðri og því þegar menn sjá alltaf glasið hálf tómt.

og

Ég get svo svarið það, ég gæti sett inn færslu, sem fjallaði um brokkolí og samt mundi umræðan fara útí gagnrýni á Jermaine Pennant.

Ég kallaði þig aldrei "bölsýnismann" og líkti skrifum þínum aldrei við brokkolí. Lestu kommentin aftur mín ef þú ert í vafa.

Einar Örn sendi inn - 24.11.06 11:19 - (Ummæli #14)

Jæja..það er best að taka aftur til við pikkið!

Ég er búinn að vera melta pistil Krisjáns um skoðanskipti. Og ég er svona beggja blands. Ég held að það sé dálítið hættulegt að leggja ummælum einhver mörk fyrir utan að gera almennar kröfur á að fólk sé siðað í skrifum sínum.

Ein af ástæðum þess að mér hefur fundist gott að skrifa hér er sú, að hér er lítið eða ekkert um sandkassaleik. Hérna takast fullorðnir menn(stórir strákar :-) ) á um fyrirbæri sem kallast Liverpool. Umræðan er 90% málefnaleg. Og þegar við viljum tjá tilfinningar okkar á litríkan hátt á prenti þá er það leyfilegt. Bæði þegar við erum á bleiku skýi yfir sigrum og eins í djúpum dal yfir slöku gengi(sem m.a.o. er abstrakt..því skoðanar manna á því hvað er slakt gengi eru svoooo mismunandi!!!).

Eins og ég sagði eftir PSV-leikinn þá getur maður verið hundfúll með spilamennsku okkar manna þrátt fyrir sigur!!!!! Og.. ætla að fara eitthvað að reyna að stjórna ummælum manna eftir leiki er ekki gott að mínu mati. Menn verða bara að fá sjá leikinn með sínum augum. Besta leiðin til að draga úr neikvæðni er að vera jákvæður sjálfur. Nákvæmlega það sem Kristján Atli hefur verið mjög duglegur við. Hann hefur fengið óverðskuldað á sig einhvern Pollýönnu stimpil fyrir vikið. En ef það er eitthvað sem maður þarf að fá á sig fyrir að vera jákvæður...so be it, eins og ég hef sagt áður. Ég er Pollýanna..og stoltur af því. Mér finnst alla jafna skemmtilegra að einblína á það jákvæða. En ég get ekki stjórnað öðrum með það!! Vonlaust. Ef einhver er í fúlu skapi þrátt fyrir að við séum komnir í 16-liða úrslit Meistardeildar þá verður hann bara að fá að vera á þeim stað. Nákvæmlega ekkert sem ég get gert til að breyta því nema kannski að halda mínu góða skapi og vonast til að eitthvað af því smitist á fúlan sampúllara. :-)

Á hinn bóginn..í sambandi við þetta með að leggja til að menn haldi sig við umræðuefnið. Þá er það leyfilegt! Leiðarahöfundum er það bara fullkomlega leyfilegt að leggja að fólki að halda sig við umræðuefnið. Reyna að fleyta umræðunni í ákveðin farveg- leyfilegt. Svo geta menn haft mismunandi skoðanir á því hvort það sé umræðunni til framdráttar eða ekki!

En hvað sem þessum pælingum líður þá hlakka ég til upphitunar færslu fyrir Man City leikinn og enn meira til leikskýrslunnar......

Áfram Liverpool og viva la Liverpool-blogg

Jón H sendi inn - 24.11.06 13:12 - (
Ummæli #17)

:-) Sælir félagar og áfram með smjörið. Pistill Kristjáns fínn þó ég sé ekki sammála honum að öllu leyti. Fyrir það fyrsta Benni Jón talaði í raun alveg í rökréttu samhengi þegar hann fór að tala um hvaða mönnum mætti henda og þar með hvernig menn þyrfti að kaupa. Hvað gat hann svo sem sagt annað til að þróa umræðuna áfram um eithhvart ungstirni (við erum búnir að sjá þau ansi mörg á Anfield) sem er auðvitað vonarpeningur en hefur örugglega hæfileika og allt. Hvað var svo sem um það að segja meira mér er spurn. Margt af því sem Kristján sagði er rétt og á við mig meðal annars. En ég verð að segja að þessi síða hefur oft bjargað geðheilsu minni eftir slæma tapleiki. Það að geta bölvað með mönnum sem maður veit að eru stuðningsmenn gegnum þykkt og þunnt er ómetanlegt. Svo þegar menn eru búnir að ausa úr sér þá geta menn rætt málin. Ef til vill eruð þið ekki beint hörundsárir pistlahöfundar en stundum takið þið andmælum og mótmælum óstinnt upp. Það er hugsanlega (ath. hugsanlega) ekki rétta aðferðin til að leiða og þróa umræðu. Vænlegri leið er (hugsanlega)að reyna að finna nýja vinkla á viðfangsefnið og leiða umræðuna þannig á nýjar og þroskavænlegri brautir. Það er mikið vandaverk og ég get alveg fyrirgefið ykkur þó það takist ekki stundum/alltaf/aldrei. Þið vinnið gott starf og þarft og elskurnar mínar farið ekki að ritskoða út frá einhverjum umræðuvinklum. Ritskoðið eins og þið hafið gert og leitist við að leiða umræður á skynsamlegar brautir. Fyrirgefið mönnum sárindi þeirra vegna skrifa ykkar og ekki síst vegna stöðu liðsins okkar sem er ansi mikið önnur en vonir allra stóðu til. Með þökkum og baráttukveðjum :-)

Sigtryggur Karlsson sendi inn - 24.11.06 20:51 - (
Ummæli #20)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·L'pool 2 - PSV 0
·Middlesboro 0 - Samansafn af aumingjum í gulum búningum 0
·Arsenal 3 - Liverpool 0
·Birmingham 0 - Liverpool 1
·L'pool 2 - Reading 0

Síðustu Ummæli

Sigtryggur Karlsson: :-) Sælir félagar og áfram með smjör ...[Skoða]
Palli G: Sælir bræður í Kristi. Ég vil bara skjót ...[Skoða]
Kiddi Geir: ég hef fylgst með þessari síðu í 2 ár og ...[Skoða]
Jón H: Jæja..það er best að taka aftur til við ...[Skoða]
Benni Jón: Í fyrsta lagi þá var pistillinn minn all ...[Skoða]
BigGun: Bæði Birgir og Biggi að skrifa inn, þess ...[Skoða]
Einar Örn: >Þið virðist vera ofboðslega hörundsárir ...[Skoða]
Jonni: Algjörlega sammála Daða. Sumir ykkar pis ...[Skoða]
Benni Jón: Veistu það Kristján, að ég get alveg af ...[Skoða]
Daði: Þessi grein er með þeim vandræðalegustu ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Sýn með enska boltann
· Manchester City á morgun!
· Crouch lofar 20 mörkum.
· Skoðanaskipti
· Brokkolí
· Argentískur unglingur á leiðinni?

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License