beach
« Argentískur unglingur á leiðinni? | Aðalsíða | Skoðanaskipti »

23. nóvember, 2006
Brokkolí

Ólíkt til dæmis George Bush eldri, þá finnst mér brokkolí gott. Ég fæ mér stundum pasta með brokkolí, gulrótum og maís. Blanda því svo saman við pesto.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 12:33 | 27 Orð | Flokkur: Almennt
Ummæli (21)

Á einhver eftir að sakna Benna Jóns? Er ekki ágætt að svona vælukjóar séu bara annars staðar. Ef menn eru að fúlheitast yfir persónulegum skoðunum og skrifum síðuskrifara þá geta þeir bara skoðað aðrar síður. Þetta er nú kosturinn við frelsið sem fylgir internetinu. En ég verð samt að viðurkenna að sá ágæti Húsvíkingur Arnar Björnsson gengur oft aðeins of langt í gagnrýni sinni á lið. Ein ástæðan gæti verið sú að sá sem gagnrýnir fótboltalið á auðveldara með að virðast hafa vit á því sem hann er að segja. Það geta allir talað um að bavkerðir Liverpool séu ekki nógu sókndjarfir og þess vegna er sóknin ekki nógu góð and so on. En staðreyndin situr eftir. Þegar Arnar Björnsson var að gagnrýna Liverpool liðið hvað mest eftir leikinn í gær í þætti Guðna og Heimis var uppi skilti þar sem á stóð að Liverpool hafði unnið alla leikina í riðlinum nema einn sem var jafntefli og hefðu einungis fengið á sig tvö mörk. Varla var hann að tala um gengi liðsins í ensku úrvalsdeildinni því miðað við umfjöllun 365 sjónvarpsmiðla á þeirri deild þá fylgjast þeir ekkert með henni. Finnst annars engum öðrum en mér furðulegt að fréttastofa Stöðvar 2 hætti að flytja fréttir af ensku deildinni eftir að enski boltinn fór á SkjáEinn? Varla er það dæmi um góða fréttamennsku að leiða hjá sér vinsælasta íþróttaefnið á íslandi bara vegna þess að eigendur fréttastofunnar misstu útsendingarréttinn? Annars ætlaði ég bara að gagnrýna vælukjóann Benna Jóns en kom í staðinn með þessa ágætu grein. Bið ykkur vel að lifa.

Jóhann sendi inn - 23.11.06 15:18 - (
Ummæli #14)

Góður, Kiddi! :-)

Já og Benni Jón, "hrokin" er rétt skrifað - hrokinn. Ef menn geta ekki glaðst eftir góðan 2-0 sigur á PSV og þurfa endilega vera pikkfastir að sjá alltaf neikvæðu hlutina þá fer fólk bara og jarmar með börnunum á www.liverpool.is Hvernig væri að dást að breiddinni og yfirveguninni sem Liverpool sýndi í gær og því að við erum komnir öruggt áfram í 16-liða úrslit í keppni bestu liða Evrópu?

Jafnvel þó gagnrýnin sé að sumu leyti uppbyggileg núna þá er neikvæðnin búin vera svo alsráðandi hér undanfarið að þetta er bara orðið to much að kvarta líka eftir örugga sigurleiki, skil stjórnendurna hér vel að vera undrandi á þessu.

Einhver voðalega flæðandi sóknarleikur er ekki eina leiðin til að spila fótbolta, ef svo er í augum manna þá farið bara og haldið með Arsenal og dúkkuspilinu þeirra. Ekki búast samt nokkurn við því að vinna Champions League.

Einhver hérna kvartaði síðan yfir því að Liverpool gæti aldrei sett í neinn ofur-gír. Aðra eins rokna vitleysu hef ég sjaldan lesið á ævinni! Eru menn strax búnir að gleyma fyrri hálfleiknum á Anfield gegn Juventus hér um árið eða úrslitaleiknum gegn AC Milan þegar við skoruðum 3 mörk á korteri gegn einni bestu vörn heims?! Það er bara staðreynd að þegar Liverpool setur í 7.gír er EKKERT lið í heiminum sem getur stöðvað okkur. Þökk sé áhorfendum og hefðinni höfum við gír sem enginn annar hefur.

Munið síðan að þetta er bara fótbolti. Áhugamál. :-)

p.s. Brokkóli er alveg ágætt sé það rétt matreitt!

Arnar sendi inn - 23.11.06 15:26 - (
Ummæli #15)

Þá er það á hreinu, það má ekki koma með uppbyggilega gangrýni og tillögur að bætu liði á þessa síðu. Hrokin og vanvirðingin í þessari færslu, miðað við orð þín um brokkolí í kommentum í morgun, er ótrúlegur.

Held ég taki mér bara góða pásu frá þessari síðu núna.

Æji, Jesús Kristur, Benni. Voðalega ertu viðkvæmur.

Það er alltaf sama sagan alltaf þegar ég eða Kristján skjótum á lesendur þessarar síðu þá sannfærast þeir um að við séum að banna mönnum að koma með ákveðnar skoðanir. Það er fráleitt. Við bönnum afskaplega fátt og tökum nánast aldrei út athugasemdir nema þá að þær séu í ætt við þær sem "Mr. Daglish" setti inn eftir Boro leikinn. Þeir sem lásu þær ættu að skilja okkur.

Ég var ekki að segja að gagnrýni þín Benni væri ekki málefnaleg. Punktur minn er bara sá að eftir Istanbúl þá hefði ég getað komið með málefnalega gagnrýni á 20 hluti við leik liðsins. En stundum langar manni bara að njóta sigranna. Það er ekki oft sem við sigrum í riðli okkar í Meistaradeildinni - og að mínu mati eru þau augnablik ástæður til að fagna.

Ef menn vilja gagnrýna leikmenn, þá megar þeir gera það hina 6 daga vikunnar, en megum við ekki sleppa sömu gömlu lummunum um Crouch og Pennant og Riise þegar við náum svona glæsilegum árangri?

Þessi punktur hjá Arnari er góður og lýsir mínu viðhorfi ágætlega:

Jafnvel þó gagnrýnin sé að sumu leyti uppbyggileg núna þá er neikvæðnin búin vera svo alsráðandi hér undanfarið að þetta er bara orðið too much að kvarta líka eftir örugga sigurleiki, skil stjórnendurna hér vel að vera undrandi á þessu.

Það er nefnielga ansi frústrerandi oft fyrir okkur stjórnendur þegar við reynum að skrifa um nýja hluti til að skapa umræðu um þá ákveðnu hluti (einsog ég þegar ég var að fjalla um Fréttablaðið í síðustu viku eða um argentíska leikmanninn í morgun), en svo fer umræðan alltaf í sama pakkann einsog menn setji bara komment við nýjustu færsluna það sem þeir voru að hugsa við fyrri færslur.

En það er nákvæmlega engin ástæða fyrir fullorðinn mann einsog þig að "taka þér pásu" frá þessari síðu. Ef þú þolir ekki að við svörum fyrir okkur og gerum grín að þessum bölmóð (þú tekur grínið mitt sem "hroka og vanvirðingu", come on!), þá er svo sem lítill tilgangur í því að hanga hérna.

En ef þú vilt koma áfram með gagnrýni og þolir að við "stjórnendur" skjótum tilbaka, þá ertu ávallt velkominn. Þú hefur nú sjálfur skrifað fyrir þessa síðu og ummælum þínum hefur verið vel tekið hingað til.

Einar Örn sendi inn - 23.11.06 16:01 - (Ummæli #18)

Ég er virkilega ánægður með þessa síðu, mér finnst umsjónarmennirnir standa sig með prýði og ég er vini mínum eilíflega þakklátur fyrir að benda mér á hana snemma árs 2005 (minnir mig). Ég myndi vilja sjá þessa síðu bekennda (lesist: viðurkennda) af t.d. íþróttafréttamönnum sjónvarpsstöðvanna íslensku vegna þess að hér hafa ekki feilfréttir eða lélegar fréttir verið að koma. Ef þú ert sportlýsandi og ert að fara að horfa á leik með Liverpool ... þá er þetta kjörinn vettvangur til upphitunar. Sama mætti segja eflaust um önnur lið, en ég stórefast um að aðdáendur annarra enskra liða eigi sér jafn frábæran grundvöll eins og þessa bloggsíðu.

Neikvæðnin kemur af slæmu gengi. Maður er jú kannski eins og hin versta mella, að maður kvartar yfir lélegu gengi og er ekki hrósa nógu mikið þegar vel gengur. En ég hef alltaf skrifað samkvæmt minni sannfæringu hér, og kem til með að halda því áfram.

Mér finnst ofnbakað broccoli í osti alveg ótrúlega gott!

Kiddi er með frábært comment "gleði er svo 2005" ... og ég skil punktinn fyllilega hjá honum.

Ég skil líka umsjónarmenn síðunnar, að það geti verið þreytandi að umræðan snúist svona mikið um sama hlutinn. Ég virði alla pistla sem eru skrifaðir hér og auðvitað umsjónarmanna líka. Þeir eiga heiður skilið, og sem betur fer er ég ekki alltaf sammála þeim. En þegar ég er sammála þeim, þá læt ég það í ljós líka.

Allir sameinumst við í "ást" og áhuga okkar á stórliðinu Liverpool. Ég man ekki hver það var (Einar?) sem benti á það, að ef við værum þó stuðningsmenn liða eins og Middlesborough þá værum við orðin geðveik á spjallborðinu yfir gengi liðsins.

Kiddi "gleði er so 2005" ... frábært!

Og í lokin, mín skoðun á íþróttafréttamönnum: - Ég vil hafa þá æsta, ég vil hafa líf í þessu. Ég hraunaði einu sinni yfir Hörð Magnússon þegar hann missti sig yfir leik Portúgala og S-Kóreu í HM-2002 ("helvítis dómarinn er búinn að eyðileggja leikinn..." eða eitthvað í þá áttina...), en eftir á að hyggja þá hef ég mest gaman af svona íþróttafréttamönnum.

Mér finnst persónulega Arnar hafa mjög gott vit á fótbolta og hann lætur jú sínar skoðanir í ljós. Mér fannst hann gera leiknum í Istanbul góð skil. Hann og Logi saman eru góðir finnst mér. En mitt uppáhald er Hörður, því hann missir sig mest :-) Gaupi fer mest í taugarnar á mér, og hann mætti fjúka fyrir mér. Hann kann bara ekki að lýsa leik almennilega og orðaforðinn hans er afskaplega takmarkaður.

Fyrst orginal færslan var um broccoli, þá fer maður svolítið úr einu í annað... :-)

Bottom-line: Liverpool er uppáhaldsliðið mitt - það mun aldrei breytast. Þessi síða ER besta bloggsíðan um Liverpool og almenn fréttasíða um félagið sem ég held upp á. Ég er ekki alltaf sammála skrifum umsjónarmannanna, en það kennir manni bara annað sjónarhorn sem er nauðsynlegt!

Bið að heilsa ykkur frá Akureyri, áfram Liverpool!!!

Doddi sendi inn - 23.11.06 20:54 - (Ummæli #21)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·L'pool 2 - PSV 0
·Middlesboro 0 - Samansafn af aumingjum í gulum búningum 0
·Arsenal 3 - Liverpool 0
·Birmingham 0 - Liverpool 1
·L'pool 2 - Reading 0

Síðustu Ummæli

Doddi: Ég er virkilega ánægður með þessa síðu, ...[Skoða]
Reykdal: Vá, ég hef oft haft gaman að lesa commen ...[Skoða]
Einar Örn: Varðandi hin kommentin: Kiddi, þetta va ...[Skoða]
Einar Örn: >Þá er það á hreinu, það má ekki koma me ...[Skoða]
Julian Dicks hetja: Voðalegur dramadrottniga fílíngur er þet ...[Skoða]
Einar: Það eru bara allir i stuði. ...[Skoða]
Arnar: Góður, Kiddi! :-) Já og Benni Jón, ...[Skoða]
Jóhann: Á einhver eftir að sakna Benna Jóns? Er ...[Skoða]
Garon: Það er klárt mál að ef stjórnendur ætla ...[Skoða]
villi sveins: Benni Jón ef þú mættir ekki koma með gag ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Skoðanaskipti
· Brokkolí
· Argentískur unglingur á leiðinni?
· L'pool 2 - PSV 0
· Byrjunarliðið gegn PSV!
· PSV á morgun

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License