beach
« L'pool 2 - PSV 0 | Aðalsíða | Brokkolí »

23. nóvember, 2006
Argentískur unglingur á leiðinni?

Samkvæmt Chris Bascombe hjá Liverpool Echo, þá eru Liverpool við það að kaupa hinn 17 ára vinstri bakvörð Emiliano Insúa frá Boca Juniors.

Insúa kom til Liverpool í gær og horfði víst á PSV leikinn í gærkvöldi. Bascombe talar um að hann muni skrifa undir lánsamning út tímabilið og skrifa undir samning næsta sumar og sé kaupverðið um 1 milljón punda.

Bascombe segir að Insúa hafi verið hluti af U-20 liði Argentínumanna, sem urðu heimsmeistarar með leikmenn einsog Messi og Paletta. Ég er samt ekki viss um að þetta sé rétt hjá honum þar sem að Insúa er ekki á lista yfir leikmenn þess liðs - en hins vegar er líklegra að hann sé núna í argentíska ungmennaliðinu. Hann er jú þremur árum yngri en Paletta og tveimur árum yngri en Messi. (uppfært EÖE: Ég lagði vitlausan skilning í orðin hans Bascombe - hann talar ekki beint um að hann hafi verið í sigurliðinu, heldur einungis að hann sé núna í U-20 liðinu).

Samkvæmt Echo hafa Barcelona, Real Madrid, Chelsea og Manu öll fylgst með Insúa. Og það sem meira er, þá telja menn að Insúa gæti hugsanlega gert tilkall til sætis í aðalliðinu á þessu tímabili!

Þetta hljómar allavegana verulega spennandi.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 10:14 | 202 Orð | Flokkur: Leikmannakaup
Ummæli (14)

Mér finnst frábært að kaupa unga og efnilega menn, og enn betra að kaupa þessa s-ameríku stráka, það er eitthvað sem Liverpool hefur ekki verið að gera undanfarin misseri.

En ég vil líka fara sjá kaup sem bæta byrjunarliðið. Ég er á því að okkur vanti leikmenn í 5 stöður, mis mikið þó.

Mér finnst okkur vanta tvo bakverði(kanski þessi argentínumaður sé annar þeirra???), bæði í hægri og vinstri. Einnig finnst mér okkur vanta tvo kantmenn, einn á hvorn kant(er þó til í að gefa Gonzalez meiri tíma þarna enda gæjinn ennþá rétt að fóta sig). Þá er ég ekki að tala um menn sem koma til að veita Riise eða Finnan samkeppni um stöðu í liðinu, ég er að tala um menn sem einfaldlega eru af hærra leveli og þeir verði back-up. Að endingu vil ég sjá heimsklassa sóknarmann. Ég er mjög ánægður með kaupin á Kuyt, en mér finnst hvorki Bellamy né Crouch vera týpan í að búa til deadly partnership með honum. Næsta sumar myndi ég vilja jafnvel selja Crouch(og nei, mér líkar alls ekki illa við Crouch, þvert á móti hef ég stutt hann og varið alveg síðan hann kom) og kaupa einhvern af hærra kaliberi. Hef svo sem engan ákveðin í huga, en ég efa ekki að Rafa og co eru með alla anga úti að skoða þessi mál. Bellamy gæti síðan verið back-up ásamt einhverjum öðrum.

Ég geri mér líka fulla grein fyrir því að svona menn liggja ekkert eins og hráviður útum allt og svona menn muni líklega kosta peninga. En það breytir því ekki að mér finnst við þurfa að bæta þessar stöðður.

Benni Jón sendi inn - 23.11.06 10:58 - (
Ummæli #1)

Næsta sumar myndi ég vilja jafnvel selja Crouch

Má ég leyfa mér að benda á þennan lista.

Ef það er ekki dæmi um "deadly" framherja að skora mark í Meistaradeildinni á 78 mínútna fresti einsog Peter Crouch gerir, þá skal ég hundur heita.

Einar Örn sendi inn - 23.11.06 11:06 - (Ummæli #2)

Nei strákar, eruð þið ekki að grínast? Eru menn núna að hrúgast hérna inn og kommenta í neikvæðum tón hægri vinstri? Ef maður má ekki koma með sínar skoðanir og hugmyndir að bættu liði, jafnvel þó maður útskýri þær og rökstyðji, þá er nú fokið í flest. Er sem sagt slæmt þegar maður er með hugmyndir sem maður telur til batnaðar? Má maður bara lofsama liðið, alveg sama hvernig það spilar eða hvernig gengur?

Ég skal alveg taka undir "gagnrýnina" sem stundum á sér stað eftir tapleiki og menn einfaldlega hella út skálum reiði sinnar, svoleiðis skrif eru mjög döpur af mínu mati. En ef það má ekki tala um hvernig hægt er að bæta liðið inná þessari síðu, og koma með hugmyndir að bættu liði, þá er þetta nú ekki mjög spennandi.

Það eru tveir menn búnir að gagnrýna liðið eftir leikinn í gær, og báðir gerðu það á málefnanlegan hátt. Ég veit ekki með hinn, en ég hef nú ekki lagt það í vana minn að drulla yfir allt og alla í liðinu hérna inni, en samt er vælt yfir manni. Er ekki verið að setja mann í dilk með aðeins vitlausum hóp? Get ekki séð að við séum í hóp með þeim sem drulla yfir allt og alla.

Einar heldur, í það minnsta reynir að láta það líta þannig út, að ég sé að drulla yfir Crouch, þrátt fyrir að hafa tekið það skýrt fram að ég hafi alltaf stutt hann, jafnvel í markaþurrðinni í fyrra. Einnig sagði ég aldrei að það ætti að selja Crouch, einungis sló því fram sem hugmynd. Ástæða þess er sú að ég tel okkur fá meiri pening fyrir hann en t.d. Bellamy og ég held líka að Bellamy sé góðir í að koma innná og brjóta upp leiki með hraða sínum.

En endilega látið vita ef það má bara lofsama hlutina hérna, þá mun ég einfaldlega ekki varpa fram svona hugmyndum aftur.

Benni Jón sendi inn - 23.11.06 13:45 - (
Ummæli #12)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·L'pool 2 - PSV 0
·Middlesboro 0 - Samansafn af aumingjum í gulum búningum 0
·Arsenal 3 - Liverpool 0
·Birmingham 0 - Liverpool 1
·L'pool 2 - Reading 0

Síðustu Ummæli

Doddi: Þetta hljómar virkilega spennandi!!! Hla ...[Skoða]
evs: Mér hefur fundist mjög gott að fá að blá ...[Skoða]
Benni Jón: Nei strákar, eruð þið ekki að grínast? E ...[Skoða]
Kristján Atli: Mummi sagði: >"Einar, þetta er svosem e ...[Skoða]
Mummi: Einar, þetta er svosem ekkert einsdæmi a ...[Skoða]
Benni Jón: Ég veit ekki hvort þú last allt svarið, ...[Skoða]
Arnar M.: þvílíkur leikur í gær, og þvílik mörk.. ...[Skoða]
Einar Örn: Jú, var ég að banna þér það? Ég er ba ...[Skoða]
Benni Jón: Hvernig er það Einar, má ekki setja fram ...[Skoða]
Benni Jón: Jájá, þú mátt alveg benda mér á hann :wi ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Brokkolí
· Argentískur unglingur á leiðinni?
· L'pool 2 - PSV 0
· Byrjunarliðið gegn PSV!
· PSV á morgun
· Speedy

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License