12. nóvember, 2006
Klárum formsatriðin fyrst. Liverpool tapaði í dag á útivelli gegn Arsenal 3-0. Flamini, Toure og Gallas skoruðu mörkin. Tveir miðverðir skoruðu mörk gegn Liverpool í dag. Liðið var svona:
Reina
Finnan - Carragher - Hyypiä - Riise
Gerrard - Alonso - Zenden - Gonzalez
Crouch - Kuyt
Stundum eftir tapleiki get ég ekki beðið eftir því að hella úr skálum reiði minnar á þessari síðu. Gott dæmi um það er t.d. eftir tapleikinn gegn Man U.
En núna bara nenni ég þessu ekki. Við höfum núna tapað 5 útileikjum í ensku deildinni og markatalan er 0-11. Það er svo grátlegt að ég nenni ekki að tala um þetta. Ég ætla þess í stað að gera þetta gagnvirka leikskýrslu, því ég er viss um að þið eruð æst í að hella úr skálum reiði ykkar. Ég skal telja upp það jákvæða við leikinn og þið það neikvæða:
Jákvætt:
- Við höfum núna klárað alla erfiðustu útileikina og það í byrjun nóvember.
- Rangstöðumörkin okkar komu bæði uppúr verulega skemmtilegum og vel útfærðum sóknum.
Fleira jákvætt get ég ekki talið upp. Takk fyrir og góða nótt.