beach
« Liverpool gegn Arsenal í deildarbikarnum | Aðalsíða | Byrjunarliðið komið gegn Arsenal. »

11. nóvember, 2006
Arsenal á morgun!

Á morgun heimsækja okkar menn hinn glænýja Emirates Stadium í London í fyrsta skipti og mæta heimamönnum í Arsenal í Úrvalsdeildinni. Það er athyglisvert að bera saman gengi liðanna í undanförnum leikjum og stöðu þeirra í deildinni fyrir þennan leik því margt er líkt með þeim. Í upphafi móts hikstuðu bæði lið en á meðan okkar menn töpuðu fyrir Chelsea á Stamford Bridge í september unnu Arsenal óvæntan útisigur á manchester united og þeirra tímabil fór á fullt fyrir vikið. Okkar menn töpuðu fleiri leikjum á meðan Arsenal-liðið fór á kostum og vann fimm leiki í röð. Síðan þá hafa þeir hins vegar ekki unnið leik og þar á meðal gert þrjú jafntefli í röð í deildinni, og svo töpuðu þeir um síðustu helgi gegn West Ham þar sem Arsene Wenger og Alan Pardew slógust eins og frægt er orðið. Á sama tíma og þeirra tímabil snarstöðvaðist eftir gott gengi fór okkar tímabil í gang eftir slæman septembermánuð og eru okkar menn nú búnir að vinna fimm leiki í röð, þar af þrjá í deildinni.

Fyrir þennan leik eru okkar menn í áttunda sæti með sautján stig, jafnmörg og Everton sem eru að tapa í dag, en Arsenal eru í því sjötta með átján stig og leik til góða á önnur lið í kringum sig. Chelsea voru að fara í 28 stig í dag á meðan United geta farið í 31 stig á eftir. Þannig að leikur morgundagsins verður áhugaverður fyrir mjög sérstakar aðstæður: það er ekki aðeins búið að stilla öðru liðinu upp við vegg í titilbaráttunni, heldur báðum. Ef Liverpool tapa á morgun er þeirra titilbarátta endanlega úr sögunni, og í raun gildir það sama um Arsenal þótt þeir eigi leik til góða. Að missa Chelsea og United einhverjum 10-14 stigum fram úr sér er einfaldlega of mikið, bæði fyrir Liverpool og Arsenal. Þannig að á meðan bæði lið geta tæknilega séð lifað af með jafnteflið mun sigur dæma annað liðið úr leik í titilbaráttunni en veita hinu liðinu að sama skapi mikinn styrk.

Hjá okkar mönnum er það náttúrulega helst í fréttum að Momo Sissoko er frá vegna meiðsla í öxl og kemur væntanlega ekki inn fyrr en í janúar, í fyrsta lagi. Harry Kewell er þá enn meiddur og Fabio Aurelio er ekki alveg orðinn heill heilsu en aðrir eru heilir. Í fjarveru Momo finnst mér augljóst að Steven Gerrard fyrirliði komi inn á miðjuna og Luis García taki stöðu hans á kantinum, þar sem García hefur verið duglegur að skora gegn Arsenal á síðustu árum. Ég held að Rafa stilli liðinu upp svona á morgun.

Reina

Finnan - Carragher - Hyypiä - Riise

Luis García - Gerrard - Alonso - Gonzalez

Crouch - Kuyt

Bekkur: Dudek, Agger, Zenden, Pennant, Bellamy.

Persónulega myndi ég vilja sjá Agger inni frekar en Hyypiä, þar sem Arsenal er fljótasta sóknarliðið í deildinni, en ég treysti Hyypiä samt alveg þótt hægur sé og ég held að karlinn velji reynslu Finnans fram yfir öryggi og hraða Danans.

Hjá Arsenal eru einnig meiðsli, en Tomas Rosicky missir af leiknum vegna smávægilegra meiðsla, auk þess sem Freddie Ljungberg og Julio Baptista eru enn ekki orðnir heilir. Ég hef verið að lesa nokkrar Arsenal-síður og þar vilja menn meina að Wenger muni selja sig dýrt og stilla upp 4-4-2, sókndjörfu kerfi á morgun. Liðið hjá Nöllurunum gæti því litið einhvern veginn svona út:

Lehmann

Eboue - Touré - Gallas - Clichy

Hleb - Fabregas - Gilberto Silva - Van Persie

Adebayor - Henry

Bekkur: Almunia, Senderos, Flamini, Walcott, Aliadiere.


MÍN SPÁ: Í fyrsta lagi, þá vill ég segja að ef spá mín varðandi byrjunarlið gengur upp ættum við að eiga klassískan knattspyrnuleik í vændum. Bæði lið að spila mjög sókndjarft 4-4-2 leikkerfi með hraða og léttleikandi menn í öllum stöðum? Bæði lið í bráðri þörf á að hirða þrjú stig úr þessum leik til að missa toppliðin ekki of langt frá sér? Bæði lið í þeirri stöðu að mega alls ekki tapa? Arsenal-menn að koma úr mikilli jafnteflahrinu og slagsmálaleik gegn West Ham, okkar menn að koma úr fimm sigurleikjum í röð og með fullt sjálfstraust? Ég slefa við tilhugsunina … :-)

Það er samt ómögulegt að spá því hvernig þessi leikur fer. Hann gæti endað hvernig sem er, en ég ætla samt að vera bjartsýnn. Rafa hefur hingað til tapað báðum leikjum sínum á útivelli gegn Arsenal en það stóð tæpt síðast, aðeins hræðileg varnarmistök Gerrards gáfu Thierry Henry sigurmarkið á Highbury í febrúar sl. Ég held að okkar menn standi undir stóru orðunum - loksins! loksins! - á morgun og vinni 3-2 sigur í stórskemmtilegum leik þar sem okkar menn skori á undan, Arsenal komist í 2-1 og okkar menn hirði þetta svo með tveimur mörkum undir lokin. Ég vona bara svo innilega að þessi leikur standi undir öllum þeim væntingum sem maður gerir til hans, því á pappírnum er ljóst að þetta gæti orðið algjör bomba … B-O-B-A! :-)

Áfram Liverpool!

.: Kristján Atli uppfærði kl. 16:57 | 821 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (17)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Arsenal 3 - Liverpool 0
·Birmingham 0 - Liverpool 1
·L'pool 2 - Reading 0
·L'pool 3 - Bordeaux 0
·L'pool 3 - Aston Villa 1

Síðustu Ummæli

jón: Ég er nokkuð viss um að maður segir "ég ...[Skoða]
Pétur: Byrjunarliðið komið, Garcia ekki í hóp: ...[Skoða]
Garon: Xabi Alonso telur að Englandsmeistaratit ...[Skoða]
Kiddi Geir: "ég held að karlinn velji reynslu Fin ...[Skoða]
Baros: Leiðinlegt að vera svona svartsýnn. Spá ...[Skoða]
Baros: Óttast mjög að Zenden komi til með að fy ...[Skoða]
trausti: Vonandi mætum við þeim með gömlu houllie ...[Skoða]
Kristján Atli: Hálfviti og vitleysingur, eins og venjul ...[Skoða]
Pétur: Í fyrsta lagi þá vann Arsenal sex ...[Skoða]
Jón H: Úffff....leikur sem hægt er að sökkva tö ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Arsenal 3 - Liverpool 0
· Byrjunarliðið komið gegn Arsenal.
· Arsenal á morgun!
· Liverpool gegn Arsenal í deildarbikarnum
· Rafa Benitez og íslenskir fjölmiðlar
· Uppfærsla

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License