09. nóvember, 2006
Samkvæmt Echo þá verður Momo Sissoko frá í allavegana mánuð og hugsanlega alveg út þetta ár.
Enn er þó ekki komið nákvæmlega út hversu alvarleg meiðslin. En þetta eru allavegana slæmar fréttir. Þá er ljóst að Gerrard og Alonso munu vera á miðjunni á næstunni og því tækifæri fyrir kantmennina einsog Pennant og Gonzalez að sanna sig enn frekar.
Uppfært (EÖE): Einsog Pétur bendir á í kommentum, þá er það ljóst að Momo verður frá í 3 mánuði þar sem hann þarf að gangast undir aðgerð. Þetta eru auðvitað verulega slæmar fréttir. Vonandi að aðgerðin gangi vel og að hann verði kominn aftur á völlinn sem fyrst.