beach
« SG | Aðalsíða | Noel White hættir í stjórninni! »

30. október, 2006
Bordeaux á morgun!

Á morgun taka okkar menn á móti franska liðinu Bordeaux á Anfield í fjórðu umferð Meistaradeildar Evrópu, og um leið þriðja heimaleik okkar í röð. Okkar menn unnu 1-0 sigur í útileiknum gegn Bordeaux fyrir tveimur vikum og eru fyrir vikið á toppi riðilsins ásamt PSV með sjö stig, á meðan Bordeaux og Galatasaray eru jöfn á botninum með eitt stig. PSV eiga heimaleik á móti Galatasaray og því verður að teljast líklegt að eftir morgundaginn verði PSV og Liverpool örugg inn í 16-liða úrslitin með tíu stig hvort, níu stigum á undan hinum tveimur liðunum. Gangi það eftir eins og fólki finnst líklegt er aðeins eftir að útkljá hvort liðið sigrar riðilinn, og þar standa okkar menn vel að vígi þar sem næsti leikur er heima á móti PSV.

Nú, eftir góða frammistöðu í leik helgarinnar gegn Aston Villa spyrja menn sig hvort að Rafa muni virkilega breyta liðinu sínu enn eitt skiptið? Í þetta sinn er sennilega engin þörf á því, svo lengi sem það eru engin meiðsli sem við vitum um, og því verður mjög spennandi að sjá hvernig liðinu verður stillt upp á morgun.

Ég ætla að spá því að Rafa geri engar breytingar fyrir annað kvöld. Ég er reyndar frekar vantrúaður á það - Rafa róterar eflaust eitthvað en mér dettur bara alls ekkert í hug hvað hann gæti gert - þannig að ég ætla að fylgja eigin sannfæringu. Það er algjör óþarfi að rótera liðinu fyrir morgundaginn, menn eru ekki það þreyttir og það skiptir máli að slípa liðið saman með toppleikmönnunum. Sumir vilja meina að liðið sem spilaði á laugardaginn sé okkar sterkasta lið í dag og ef það er eitthvað nærri sannleikanum þá er að mínu mati sjálfsagt mál að leyfa mönnum að spila eins og tvo leiki saman:

Reina

Finnan - Carragher - Hyypiä - Riise

Gerrard - Alonso - Sissoko - Luis García

Kuyt - Crouch

Bekkur: Dudek, Agger, Paletta, Warnock, Aurelio, Zenden, Pennant, Gonzalez, Fowler. Veljið sjö af níu.

MÍN SPÁ: Ég sé enga ástæðu til annars en að vera mjög bjartsýnn fyrir þennan leik. Stemningin á Anfield verður frábær, liðið getur tryggt sig óvenju snemma inn í 16-liða úrslitin, sjálfstraustið eykst frá degi hverjum með hverri góðri frammistöðunni og framherjarnir okkar þrír (sem eru tiltækir, geri ráð fyrir að Bellamy sé enn meiddur) eru allir sjóðheitir.

Ég segi 3-0 fyrir okkar mönnum og án þess að ég vilji skjóta á alla markaskorara held ég að það sé kominn tími á að Steven nokkur Gerrard þrumi eins og einni tuðru inn. :-)

Áfram Liverpool!

.: Kristján Atli uppfærði kl. 13:50 | 425 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (10)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·L'pool 3 - Aston Villa 1
·Man Utd 2 - L'pool 0 (uppfært)
·Bordeaux - Liverpool 0-1
·L'pool 1 - Blackburn 1
·Bolton 2 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

Guess Who: Tímamót!! 1. leikurinn í röð þar sem ...[Skoða]
einare: Tímamót!! 100. leikurinn í röð þar sem ...[Skoða]
Pétur: Í sterkasta liði Liverpool myndi ég hafa ...[Skoða]
Guðmundur: Góður, er samt ekki bara best að fara al ...[Skoða]
Arnar: Liðið verður nánast það sama en ég spái ...[Skoða]
Gunnar: Ég er sammála Jóni að þó svo að síðasti ...[Skoða]
Jón H: Gaman gaman.. það er svo gaman þegar nóg ...[Skoða]
Hjalti: Sammála með byrjunarliðið, hann getur ek ...[Skoða]
Hössi: Algerlega sammála Kristjáni Atla. Áfra ...[Skoða]
Petur P: Eru ekki Gerrard og Sissoko eitthvað tæp ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Noel White hættir í stjórninni!
· Bordeaux á morgun!
· SG
· L'pool 3 - Aston Villa 1
· Liðið gegn Villa komið!
· Ófyrirgefanlegt

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License