29. október, 2006
Eruði ekki að fokking grínast í mér? Ég nenni ekki einu sinni að eyða orðum í þetta, en hvernig í ósköpunum endar þetta sem fyrsta frétt hjá BBC?
Ég elska þetta:
Benitez also insisted he is close to his captain, despite reports that Gerrard is unhappy with his role on the right of midfield.
Það er talað um orðróm um að hann sé óhamingjusamur við að vera á hægri kantinum. Frá hverjum kemur sá orðrómur? Auðvitað bresku slúðurpressunnim, sem hefur aldrei gefið upp neinar heimildir fyrir því af hverju Gerrard ætti að vera óánægður, heldur gera þeir sér bara upp hans tilfinningar.
BBC finnst óþarfi að taka það fram að í síðustu viku kom ákveðinn maður fram og hélt því fram að Steven Gerrard væri sáttur við að spila á kantinum. Hver var sá maður, sem hélt þessu fram?
Jú, einmitt Steven Gerrard. En það er svosem óþarfi að hlusta á hann, heldur er miklu meira spennó að hundsa hans ummæli og vitna þess í stað í nafnlaust blaður í einhverjum breskum slúðurblöðum.