27. október, 2006
Á morgun taka okkar menn á móti eina taplausa liði Úrvalsdeildarinnar, Martin O’Neill og félögum í Aston Villa. Villa-liðið hefur staðið sig vonum framar í vetur, unnið flesta heimaleiki sína og gert fimm jafntefli í fimm útileikjum, þar á meðal gegn Chelsea og Arsenal á útivelli. Þeir eru í sjöunda sæti í deildinni með fimmtán stig, á meðan okkar menn eru í því ellefta með ellefu stig. Þannig að það er alveg ljóst að sigur á morgun er það eina sem gildir ætli menn sér að fara upp fyrir lið eins og einmitt Aston Villa á töflunni.
Nú, þetta Villa-lið er svo sem vel þekkt því Martin O’Neill náði nánast ekkert að bæta við hópinn í haust eftir að hann tók við. Hann fékk Didier Agathe og Stilian Petrov frá Celtic, sínu gamla liði, og þeir hafa farið beint inn í byrjunarliðið hjá Villa. Þeirra sterkasti hlekkur er vörnin sem hefur fá mörk fengið á sig í vetur (miðað við undanfarin ár) en á móti kemur að þessi vörn er ekkert of hröð þannig að það er spurning hvort menn eins og Bellamy, Pennant og Gonzalez fái að spreyta sig gegn þeim. Frammi byrja svo væntanlega þeir Angel og Milan Baros inná. Sá síðarnefndi er okkur að góðu kunnur en hann hefur ekki náð sér á strik með Villa í vetur á meðan Angel hefur verið að skora reglulega, þannig að hann hlýtur að teljast líklegri en sá tékkneski.
Hjá okkar mönnum koma væntanlega inn þeir sem voru hvíldir á miðvikudaginn; Carragher, Finnan, Hyypiä, Aurelio, Gerrard, Alonso, Gonzalez, Luis García, Bellamy og Kuyt gera örugglega allir tilkall til sætis í byrjunarliðinu en þurfa að berjast þar við menn eins og Agger, sem var víst mjög góður gegn Reading, Paletta sem skoraði í sínum fyrsta leik, Warnock, Sissoko, Pennant og Zenden sem þóttu góðir á miðjunni, Johnny Riise sem skoraði glæsimark, Peter Crouch sem er heitasti enski framherjinn í deildinni þessar vikurnar og sjálfan Robbie Fowler sem var allt í öllu hjá okkar mönnum.
Þetta er einfaldlega nóg af stæðilegum knattspyrnumönnum til að velja úr. Hvernig mun Rafa þá stilla upp í þessum leik? Það er augljóst að hann mun breyta liðinu frá leiknum gegn Reading, og verður það þá í hundraðasta sinn sem hann gerir breytingar á byrjunarliði sínu frá einum leik til annars. Þegar allur hópurinn (utan Kewell) er heill heilsu og þrýstandi á sæti í byrjunarliðinu á ég meiri séns á að finna nál í heysátu en að ná að giska rétt á byrjunarlið Rafa, en ég ætla samt að spá að hann byrji leikinn eitthvað á þessa leið:
Reina
Finnan - Carragher - Agger - Riise
Pennant - Gerrard - Alonso - Luis García
Fowler - Kuyt
Ég held að hann stilli þessu upp eitthvað á þessa leið. Agger spilaði vel gegn Reading, sem og Riise og því halda þeir báðir sæti sínu í liðinu. Framundan eru leikir við Bordeaux, Reading, Birmingham og svo Arsenal á aðeins tveimur vikum þannig að Rafa mun hvíla Sissoko og Hyypiä í þessum leik. Peter Crouch, eins mikið og mér finnst að hann ætti að vera fyrsta nafn þarna inn, verður sennilega enn og aftur settur á bekkinn eftir að hafa skorað. Fowler á svo sem skilið að halda sæti sínu í byrjunarliðinu (hann er búinn að skora tvö mörk í þremur leikjum í vetur, sem er mjög gott) og ég hef ekkert á móti Kuyt og er alltaf sáttur við að sjá hann spila, en það er einfaldlega ósanngjarnt gagnvart Crouch að lenda alltaf á bekknum. Spái því þó að það gerist á morgun.
MÍN SPÁ: Það hefur nokkrum sinnum verið bent á það hvað við upphitarar þessarar síðu erum slakir spámenn. Sem er líka allt í lagi mín vegna, enda eru þetta engin nákvæm vísindi hjá okkur. Við erum einfaldlega að deila með ykkur hvaða tilfinningu við höfum fyrir hverjum leik og ég ætla ekkert að hætta því þótt ég reynist jafnan hafa rangt fyrir mér.
Mér finnst þetta vera leikur sem við verðum að vinna en eitthvað segir mér að svo verði ekki. Villa-liðið er enn ósigrað og mun sennilega selja sig dýrt til að halda jafnteflinu, þannig að við gætum lent í veseni með að skora. Hvernig okkar menn mæta svo til leiks verður bara að koma í ljós - það er erfitt að spá fyrir um það því megnið af því liði sem skoraði fjögur mörk á miðvikudag verður ekki með á morgun og aðrir úthvíldir menn koma inn í staðinn. Það verður þó grimmt barist, svo mikið er víst.
Ég held að þetta verði frekar döpur frammistaða hjá okkar mönnum á morgun. Mikið verður reynt og menn selja sig dýrt en stundum getur kappið orðið of mikið og ég óttast að það geti orðið á morgun, að menn reyni of mikið að slá í gegn. Ég sé fyrir mér nauman 1-0 sigur en Robbie Fowler, sem veit í hvaða átt markið snýr betur en nokkur annar Englendingur, skorar markið snemma leiks og svo munu okkar menn í kjölfarið mása og blása í einhverja klukkustund en án árangurs.
Ég yrði sáttur með sigurinn og stigin, en ég er ekki sannfærður um að svo verði. Vonandi hef ég annað hvort hárrrétt fyrir mér eða rangt í því að liðið leiki miklu betur en ég á von á. Áfram Liverpool!