Iss, þetta er bara enn einn Pollýönnu pistillinn!
Róm stendur í ljósum logum og Tomkins reynir að róa lýðinn niður með fögrum fiðlutónum!
1)Staðreyndin er sú að við erum litlu nær því að vinna Englandsmeistaratitilinn nú en fyrir 3 árum.
2)Á meðan við getum ekki stækkað heimavöllinn höfum við ekki efni á öðru en halda áfram að fá meðalleikmenn eins og Pennant, Aurelio, Zenden o.fl til Liverpool á meðan hin toppliðin geta eytt 15m+ í heimsklassaleikmenn sem hægt er að treysta á yfir heilt tímabil og vinna deildir.
3)Við höfum pínu pirraðan "world cup hangover" fyrirliða sem spilar alvöruþrunginn með skeifu flesta leiki þessa dagana vegna þess að þjálfarinn spilar honum jafnvel á vinstri kanti sem fáir skilja. Fýldur maður er ekki líklegur til að ná að rífa lið uppúr lægð, hvetja og fá menn til að deyja fyrir málstaðinn.
4) Rafa hélt krísufund í síðustu viku fyrir leikinn í Frakklandi og við spilum sæmilega í Evrópu - síðan komum heim og sama andleysið heldur áfram í ensku deildinni. Það boðar slæmt þegar svona stórir krísufundir hjá fótboltaliðum skila litlu sem engu.
5)Við höfum þjálfara sem við vitum að er alger snillingur á sínu sviði en virðist bara því miður ekki ná tökum á taktinum í ensku deildinni. Það er tómt mál eins og Tomkins gerir að bera þetta saman við þegar Benitez var hjá Valencia enda vissi hann þá hvað þyrfti til að vinna spænsku deildina árið eftir. Öfugt við Wenger, Mourinho og Ferguson held ég að Rafa viti ekki alveg enn hvað þarf til að halda stöðugleika í ensku deildinni. Hvar jafnvægið á milli þess að verjast og sækja liggi í þessum hraða testósterón-bolta sem sá enski er.
Rafa hefur þó sannað það hingað til að hann er sko rétti maðurinn þegar allt virðist vera að fara til fjandans hjá Liverpool!
0-3 undir gegn Milan í Istanbul setur hann Hamann inná og allt verður grúví!
Ömurlegur árangur á útivöllum í hittífyrra og Benitez herðir vörnina svo rosalega næsta tímabil á eftir að lið verða skíthrædd við okkur aftur.
Þar sem allt virðist núna vera fara lóðrétt gjörsamlega til andskotans hjá okkur hef ég alls engar áhyggjur af næsta ári hjá Liverpool!
Rafa Benitez er "reddari" og hann mun finna hvað er að og redda okkur útúr þessari krísu með glæsibrag, hvort hann hafi það sem til þarf að í að gera Liverpool að stöðugum meisturum er svo annað mál...
Liverpool vinnur CL aftur í ár, þið lásuð það fyrst hér!