21. október, 2006
Jæja…
manchester united
á morgun. Þetta er að mínu mati næst stærsti leikurinn á tímabilinu á eftir leiknum gegn saman liði á Anfield. Þeir hafa alltaf verið liðið sem ég hef talið erkióvin númer eitt, á undan Everton, og þeir eru auðvitað á undan Chelsea þrátt fyrir að ég hati það félag líklega meira.
Það þekkja allir ríginn á milli þessara félaga sem eru ekki nema í hálftíma akstursfjarlægð frá hvort öðru. Það andar köldu á milli þessara risa í enska boltanum og ljóst er að leikurinn á morgun verður magnaður.
manchester united
hefur unnið helmingi fleiri leiki í deildinni en við, sex talsins, eru í efsta sæti átta stigum fyrir ofan Liverpool. Sigur þeirra á morgun þýðir að munurinn á liðunum eru ellefu stig sem þýðir að við getum endanlega gleymt Englandsmeistaratitlinum í ár.
Síðasti sigurleikur okkar á útivelli var á síðasta tímabili. Það var í lokaleiknum gegn Portsmouth. Við höfum tapað fyrir Chelsea, Everton og Bolton í síðustu þremur útileikjum, án þess að skora mark og nú eru 290 mínútur siðan við skoruðum á útivelli.
Leikurinn verður líka sérstakur fyrir mig. Kærastan mín er harður stuðningsmaður Man U. Ég veit… úfff…… hún er samt sem betur fer ekki svona stuðningsmaður sem heldur með þeim af því stóri bróður hennar heldur með þeim eða af því ákveðinn Portúgali “er svo myndarlegur.”
Nei, hún er brjáluð! Á góðan hátt… hún veit allt um sögu liðsins, hefur farið út á leik og hefur svo sannarlega skoðanir á öllu í kringum félagið. Það er hugsanlegt að hún elski félagið sitt meira en ég elska félagið mitt. Nei ok, við skulum aðeins róa okkur á sleggjunum, en þið skiljið hvað ég meina.
Hún er hrædd fyrir leikinn. Ég bauð upp á veðmál sem tengdist treyjunum okkar en hún þverneitaði. Ég held samt að ég sé hræddari en hún… ég hef ótrúlega litla trú á því að við munum vinna þennan leik, því miður. Það skal tekið fram að hún mun fara heim áður en leikurinn hefst á sunnudaginn, það er ekki fræðilegur möguleiki að við getum horft á leikinn saman.
manchester united
hefur verið að spila vel á tímabilinu á meðan við höfum ekki náð okkur almennilega í gang. Okkur hefur gengið ömurlega á útivöllum, andstæðingar okkar eru mjög sterkir á heimavelli. Það er allt á móti okkur en það er kannski bara af hinu góða?
Ég veit það ekki. Hvað sem líður hlakka ég til að sjá leikinn, mann hlakkar alltaf til þegar liðið manns er að fara að spila. Vá hvað ég á samt eftir að vera stressaður….
Þessi leikur skiptir svo ótrúlega miklu máli að það er ekki fyndið. Ekki bara fyrir Liverpool, félagið okkar, heldur munu allir Púllarar eiga erfiðan mánudag ef liðið tapar. Já og erfiða viku. Og svo framvegis….
Ég held að leikurinn á morgun muni vinnast á miðjunni. Ég er kannski ekkert að finna upp hjólið en þetta er það sem ég held. Ég vona innilega að Steven Gerrard, sem spilar sinn 350. leik fyrir Liverpool á morgun, verði inni á miðri miðjunni. Það er þó líklega borin von þar sem Momo Sissoko þrífst á svona miðjuhnoðs leikjum. Hvað sem líður er ég á því að Gerrard verði að eiga góðan leik ef við ætlum okkur ekki að tapa…
Ég ætla að spá byrjunarliðinu svona:
Reina
Finnan - Carragher - Hyypiä - Riise
Gerrard - Sissoko - Alonso - Aurelio
Bellamy - Crouch
BEKKUR: Dudek, Agger, Warnock, Pennant, Kuyt.
Það þarf svosem ekki að rökstyðja þetta, það er hvort sem er ólíklegt að þetta sé rétt… Kristján benti á góða punkta hvað Crouch varðaði á gær
Mín spá: Þrátt fyrir að ég sé kannski ekki bjartsýnn er ég ekkert að fara að spá okkur tapi í þessum leik. Ég ætla að spá þessu 0-0 jafntefli, í leik fárra marktækifærra. Semsagt, frekar leiðinlegum leik…. Vonum svo að ég hafi rétt fyrir mér og Crouchy hirði td öll stigin þrjú í leiknum.
YNWA