17. október, 2006
Þrátt fyrir slappa byrjun í Úrvalsdeildinni ensku hafa okkar menn hafið leiktíðina í Evrópu af krafti. Jafntefli á útivelli gegn PSV var fín byrjun og í síðasta leik unnu okkar menn svo óþarflega nauman 3-2 sigur á Galatasaray heima. Næst liggja fyrir tveir leikir við franska liðið Girondins de Bordeaux, sá síðari á Anfield eftir tvær vikur en fyrst ferðast okkar menn til Frakklands og leika þar annað kvöld.
Nú, af okkar mönnum eru helstu tíðindin fyrir þennan leik þau að Steven Gerrard verður fjarri góðu gamni, en hann ferðaðist ekki með Liverpool til Frakklands í morgun þar sem hann er með smávægileg meiðsli á hásin. Þó er talið að hann verði orðinn heill heilsu fyrir stórleik helgarinnar gegn manchester united
- enda grunar marga að þessi meiðslafrétt sé lítið annað en yfirskin og verið sé að hvíla hann fyrir þann leik. Þá fundaði Rafa Benítez stjóri víst með fyrirliðum og öðrum lykilmönnum liðsins eftir leikinn við Blackburn um helgina þar sem menn reyndu að stilla saman strengi sína og ræddu það hvernig best væri að koma spilamennskunni aftur í góðan farveg, þannig að það er ljóst að hvort sem liðið leikur vel eða ekki á morgun munum við sjá menn reyna allt hvað þeir geta til að spila vel.
Af Bordeaux-liðinu er það að frétta að þeir hafa ekki unnið Meistaradeildarleik frá árinu 1999 og sitja sem stendur í fimmta sæti frönsku deildarinnar eftir 1-0 sigur á Mónakó um helgina. Ef ykkur finnst fimmta sætið ekkert spes árangur hjá liði í Meistaradeild, rifjið þá snöggvast upp hvar í ensku Úrvalsdeildinni okkar menn eru staddir í dag.
Allavega, hjá Bordeaux eru nokkrir leikmenn sem við ættum að kannast við, til að mynda miðjumaðurinn Stéphane Dalmat sem lék fyrir Tottenham um skeið og Johan Micoud sem varð þýskur meistari með Werder Bremen fyrir rúmum tveimur árum og var á tímabili orðaður við Liverpool. Þá leikur þar einnig tékkneski sóknarmaðurinn Vladimir Smicer, sem þarfnast engrar kynningar á þessari síðu. Persónulega vona ég að hann nái að spila báða leikina gegn okkar mönnum, og þá sérstaklega á Anfield þar sem hann mun vafalítið fá góðar móttökur.
Annars hef ég pælt aðeins í byrjunarliði okkar manna og komist að þeirri niðurstöðu að Rafa mun reyna að breyta eins litlu og hann getur milli leikja, til að liðið nái upp smá tempói. Hann neyðist til að gera eina breytingu vegna fjarveru Gerrard og þá tel ég að hann muni einnig kippa Pennant út úr byrjunarliðinu, á meðan hann mun eiga Daniel Agger og Dirk Kuyt inni fyrir leikinn gegn United, en sá síðarnefndi ferðaðist þó með til Frakklands og verður á bekknum. Þá er Robbie Fowler lítillega meiddur og missir einnig af.
Liðið okkar á morgun verður því líklega svona skipað:
Reina
Finnan - Carragher - Hyypiä - Riise
García - Sissoko - Alonso - Aurelio
Bellamy - Crouch
BEKKUR: Dudek, Paletta, Warnock/Peltier, Zenden, Gonzalez, Pennant, Kuyt.
MÍN SPÁ: Ég hef einfaldlega ekki trú á að þetta Bordeaux-lið sé nógu sterkt til að valda okkur miklum vandræðum í Evrópukeppni, en manni gæti þó alltaf skjátlast. Það liggur mikið við að okkar menn nái í það minnsta að spila almennilegan fótbolta á morgun, sýna eitthvað sem hægt er að byggja á fyrir leikinn á sunnudaginn, en þótt ég telji mjög litlar líkur á tapi fyrir þessu Bordeaux-liði er ég ekki sannfærður um sigur gegn því. Rafa mun leggja mikla áherslu á sterka vörn á útivelli og svo er spurning hvort við náum að stela sigurmarki eða ekki.
Ég spái að þetta verði annað hvort 0-0 jafntefli eða þá að við laumumst burtu með 0-1 sigur. Vonandi er hið síðara nær sannleikanum.
Áfram Liverpool!