12. október, 2006
Jæja, ekki er á bætandi á þetta landsleikjaþunglyndi hérna á síðunni, en Daniel Agger meiddist í landsleik með Dönum og verður að öllum líkindum frá í 5 vikur.
Verulega slæmt mál!
Svo er þetta athyglisvert sjónarmið, sem vert er að ræða - það er hvort að Momo Sissoko sé að einhverju leyti ástæðan fyrir vandamálum undanfarinna vikna.
Ég hef verið því fylgjandi að taka Sissoko út úr liðinu í smá tíma og leyfa Gerrard og Alonso að spreyta sig á miðjunni, en ég veit að menn eru ekki á eitt sáttir um það.