beach
« Mánudagspælingar | Aðalsíða | Nabil El Zhar til Liverpool (staðfest)! »

03. október, 2006
2005 versus 2006

Ég veit að það eru allir að tapa sér yfir leik helgarinnar og satt best að segja var ég kolbrjálaður uppá hótelherberginu mínu horfandi á Bolton leikinn. Suð-Austur Asíubúar eru alveg kreizí yfir enska boltanum og því hef ég getað horft á alla leikina (þó það sé vissulega galli að Meistaradeildarleikirnir byrji klukkan 1.45 að morgni að staðartíma).

En ég vildi líka finna einhvern Pollýönnu vinkil á þetta allt saman. Og tók ég því saman hvernig þetta tímabil byrjar miðað við það síðasta. Svona lítur þetta út:

2005
J Boro ú 0-0
S Sunderland h 1-0
J Tottenham ú 0-0
J manchester united h 0-0
J Birmingham ú 2-2
T Chelsea h 1-4
S Blackburn h 1-0
T Fulham ú 2-0

10 stig eftir 8 leiki

2006
J Sheff ú 1-1
S West Ham h 2-1
T Everton ú 3-0
T Chelsea ú 1-0
S Newcastle h 2-0
S Tottenham h 3-0
T Bolton ú 2-0

10 stig eftir 7 leiki

Semsagt, við erum búin að ná 10 stigum og eigum einn leik til góða á tímabilið í fyrra. En nota bene, í fyrra töpuðum við stigum á útivelli gegn Boro, Tottenham, Birmingham og Fulham. Og á heimavelli gegn manchester united og Chelsea.

Berum þetta saman við þau stig, sem við höfum tapað í ár. Þau eru öll á útivelli, gegn Bolton, Everton, Chelsea og Sheffield United. Það þarf engan snilling til að sjá að byrjunin á þessu tímabili er þrátt fyrir allt umtalsvert betri en byrjunin á síðasta tímabili. Næsti leikur er heima gegn Blackburn og hann ætti að vinnast. Svo er það ferð á Old Trafford í leik, sem er hreinlega gríðarlega mikilvægur fyrir okkar menn.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 16:41 | 278 Orð | Flokkur: Vangaveltur
Ummæli (7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Bolton 2 - L'pool 0
·Liverpool - Galatasary 3-2
·Liverpool 3-0 Tottenham
·L'pool 2 - N'castle 0
·Chelsea 1 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

Aron Elí: Þetta gengur ekki við hefðum átt að fá s ...[Skoða]
margeir: Hef ekki ekki séð að innbyrðis leikir li ...[Skoða]
Pétur: Í ár eru stig óvænt stig töpuð á móti Ev ...[Skoða]
eikifr: Nú jæja. Við erum að batna um 1 stig þa ...[Skoða]
Þröstur: En ef við förum í aðeins leiðinlegri lei ...[Skoða]
margeir: Athyglisvert. Einnig er athyglisvert að ...[Skoða]
Birgir: Þessi leikur gegn manutd VERÐUR einfaldl ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Inn í landsleikjahlé
· Nabil El Zhar til Liverpool (staðfest)!
· 2005 versus 2006
· Mánudagspælingar
· Joey er BARA SNILLINGUR
· Bolton 2 - L'pool 0

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License