beach
« Henry elskar okkur | Aðalsíða | Galatasaray á morgun »

23. september, 2006
Liverpool 3-0 Tottenham

Liverpool vann í dag góðan 3-0 sigur á Tottenham með mörkum frá Mark Gonzalez, Dirk Kuyt og John Arne Riise.

Það þurfti ekki að koma neinum á óvart að Rafa stokkaði aðeins upp í liðinu sínu, þrátt fyrir góðan leik og sigur gegn Newcastle. Þrjár breytingar, Carragher út og Hyypia inn, Aurelio út og Riise inn, og það sem kom mér mest á óvart, Luis Garcia út og Mark Gonzalez inn.

Liðið var því svona:

Reina

Finnan - Hyypia - Agger - Riise

Gerrard - Alonso - Sissoko - Gonzalez

Bellamy - Kuyt

Bekkurinn: Dudek, Carragher, Aurelio, Garcia, Crouch.

Það er skemmst frá þvi að segja að okkar menn tóku samstundis öll völd á vellinum. Fyrsta korterið var alveg okkar eign en því miður gekk okkur illa að skapa okkur færi. Bellamy átti skot yfir markið og Alonso skaut rétt framhjá fyrir utan teig en í byrjun leiks öskruðu áhorfendur á hann “Shoot!” í hvert skipti sem hann snerti boltann, skiljanlega!

Gestunum gekk aðeins betur að spila saman eftir það og fengu frábært færi þegar Sissoko braut af sér úti á kanti, “okkar maður” Danny Murphy tók spyrnuna en King hitti ekki boltann úr dauðafæri. Smá snerting og við hefðum lent undir. Sem betur fer gerðist það ekki.

Loksins kom svo líf í leikinn eftir ansi bragðdaufar mínútur. Boltinn hrökk í stöngina og út af hendinni á Chimbonda eftir hættulega hornspyrnu Gonzalez og þar hófst mikil sóknarlota en því miður vildi boltinn ekki inn. Boltinn fór meðal annars greinilega í hendina á King eftir skot frá Gerrard en enga fengu við vítaspyrnuna.

Undir lok hálfleiksins komu svo færi á báðum endum, fyrst var Reina fljótur af línunni til að bjarga og svo komst Bellamy í fínt færi en Robinson varði vel. Staðan í hálfleik var því markalaus.

Fyrri hálfleikurinn var ekki meira en ok að okkar hálfu. Við sköpuðum alltof fá færi miðað við hversu mikið við vorum með boltann og var nokkuð ljóst að Gerrard var ekki að komast í takt við leikinn úti á kantinum, en hann getur ekki alltaf spilað vel.

Við byrjuðum síðari hálfleikinn svipað og þann fyrri en sköpuðum litlar hættur áður en Jenas klúðraði einu besta færi sem ég hef séð í knattspyrnuleik en ég var nánast búinn að henda fjarstýringunni frá mér þegar hann renndi boltanum á óskiljanlegan hátt úr markteignum rétt framhjá markinu. Tottenham var refsað grimmilega á sömu mínútunni.

Meistari Alonso átti frábæra sendingu út á KANTINN á Gerrard, hann tók Chimbonda og gerði grín að honum, sendi svo fyrir þar sem Bellamy klúðraði, einu besta færi sem ég hef séð í knattspyrnuleik, og aftur var ég nánast búinn að missa mig þegar hann setti boltann í stöngina af markteignum en Mark Gonzalez af öllum mönnum tók frákastið og setti boltann í netið! Þungu fargi létt af mér og líklega öllum stuðningsmönnum Liverpool.

Gerrard gerði mjög vel í markinu sem kom út frá því að hann var á kantinum. Þar með er það réttlætt, að hluta til í það minnsta, en fyrirliðinn vann sig reyndar meira inn á miðjuna í síðari hálfleiknum og við það breyttist leikur liðsins til hins betra, að mínu mati í það minnsta.

Dirk Kuyt skoraði svo FRÁBÆRT mark skömmu síðar. Garcia sendi skemtilega inn á hann en Kuyt tímasetti stunguna sína fráærlega og í staðinn fyrir að leggja boltann fyrir sig þrumaði hann boltanum bara í bláhornið af fídonskrafti og staðan orðin 2-0. Frábærlega gert hjá Kuyt hvernig hann afgreiddi þetta og Robinsson vissi ekkert hvað hann átti að gera í markinu enda stóð hann bara og horfði á, án þess að hreyfa sig.

Við þetta luku Tottenham bara keppni og við kláruðum leikinn eins og Liverpool sæmir. Við fengum skyndisókn og ég öskraði á Riise sem kom askvaðandi upp völlinn að senda boltann á Kuyt en auðvitað hlustaði hann ekkert á mig heldur þrumaði hann boltanum bara að marki og boltinn söng í netinu. Glæsilegt mark af um 30 metra færi hjá Norðmanninum!

3-0 og liðið okkar farið að spila eins og það á að gera!

Það er frábært að sjá hvað hópurinn okkar er breiður og góður. Pennant var reyndar meiddur og því ekki í hóp en Fowler, Bolo Zenden og Gabriel Palletta voru til dæmis allir utan 16 manna hópsins. Það munar miklu að geta hvílt mann eins og Carragher fyrir stórleikinn gegn Galatasaray á miðvikudaginn en það er ljóst að Rafa breytir liðinu sínu, 94 leikinn í röð.

Ég tel líklegt að Bellamy missi sæti sitt í byrjunarliðinu, að öllum líkindum til Crouch auk þess sem mér finnst líklegt að Garcia komi inn fyrir Gonzalez þrátt fyrir markið hans í dag. Carra kemur svo inn fyrir Hyypia.

Tveir hlutir sem kæta mann sérstaklega, við héldum markinu hreinu og Kuyt skoraði. Bæði gerðist núna annan leikinn í röð….

Maður leiksins: Ég ætla að gefa Xabi Alonso þann heiður. Maðurinn er svo mikill snillingur að hálfa væri nóg. Hann átti miðjuna og dreifði spilinu með sínum frábærum sendingum allan leikinn. Hann er kominn aftur og það munar um minna fyrir okkur.

Liðið spilaði reyndar mjög vel og hvar voru eiginlega sóknarmenn Tottenham? Ekki veit ég það og af hverju byrjaði Davids ekki þennan leik? Mér er reyndar alveg sama. Ég verð samt aðeins að vorkenna Jenas sem sefur ekkert næstu dagana líklega, hann var vendipunkturinn í leiknum þegar hann klúðraði færinu sínu…

Í hnotskurn: Frábær sigur hjá okkar mönnum, 3-0, og mann er þegar farið að hlakka til að sjá leikinn gegn Galatasaray!

.: Hjalti uppfærði kl. 13:38 | 909 Orð | Flokkur: Leikskýrslur
Ummæli (21)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Liverpool 3-0 Tottenham
·L'pool 2 - N'castle 0
·Chelsea 1 - L'pool 0
·PSV 0 - Liverpool 0
·Everon 3 - Liverpool 0

Síðustu Ummæli

SSteinn: Það var kommentið þitt sem var barnalegt ...[Skoða]
david.ö: Vá, hef alltaf verið harður stuðningsmað ...[Skoða]
Hafliði: Öll mörkin má finna á youtube.com :smile ...[Skoða]
Svavar: Snilld! Vitiði hvort hægt er að nálgast ...[Skoða]
evs: Gott mál. Nú verður Garcia eldhress á m ...[Skoða]
einsidan: Pistlahöfundur spyr hvers vegna Davids h ...[Skoða]
SSteinn: Hjartanlega sammála þér Sigtryggur. Ef ...[Skoða]
Einar Örn: Fín úrslit. Ég horfði á þetta á gistihe ...[Skoða]
Sigtryggur Karlssons: :-) Þó að ég sé ekki sammála "David ö ...[Skoða]
Andri Fannar: david.ö skrifaði:Góður sigur ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Galatasaray á morgun
· Liverpool 3-0 Tottenham
· Henry elskar okkur
· Tottenham á morgun
· L'pool 2 - N'castle 0
· Newcastle á morgun

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License