beach
« L'pool 2 - N'castle 0 | Aðalsíða | Henry elskar okkur »

22. september, 2006
Tottenham á morgun

Það er ekki löng pása sem menn fá á milli leikja núna, sem er að mínum dómi afar gott mál. Tottenham koma í heimsókn á Anfield á morgun, og nú þarf að fylgja eftir góðum leik gegn Newcastle. Það er afar mikilvægt að koma sér á gott “rönn” með þessum heimaleikjum sem verið er að spila þessa dagana, minnka bilið í liðin fyrir ofan okkur og vonast til að hin liðin fari að tapa stigum. Ég var viss um það fyrir tímabilið að titilbaráttan yrði mun jafnari en síðustu ár, og það virðist allt benda til þess þar sem liðin hafa öll verið að tapa stigum núna í upphafi móts. Það er gríðarlega mikilvægt að vinna nánast alla heimaleiki sem í boði eru og ef menn spila svipað og á miðvikudaginn, þá er ég ekki í neinum vafa með að sigur okkar manna verður niðurstaðan úr leiknum.

Vandamálið hefur verið að framherjar okkar hafa ekki verið að nýta færin sín. Það leit allt út fyrir það að það yrði einmitt staðan í síðasta leik, við yfirspiluðum Newcastle en náðum ekki að koma okkur í þægilega stöðu í leiknum fyrr en langt var liðið á hann. Sá sigur ætti þó að geta virkað sem vítamín sprauta á liðið og hleypa auknu sjálfstrausti í framherjana. Kuyt er búinn að brjóta ísinn, og það væri ekkert slæmt ef þetta væri það sem opnaði flóðgáttir marka hjá honum. Ég hef verið gríðarlega ánægður með byrjunina hjá honum, virkilega skemmtilegur leikmaður og eflaust hræðilegt fyrir varnarmenn að eiga við hann. Ég vonast til að sjá hann byrja næsta leik líka, í rauninni vonast ég til að sjá sem minnst breytt byrjunarlið.

Tottenham hafa valdið stuðningsmönnum sínum miklum vonbrigðum í byrjun tímabilsins. Þeir bjuggu til miklar væntingar með góðu spili og árangri á síðasta tímabili og bjuggust menn við þeim enn sterkari núna. Það hefur þó ekki verið að ganga eftir og má eiginlega búast við þeim alveg brjáluðum til leiks á morgun. Þeir eru með sterkt lið og að mínum dómi engin spurning um að þeir séu með eitt af 5 bestu liðum deildarinnar. Þetta hefur þó ekki verið að falla fyrir þá og vonandi byrjar það ekkert á morgun. Berbatov er víst ennþá meiddur, sem og Lennon og í morgun sá maður að Martin Jol var að senda skilaboð til Danny Murphy og hvetja hann til dáða fyrir leikinn. Ég hef ávallt borið mikla virðingu fyrir super Dan og vonast ég til þess að hann nái að festa sig í sessi hjá Spurs. Hann má samt alveg eiga rólegan dag gegn okkur, takk. Það er sem sagt ekki mikið um meiðsli hjá þeim, þannig að þeir koma með afar sterkt lið til leiks.

Sama sagan áfram hjá okkar mönnum. Aðeins tveir meiddir sem vitað er um. Það kom mörgum á óvart þegar Pennant var ekki einu sinni í hópnum síðast, en það verður að segjast að Rafa veðjaði rétt og setti Garcia í liðið. Það er langt síðan maður hefur séð litla Luis jafn sprækan. Stóra málið var samt að sjá “gamla” góða Xabi á ný í góðu formi. Hann er alla jafna lengi í gang á haustin, en miðað við síðustu tvo leiki, þá er hann að komast í sitt besta form. Hann og Momo á miðjunni eru hreinlega okkar sterkasta uppstilling. Ruglið í kringum það að Rafa sé að festa Stevie á öðrum hvorum kantinum er eitthvað sem ég er alveg hættur að skilja. Hver maður sem horfir á leiki Liverpool ætti að sjá það að Stevie hefur afskaplega litlar varnarskildur og í rauninni fær að spila þar sem hann vill. Það er besta staða Stevie G. Það hreinlega má ekki festa hann um og of í einhverju fyrirfram ákveðnu hlutverki. Hann þarf að geta farið kanta á milli og inn á miðju. Hann hefur ekki verið í sínu besta formi, en hann er klárlega að spila þá stöðu sem hann getur notið sín best í. Rafa hefur ekki verið þekktur fyrir að setja inn óbreytt lið, en ég ligg á bæn núna um að hann breyti akkúrat engu í uppstillingunni. Líkurnar á því eru engar, en það eru hvort sem er engar líkur á að giska á rétt lið hjá honum. Ég ætla því að voga mér að giska á sama byrjunarlið og síðast:

Reina

Finnan-Carragher-Agger-Aurelio

Gerrard-Sissoko-Xabi-Garcia

Bellamy-Kuyt

Mér finnst helst að það gæti komið til að Rafa myndi henda Gonzalez inn í liðið í þessum leik, en ég er hreinlega ekki viss um það þá hvern hann tæki út. Þannig að ég er hættur við að giska á þá breytingu. Daniel Agger er sá leikmaður sem hefur hrifið mig mest af öllum á þessu tímabili. Ég hreinlega hlakka til að sjá drenginn spila og man ég hreinlega ekki eftir jafn “impressive” innkomu hjá varnarmanni Liverpool, hvað þá svona ungum strák.´

Bekkurinn: Dudek, Hyypia, Gonzalez, Pennant og Crouch

Ég held áfram að vera bjartsýnn og spái því að við vinnum þennan leik 2-0. Reina heldur áfram hreinu og Kuyt mun setja mark í öðrum leiknum í röð. Ég ætla að spá því að Luis bæti svo við marki. Ef við náum að vinna þennan leik sannfærandi, þá er ég þess fullviss að við séum búnir að snúa við blaðinu og tímabilið því komið á fullt. Það er í sjálfu sér enginn teljandi munur í toppliðin, allavega ekkert óyfirstíganlegt. Við erum jú ennþá bara að tala um fyrstu leiki tímabilsins sem mun verða langt og strangt. Koma svo…

Smá viðbót: Pennant var víst smávægilega meiddur á miðvikudaginn og því ekki með. Staðan á honum verður tekin á morgun og kemur þá í ljós hvort hann er leikfær eða ekki.

.: SSteinn uppfærði kl. 09:01 | 937 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (14)

Jibbí Jei!

Ég er búinn að finna barinn: Gym Sport Bar, sem er með "GIANT MEGA SCREEN" og "Explosive new satellite technology" og er "The ONLY True Sports Bar in the Kingdom of CAMBODIA"

Guð blessi þig, Gym Sport Bar!!

Einar Örn sendi inn - 22.09.06 13:33 - (Ummæli #7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·L'pool 2 - N'castle 0
·Chelsea 1 - L'pool 0
·PSV 0 - Liverpool 0
·Everon 3 - Liverpool 0
·Liverpool 2 - West Ham 1

Síðustu Ummæli

Stjáni: 3 breytingar hjá Rafa, Hyypia, Riise og ...[Skoða]
Hraundal: Held að eina breytingin verði Crouch f. ...[Skoða]
LP: Garcia var virkilega góður í síðasta lei ...[Skoða]
Hössi: Sama lið takk! Áfram Liverpool! ...[Skoða]
Birgir: Ég held að þetta sé sigurformúlan. Sisso ...[Skoða]
Sigtryggur KarlssonS: :-) Góður leikur að mestu síðast þó ...[Skoða]
Aggi: Ég las það einhversstaðar að Rafa hefur ...[Skoða]
Einar Örn: Jibbí Jei! Ég er búinn að finna barin ...[Skoða]
Einar Örn: Úff, mikið ferlega var gott að sjá að ok ...[Skoða]
SSteinn: En pointið er Kristján, að það eru hvort ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Henry elskar okkur
· Tottenham á morgun
· L'pool 2 - N'castle 0
· Newcastle á morgun
· Gerrard: hvar á hann að spila?
· Chelsea 1 - L'pool 0

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License