20. september, 2006

Okkar menn réttu aðeins úr kútnum í kvöld eftir tvö töp í röð í deildinni og unnu góðan 2-0 sigur á Newcastle á Anfield. Þessi leikur var frekar rólegur yfir það heila, maður fékk á tilfinninguna að menn væru rétt í öðrum gírnum í þessum leik og varla það, en á endanum lauk markaþurrðinni með tveimur góðum mörkum og Reina hélt hreinu í annað sinn á leiktíðinni. Eftir þennan leik eru okkar menn komnir í 7 stig um miðja deild eða svo, fimm stigum á eftir Chelsea og manchester united
og sex á eftir toppliði Portsmouth. Þannig að þetta er alls ekkert jafn slæmt og menn vilja meina, okkar menn eru fyllilega inní þessu ennþá.
Rafa gerði fáar breytingar frá því í leiknum við Chelsea á sunnudag. Jermain Pennant og Stephen Warnock véku fyrir Luis García og Fabio Aurelio, en fullt lið var sem hér segir:
Reina
Finnan - Carragher - Agger - Aurelio
Gerrard - Alonso - Sissoko - García
Bellamy - Kuyt
BEKKUR: Dudek, Hyypiä, Pennant, Gonzalez, Crouch.
Leikurinn fór frekar hægt af stað en eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn tóku okkar menn öll völd. Frá og með svona fimmtu mínútu var þetta orðin algjör einstefna að marki Newcastle sem entist út leikinn. Um miðjan fyrri hálfleikinn kom svo fyrsta markið; Xabi Alonso átti frábæra sendingu innfyrir vörn Newcastle á Steve Finnan sem skilaði honum rakleitt fyrir markið þar sem DIRK KUYT kom aðvífandi og setti boltann í markið af stuttu færi. Fyrsta mark Hollendingsins knáa fyrir Liverpool orðið staðreynd og maður sá að það voru fleiri en bara hann fegnir að skora þetta mark, enda var þetta í fyrsta sinn í vetur sem Liverpool skorar fyrsta markið í deildarleik.
Eftir markið gengu okkar menn á lagið en gekk erfiðlega að skora. Luis García fór mikinn í sókninni og Craig Bellamy var klaufi að skora ekki einn gegn markverði Newcastle, Steve Harper, og á endanum var staðan 1-0 í hálfleik.
Fyrstu fimmtán mínútur síðari hálfleiks snerist þetta algjörlega við. Newcastle-menn komu miklu ákveðnari til leiks og hefðu hæglega getað jafnað á fyrsta kortérinu - á móti voru okkar menn alveg skelfilegir. Shola Ameobi var óheppinn þegar Agger braut á honum og svo skaut hann strax í næstu sókn tvisvar í hönd Carragher, þannig að hann hafði ástæðu til að pirra sig það sem eftir lifði leiks. Okkar menn voru þar heppnir að fá ekki á sig allavega eina vítaspyrnu, en það jafnaðist þó út síðar í leiknum þegar samskonar hendi átti sér stað hinum megin á vellinum.
Eftir þetta stressaða kortér náðu okkar menn sér rólega á strik á ný og þegar tæpt kortér var eftir af leiknum innsiglaði XABI ALONSO sigurinn með sannarlega stórkostlegu marki. Hann vann knöttinn af Damien Duff fyrir framan vítateig Liverpool og lék með hann að miðjuhringnum. Þar leit hann upp og sá sér færi og lét vaða, af um 60-65 metra færi, og boltinn sveif yfir allan völlinn og í bláhornið á marki Newcastle. Steve Harper, markvörður þeirra svarthvítu, hafði verið staddur of framarlega og ég er ekki viss um að hann hefði náð boltanum ef hann hefði staðið í fæturna, en hann rann við að reyna að elta knötinn aftur að marklínunni sinni og þar með var leikurinn tapaður fyrir hann og gestina.
Eftir þetta tóku okkar menn fótinn af bensíngjöfinni og innbyrtu sigurinn í nær hlutlausum gír. Rafa tók Dirk Kuyt og Steven Gerrard útaf undir lokin fyrir Peter Crouch og Mark Gonzalez en þeir bættu litlu við.
En allavega, sigurinn í höfn og það er gott að hugsa til þess að liðið sé komið á beinu brautina á nýjan leik. Næsti leikur er gegn Tottenham á Anfield um helgina og það er alveg jafn mikilvægt að innbyrða sigur þar og var í kvöld. En þetta er fín byrjun, við erum alls ekkert búnir að gefa deildarkeppnina upp á bátinn!
MAÐUR LEIKSINS: Í annars jöfnu og góðu liði fannst mér helst Steven Gerrard og Momo Sissoko frekar daprir, allavega miðað við það sem maður er vanur að sjá til þeirra. Luis García, Dirk Kuyt og Craig Bellamy voru allir mjög frískir í sókninni og þeir García og Bellamy voru óheppnir að ná ekki marki eins og Kuyt. Vörnin stóð vel fyrir sínu fyrir utan þetta stresskortér í upphafi síðari hálfleiks á meðan Reina sinnti sínu af öryggi og virðist vera kominn yfir óöryggið sem hrjáði hann í upphafi tímabils.
XABI ALONSO svaraði gagnrýnendum sínum hins vegar með stórum hvelli í dag. Frá fyrstu mínútu stjórnaði hann miðjuspilinu algjörlega, var allt í öllu bæði varnar- og sóknarlega hjá okkar mönnum og kórónaði þessa frábæru frammistöðu sína með frábærri sendingu á Finnan í fyrra markinu og svo einu af mörkum tímabilsins í seinni hálfleik. Það segir meira en margt annað um fótboltaheila mannsins að þetta var ekki í fyrsta skipti á árinu 2006 sem hann skorar mark frá eigin vallarhelmingi. Alonso er kominn í gang og við vitum að þá fer liðið strax að spila betur.
Ég hlakka til að sjá næsta leik.