beach
« Chelsea 1 - L'pool 0 | Aðalsíða | Newcastle á morgun »

18. september, 2006
Gerrard: hvar á hann að spila?

Í síðustu þremur leikjum hefur Steven Gerrard haft hlutverk sem margir vilja meina að sæmi honum ekki sem fyrirliða Liverpool og langbesta leikmanns liðsins. Gegn Everton fyrir rúmri viku hóf hann leik á hægri kanti, gegn PSV í Meistaradeildinni byrjaði hann á bekknum og kom svo inn á miðja miðjuna og gegn Chelsea í gær spilaði hann úti vinstra megin.

Svo virðist sem Rafa Benítez sé búinn að gera það upp við sig að Xabi Alonso og Momo Sissoko séu sitt aðal miðjupar, og í kjölfarið geti Steven Gerrard aðeins leikið þar ef spila á með þrjá miðjumenn eða ef annar hvor þeirra er fjarri góðu gamni. Hins vegar, í stærri leikjum þar sem bæði Momo og Xabi geta spilað, virðist Gerrard vera settur í það að fylla upp í aðrar vandamálastöður liðsins, og þá aðallega á vængjunum þar sem þeir Pennant, Gonzalez og Aurelio eru kannski ekki orðnir klárir í að spila alla leiki.

Eftir þessa síðustu viku spyrja margir sig hvort þetta sé að virka. Rökin með þessari aðferð Rafa eru þó nokkur; til að mynda spilaði Gerrard flesta leiki úti á hægri kanti á síðasta tímabili og sú taktík skilaði okkur í 82 stig í deildinni og sigur í FA bikarkeppninni, auk þess sem Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, virðist styðja Rafa í þessu og nota Gerrard einnig úti á kanti.

Á móti kemur hins vegar augljósasta gagnrýnin af þeim öllum: Steven Gerrard er einn af þremur bestu miðjumönnum í heimi, ef ekki sá besti, og hann er vissulega sá langmest alhliða af þeim öllum. Hans hæfileikum er einfaldlega sóað ef þeim eru settar þær skorður að þurf að spila á kantinum. Til að Gerrard nýtist best þarf hann að fá að spila framarlega á miðjunni, í nokkuð frjálsri stöðu, þar sem hann hefur leyfi til að sækja upp báða vængina, berjast á miðri miðjunni og jafnvel gerast framherji ef honum hentar það í leik. Hann þarf frelsi til að taka eigin ákvarðanir á velli og svæði til að nýta sér þetta frelsi sitt og augljóslega er framliggjandi miðjumaður eina staðan sem hentar honum.

Eða hvað?

Mig langar til að taka tvö önnur dæmi um alhliða frábæra miðjumenn sem eru í sama klassa og Gerrard en blómstra í þessum skorðuðu stöðum sem kantstöðurnar eru, þrátt fyrir að vera hvorugur alvöru kantari. Ég er að tala um Brasilíumennina Ronaldinho hjá Barcelona og Kaká hjá AC Milan. Báðir menn spila aðallega upp annan kantinn og hafa meira og minna frjálst sóknarhlutverk, að öðru leyti en því að þeir fara ekki oft á milli vængja. Kaká spilar upp hægra megin hjá AC Milan og Ronaldinho vinstra megin hjá Barca, en þrátt fyrir að hvorugur þeirra sé kantmaður í líkingu við Ryan Giggs eða Joaquín, eða það sem maður hugsar sér sem hinn týpíska kantmann, þá blómstra þeir í þessari stöðu að sækja upp annan vænginn aðallega.

Af hverju virkar þetta þá ekki fyrir Steven Gerrard? Vissulega hefur hann átt frábæra leiki sem kantmaður - það er engin tilviljun að hann skoraði 20+ mörk á síðasta tímabili sem hægri vængmaður, hann naut frelsisins þar - en það sem af er af þessu tímabili virðist þetta ekki vera að ganga.

Ég er sjálfur persónulega á þeirri skoðun að Gerrard sé einfaldlega í óstuði þessa dagana. Í fullkomnum heimi gæti Gerrard alltaf spilað fremstur í þriggja manna miðju, með þá Xabi og Momo fyrir aftan sig, en ef Rafa myndi alltaf spila þeim þremur saman yrði hann gagnrýndur fyrir að nota aðeins einn framherja í hverjum einasta leik. Og ef hann ætti að taka annað hvort Momo eða Xabi út úr liðinu fyrir Gerrard og halda tveimur framherjum yrði hann sömuleiðis gagnrýndur. Þannig að Rafa er vissulega í erfiðri aðstöðu, hann er gagnrýndur hvernig sem hann snýr sér í þessu máli. Eins lengi og liðið tapar stigum hlýtur hann gagnrýni, sem er vitaskuld eðlilegt.

Persónulega held ég að Rafa þurfi að finna eina stöðu fyrir Gerrard og halda sig við hana. Ef hann er miðjumaður á Rafa ekki að bíða með að koma honum fyrir á miðjunni strax í næsta leik, sama hvaða fórnir þarf að færa til að svo geti verið. Ef Rafa ætlar að nota hann sem hægri kantmann og Pennant sem varaskeifu þarf það að gerast líka strax í næsta leik, og svo framvegis. Gerrard er einfaldlega okkar besti leikmaður, sama hvar á miðjunni hann spilar, og því þurfa aðrir einfaldlega að víkja að mínu mati svo að hann geti spilað sína bestu stöðu - en þó með þeim fyrirvara að það henti liðinu.

Því spyr ég ykkur, lesendur góðir: hver er besta staða Gerrards í dag og hvar þjónar hann liðinu best? Á Rafa að fórna framherja til að setja hann inn sem þriðja miðjumann? Eða á hann að setja Xabi eða Momo á bekkinn? Eða á hann að hafa hann áfram úti á vinstri kantinum, á kostnað Mark Gonzalez og Fabio Aurelio, eða þeim hægri á kostnað Jermain Pennant?

Hvað finnst ykkur? Hvar á Gerrard að spila?

.: Kristján Atli uppfærði kl. 16:16 | 828 Orð | Flokkur: Vangaveltur
Ummæli (25)

Góð og málefnaleg umræða.

Ég segi að Gerrard eigi að spila á hægri kanti.

1) Staðreyndirnar tala sínu máli. Gerrard átti frábært tímabil síðasta vetur auk þess að skora 20+ mörk sem verður að teljast frábært af miðju- kantmanni.

2) Besti hægri kantmaður í heiminum í dag að mínu mati.

3) Staða miðjumanns er öðruvísi en kantstaðan að mínu mati. Miðjumaður verður að sinna jafnt varnar- og sóknarhlutverki. Á miðjunni myndi Gerrard því nýtast mun minna í sókn en á kantinum.

4) Mér fannst fullreynt í HM á sumar að spila með Gerrard á miðjunni. Gerðist það sama með Ronaldihno að mínu mati sem spilaði mun aftar á vellinum á HM en hann er vanur.

5) Liðið er sterkara með Gerrard úti á hægri kanti. Ef við berum saman þá Alonso og Pennant þá er augljóst að mínu mati hvor er betri fyrir liðið. Annar átti frábært tímabil í fyrra og vann sér sæti í landsliðinu sínu auk þess sem stórlið á borð við Real Madrid voru að falast eftir honum. Hinn ekki og hefur að mínu mati ekki náð að sanna sig á efsta leveli þótt sé góður leikmaður. Alonso mun betri kostur að mínu mati - hann þarf bara að spila sig í form.

6) Ferguson sagði í ævisögu sinni að hann hefði einu sinni beðið Giggs að spila meiri varnarleik. Um leið missti náttúruhæfileikann til að sækja og sóla leikmenn. Mér finnst að Gerrard eigi að fá tækifæri til að sækja að villd án þess að þurfa að vera að velta varnarleiknum fyrir sér. Hann er einn af fáum leikmönnum í heiminum sem getur unnið leik upp á eigin spýtur og sá hæfileiki verðu að fá að nýta sér til fulls. Ég er ansi hræddur um að náttúruhæfileikar hans myndi minnka ef hann spilaði á miðjunni.

7) Gerrard hefur sjálfur sagt að honum líki vel að spila á kantinum og að sú staða henti honum vel.

8) Ég vil ekki að Gerrard spili sem annar senter. Hæfileiki hans er að koma djúpur af miðjunni og stinga sér í holur sem myndast í vörnum andstæðinganna. Mér finnst þetta henta honum mun betur en t.d. það að spila með bakið í mark andstæðingana eins og Drogba masteraði í leiknum á sunnudaginn.

9) Rafa setur hann á kantinn og treysti honum alla jafna þó ég sé ekki alltaf sáttur við ákvarðanir hans. En - það sem meira er þá setur McLaren hann líka á kantinn og það jafnvel þó Englendingar eigi meira en nóg af frambærilegum kantmönnum á borð við Lennon, Beckham og Pennant.

10) Góð samlíkinging hjá þér Kristján Atli með þá Ronaldinho og Kaka. Segir allt sem segja þarf. Ég held líka að hvorugur myndi henta sem annar senter þótt báðir séu frábærir sóknarmenn.

Stóra vandamálið finnst mér ekki vera hvar Gerrard sé að spila þessa dagana. Mér finnst miklu frekar þessi rótering á honum slæm - bæði fyrir hann og fyrir liðið í heild sinni. Um leið og hann kemst í þá stöðu sem hann verður í í vetur mun hann aftur taka við sér og verða okkar besti maður. Drengurinn er bara svo fáránlega góður að það er alveg sama hvaða staða það yrði. Hann væri alltaf bestur.

Með Gerrard og Kewell á köntunum og Kyut og Bellamy frami erum við með frábært sóknarlið og með þá Sissoko og Alonso á miðjunni frábæra, massíva miðju sem afar erfitt væri að brjóta niður. Því miður virðast Gonsales og Garsia ekki alveg vera að finna sig því ég hélt að annar hvor þeirra myndu spila á vinstri kantinum í fjarveru Kewell. Sóknarmennirnir okkar finnst mér hins vegar lofa góðu.

Áfram Liverpool!

Hössi sendi inn - 18.09.06 18:41 - (
Ummæli #8)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Chelsea 1 - L'pool 0
·PSV 0 - Liverpool 0
·Everon 3 - Liverpool 0
·Liverpool 2 - West Ham 1
·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1

Síðustu Ummæli

.: Gerrard gæti spilað sem miðvörður og ver ...[Skoða]
Hjalti: Tek undir með Pétri í einu... það væri h ...[Skoða]
Pétur: Vissulega eikifr... en það má líka benda ...[Skoða]
eikifr: Pétur, Steven Gerrard hatar líka að vera ...[Skoða]
Sigtryggur karlsson: Mjög góð umræða og þörf. Að mínu mati ve ...[Skoða]
Krizzi: Góður grein Kristján. Ég er sammála Hös ...[Skoða]
Pétur: Bellamy hatar að spila á kantinum. Ef þa ...[Skoða]
Jón H: Mér varð að ósk minni með Pennant. Hann ...[Skoða]
Sigurbergur: What?? Gerði þetta ekki svona, átti að v ...[Skoða]
Sigurbergur Elisson: Þetta á að vera svona !! --------------- ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Newcastle á morgun
· Gerrard: hvar á hann að spila?
· Chelsea 1 - L'pool 0
· Liðið gegn Chelsea:
· Chelsea á morgun
· Stríðsöxin grafin?

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License