07. september, 2006
Jæja, einn af stærstu leikjum tímabilsins er á laugardaginn þegar við mætum nágrönnum okkar í Everton. Leikurinn verður í hádeginu, klukkan 11.45 á Goodison Park. Þetta verður 175 nágrannaslagur liðanna í deildinni og leikur númer 204 í öllum keppnum.
Bæði lið eru ósigruð á tímabilinu, eins og þrjú önnur lið, og ættu því að koma inn í leikinn full sjálfstrausts. Ekki það að neitt svoleiðis skipti máli, nágrannaslagirnir eru bara sérstakir. Ég verð að viðurkenna að ég hef áhyggjur, eins og fleiri reyndar, af því hversu margir af okkar mönnum voru að spila landsleiki í vikunni. Vonandi að það komi ekki til með að skipta sköpum hvað þreytu og samverkun manna að gera.
Liverpool hefur unnið síðustu þrjá leiki þessara liða og ef við vinnum á laugardaginn verður það sjötti sigur okkar í sjö síðustu leikjum á útivelli. Ég ætla að spá byrjunarliði Liverpool svona:
Reina
Finnan - Hyypiä - Agger - Aurelio
Pennant - Gerrard - Alonso - Gonzalez
Crouch - Fowler
Bekkurinn: Dudek, Warnock, Garcia, Zenden, Kuyt
Carragher og Riise eru báðir tæpir en ef Carra verður leikfær kemur hann væntanlega inn fyrir Agger. Fowler lifir auðvitað fyrir svona leiki og Crouch er einfaldlega í stuði. Kuyt kemur svo bara inná. Bellamy var ískaldur með Wales í vikunni. Svo gæti Aurelio reyndar verið á kantinum og Warnock í bakverðinum, eða Zenden bara á kantinum auk þess sem Sissoko gæti hæglega komið inn. Stór og breiður hópur sem við höfum!
Það vita allir að mikill rígur er á milli þessara tveggja liða en ég verð að segja, mörgum kannski að óvörum, að ég skil hann ekki alveg hérna á Íslandi amk. Ég skil hann alveg ef maður býr í Liverpool eða á Englandi og auðvitað er manni ekkert vel við Everton, en líklega bara af því “manni á ekkert að vera vel við þá.” Stundum finnst mér þetta ganga út í gönur hér á Íslandi. Ég hata manchester united
mun meira og Chelsea þar enn fremur. Svo er mér líka illa við Newcastle.
Við höfum enga ástæðu til að vera öfundsjúkir út í Everton, annað en manchester united
og Chelsea því miður (Englandsmeistaratitlar undanfarinna ára) auk þess sem leikmenn þessara liða virðast einfaldlega bara vera %(/&%$# upp til hópa. Ég hef amk aldrei fundið til neins sérstaks haturs, þannig lagað, í garð Everton en það er ljóst að þeir verða alltaf þriðja stærsta liðið í Liverpool. Vá hvað ég hlakka til að fá viðbrögð Ssteina við þessu
Mín spá: Þetta verður hörkuleikur eins og venjulega en ég set kröfuna á þrjú stig og held að við innbyrðum þau. Segjum 2-0, Fowler og Kyut!
Uppfært: Bendi hérna á frábært videó sem vinur okkar Andri Fannar setti saman. Þar fer hann yfir magnaðar viðureignir liðanna á síðustu leiktíð. Myndbandið er um fimm mínútur, um 50 mb á íslensku downloadi.