01. september, 2006
Fyrsti september. Glugginn lokaður. Slúðrið er búið … í bili.
Okkar menn enduðu sumarið á eilitlum vonbrigðisnótum í gær þegar Jan Kromkamp fór frá Liverpool en ekki tókst að kaupa Ástralan Lucas Neill í staðinn. Fyrir vikið erum við með eina nett þunnskipaða stöðu í hópnum, þar sem Steve Finnan er eini hægri bakvörðurinn í hópnum hjá okkur. Ef hann meiðist eitthvað í vetur skuluð þið búa ykkur undir að sjá Carra flytja sig í hægri bakvörðinn til bráðabirgða, þar sem við höfum úr fleiri miðvörðum en hægri bakvörðum að velja.
Ég hefði alveg viljað fá Neill, sem þrátt fyrir að vera grófur leikmaður er líka mjög góður og reyndur leikmaður. En úr því að hann kom ekki finnst mér slæmt að missa Kromkamp. Hann, rétt eins og Josemi, er kannski engin hetja en hann var þó varaskeifa fyrir Finnan. Mér þykir slæmt að missa varaskeifuna því maður veit aldrei hvað gerist. Ef Finnan meiðist í einhvern lengri tíma í vetur gæti það haft slæm áhrif á tímabilið í heild sinni, þar sem Rafa yrði væntanlega að skófla varnarlínunni allri til til að kóvera fyrir hann.
Engu að síður getum við verið hæstánægðir á heildina litið með þetta sumar. Heilir 16 leikmenn yfirgáfu Liverpool í sumar, annað hvort á láni eða sölu, og við fengum sex leikmenn í staðinn. Það er ótrúlegt sumar, og ég efast um að við sjáum annað slíkt í bráð.
Annars staðar þá voru tvær stórfréttir í gær sem stálu senunni. Í fyrsta lagi þá kláruðu Chelsea loksins kaupin á Ashley Cole frá Arsenal. Þeir létu Arsenal fá William Gallas og fimm milljónir punda í staðinn fyrir Cole, en ég get ekki að því gert að þykja Arsenal fá betri dílinn út úr þessu. Gallas spilar töluvert fleiri leiki en Cole á hverju ári og er fjölhæfur varnarmaður, sannur leiðtogi á velli, og ég held að hann eigi eftir að reynast hvalreki fyrir Arsenal. Þá skiptu þeir einnig við Real Madríd á þeim José Antonio Reyes og Julio Baptista, og það verður gaman að sjá ‘The Beast’ spila í Úrvalsdeildinni.
En stærstu fréttir dagsins, og sumarsins hreinlega, í gjörvöllum knattspyrnuheiminum, eru stórkostleg kaup West Ham á Argentínumönnunum Carlos Tevez og Javier Mascherano. Þetta eru leikmenn sem hafa verið orðaðir við öll stórlið Evrópu síðustu tvö ár og voru taldir á leiðinni til manchester united
(Tevez) og Arsenal (Mascherano) í haust. En West Ham-menn skutu öllum öðrum liðum ref fyrir rass og keyptu þá báða í gær!
Auðvitað eru samsæriskenningarnar farnar að fljúga. Menn vilja vita hvernig í fjandanum þeir ákváðu að fara til West Ham. Fyrir mér er þetta borðliggjandi. Þessi grein segir allt sem segja þarf: Íranskur múltímilljónamæringur sem á fyrirtækið MSI - sem átti samninga þeirra Mascherano og Tevez við Corinthians í Brasilíu - er að reyna að kaupa West Ham. Þessi sami íranski milli … er einmitt eigandi Corinthians. Þetta mál telst hér með upplýst, hann er að flytja verðlaunagripi sína frá einni heimsálfu til annarrar og ætlar að herja inná enska knattspyrnuvelli með pompi og prakt. Við getum farið að venjast því að sjá West Ham spila góðan fótbolta.
Fínn gluggi, fjórir mánuðir í þann næsta. Njótið friðarins frá slúðrinu … meðan hann endist.