21. ágúst, 2006

Á morgun bregða okkar menn sér til Kænugarðs í Úkraínu og mæta ísraelska liðinu Maccabi Haifa í síðari leiknum í forkeppni Meistaradeildarinnar. Eins og menn vita unnum við heimaleikinn 2-1 á Anfield með mörkum frá Craig Bellamy og Mark Gonzalez, sem skoraði á lokamínútunum, eftir að Haifa-menn höfðu veitt okkur verðuga mótspyrnu. Þannig að þótt leikurinn á morgun fari fram á hlutlausum velli getum við ekki gengið að neinu sem vísu og ég veit að ég persónulega verð ekki í rónni fyrr en dómarinn flautar af annað kvöld og við getum fagnað því að hafa komist í Meistaradeildina.
Þetta Haifa-lið er nokkuð sterkt og var nálægt því að skora fleiri en eitt mark gegn okkur á Anfield, þannig að þeir mæta örugglega grimmir til leiks á morgun. Hvað okkar menn varðar þá eru þeir Carragher, Riise, Kewell, Warnock og Kuyt fjarri góðu gamni, auk þess sem óvissa er með hvort að Alonso og Finnan nái þessum leik.
Ef ég geri ráð fyrir að þeir missi af þessum leik held ég að Rafa gæti stillt þessu svona upp:
Reina
Kromkamp - Hyypiä - Agger - Aurelio
Pennant - Gerrard - Sissoko - Zenden
Crouch - Luis García
Hér geri ég ráð fyrir að Alonso og/eða Finnan komi inn fyrir Zenden og Kromkamp ef þeir eru leikfærir. Annars finnst mér þetta líklegt lið á morgun, í ljósi þess að þeir Pennant, Crouch og Luis García voru hvíldir um helgina.
MÍN SPÁ: Við ættum að vinna þennan leik, erum með sterkara liðið og ættum alveg að geta í það minnsta haldið hreinu gegn þessu liði á útivelli, en ég verð að viðurkenna að þetta leggst ferlega illa í mig. Mig stórverkjar í litlu tána, ég er nær ekkert spenntur fyrir að horfa á þennan leik og mig langar helst til að ljúka honum af sem fyrst. Kannski er þetta bara svartsýni og bölsýni í mér, en ég hef það bara svo sterklega á tilfinningunni að við stefnum í stórslys á morgun.
Þannig að ég ætla að gerast svo svartsýnn að spá Haifa-liðinu 1-0 sigri á morgun, sem þýðir að við komumst ekki inn í riðlakeppni Evrópu. Þessi spá á sér ekki við nein rök að styðjast hjá mér, bara slæm tilfinning sem ég hef fyrir þessum leik og ekkert annað.
Vonandi hef ég kolrangt fyrir mér. Áfram Liverpool!!