beach
« Liverpool: væntingar fyrir tímabilið | Aðalsíða | Sheffield United 1-1 Liverpool »

18. ágúst, 2006
Sheffield United á morgun

Þá er komið að því. Fyrsti deildarleikurinn á tímabilinu 2006-2007. Liverpool og nýliðar Sheffield United munu ríða á vaðið og opna tímabilið formlega og má með sanni segja að þetta sé athyglisverður leikur. Að mínum dómi er ávallt verst að mæta nýliðum í byrjun tímabilsins. Þá koma þeir til leiks fullir eldmóðs og staðráðnir í að sýna sig í sínum fyrsta Úrvalsdeildarleik. Ég held því að þetta verði ekkert “Walk in the Park” fyrir okkar menn. Það er ekki þar með sagt að hægt sé að réttlæta fyrir fram eitthvað annað en sigur. Sigur er það eina sem til greina kemur í þessum opnunarleik. Leikmenn Liverpool verða frá fyrstu mínútu að sýna það að þeir séu klárir í slaginn og ætli sér að berjast til þrautar um enska titilinn. Það er einungis hægt að gera með sigri í fyrsta leik. Auðvitað er titilbaráttan ekkert úr sögunni þó leikurinn vinnist ekki, en það er þó á tæru að brekkan mun verða hærri og erfiðari og einnig koma þá fram þau skilaboð að menn geti komið í leikina gegn okkur með það í huga að ná stigum. Það viljum við ekki.

En það er vægt til orða tekið að segja að maður sé orðinn spenntur. Hvað Liverpool liðið varðar þá er ég á því að við höfum ekki verið með jafn sterkan hóp síðan 1989. Meira að segja þá, þá þurfti ekki jafn mikla breidd og í dag. Það eru 2 landsliðsmenn nánast um hverja stöðu á vellinum. Það hefur marg oft verið farið yfir það hvað þessir nýju leikmenn okkar geta fært okkur. Það fyrsta er hraði. Okkur hefur skort mikinn hraða í sóknarleikinn undanfarið, og þá er ég ekki að tala um það hvort menn geti hlaupið 100 metrana undir einhverjum sekúndufjölda. Það er svo sjaldan sem menn taka svona langa spretti í leik, þetta eru styttri sprettir og aðal málið er það hversu fljótir menn eru með boltann. Djibril Cissé er einn fljótasti maðurinn sem hefur spilað á Englandi. Það nýttist bara stundum, því hann var ekki sérlega fljótur að rekja boltann. Gárungarnir segja til dæmis um Craig Bellamy að hann sé fljótari að hlaupa með boltann heldur en án hans.

En hvernig lið er þetta Sheffield United lið? Verð að viðurkenna það að ég veit nú ekki mikið um þá. Veit að stjórinn þeirra er mjög litríkur, þó vægt sé tekið til orða. Liðið hefur einkennst af mikilli baráttu og hafa þeir verið nálægt því að fara upp nokkrum sinnum áður en þeim tókst það loks í vor. Liðið hefur keypt hvorki meira né minna en 9 leikmenn í sumar. Margir refir sem eru með reynslu úr Úrvalsdeildinni, svo sem Geoff Horsfield (Reyndar lánuðu hann út strax aftur), Rob Hulse, David Sommeil og Li Tie. Þar fyrir utan hafa þeir bætt við sig mönnum úr neðri deildunum eins og Claude Davis og Chris Lucketti frá Preston, Ian Bennett frá Leeds, Mikele Leigertwood frá Crystal Palace og Christian Nade frá Troyes. Fyrir í liðinu er svo hinn frægi Ade Akinbiyi og hinn stórskemmtilegi Paul Ifill. Talsvert mun svo mæða á þeim Michael Tonge, Keith Gillespy og Phil Jagielka. Í vörninni eru svo tveir jaxlar sem vonandi koma til með að eiga í erfiðleikum með okkar hröðu menn, en þar eru þeir David Unsworth og Craig Short.

Eitt af því sem verður ákaflega erfitt að gera á þessu tímabili og það er að reyna að ráða í það fyrirfram hvernig Rafa Benítez komi til með að stilla upp liðinu. Svo mikil breidd er orðin í hópum að það er orðinn nánast ógjörningur að hitta á rétt lið. Það breytir þó engu um það að flestir munu halda áfram að spá og reyna að giska á rétt lið. Ég er þar engin undantekning og ég reikna með liðinu svona:

Reina

Finnan - Carragher - Agger - Riise

Pennant - Sissoko – Gerrard - Zenden

Crouch - Bellamy

Hyypia meiddist víst eitthvað í landsleik í vikunni og Agger stóð sig vel gegn Chelsea, þannig að ég held að hann fái sénsinn áfram. Finnan er víst eitthvað tæpur og ef hann nær því ekki, þá kemur Kromkamp inn fyrir hann. Xabi hefur líka verið eitthvað tæpur með meiðsli og ég held að Rafa taki enga sénsa með hann í þessum leik. Ætli ég spái ekki að Dudek, Kromkamp, Alonso, Gonzalez og Garcia myndi svo bekkinn hjá okkur. Hugsið ykkur að ef þetta verður svona, þá eru eftirtaldir menn fyrir utan hópinn: Hyypia, Paletta, Aurelio, Kewell, Fowler, Kuyt, Warnock og Pongolle (og auðvitað Salif Diao líka :-) ).

Hvernig fer svo? Ég ætla að gerast svo kaldur að spá 0-2 sigri okkar manna. Crouch er sjóðheitur þessa dagana og svo setur Bellamy fyrsta deildarmark sitt fyrir sitt heittelskaða félag. Leikurinn hefst klukkan 11:45 í fyrramálið og verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu. Hver verður fyrstur til að skora mark í Úrvalsdeildinni á þessu tímabili? Byrjum þetta af krafti og gefum tóninn fyrir það sem koma skal.

Áfram Liverpool

.: SSteinn uppfærði kl. 13:36 | 824 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (15)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

Kristinn J: "Ekki það besta að fá nýliðana í fyrsta ...[Skoða]
Gunnar: Byrjunarliðið...? Reina Kromkamp Carrag ...[Skoða]
Júlli: Jæja drengir og stúlkur þá er það að ske ...[Skoða]
Aggi: Já það styttist í þetta og sammála SStei ...[Skoða]
Svavar: Sammála Kristinn með að þessir leikir re ...[Skoða]
Kristinn J: Ekki það besta að fá nýliðana í fyrsta l ...[Skoða]
Páló: Sheff U - Liverpool 0:2 Bellamy og Gonza ...[Skoða]
Kristján Atli: Úff, rétt um 14 klukkustundir í fyrsta l ...[Skoða]
Doddi: Ég er að hugsa um að gerast svo grófur o ...[Skoða]
Svavar: Ég er pissa á mig úr spenningi og væntin ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License