beach
« Fellur Watford? Hverjir koma mest á óvart? Hverjir vinna? | Aðalsíða | Kuyt loksins að koma? (uppfært) »

16. ágúst, 2006
Nýr penni á Liverpool blogginu

Jæja, það er með mikilli ánægju, sem við kynnum núna til leiks nýjan penna á Liverpool blogginu. Flestir, sem hafa fylgst með starfi Liverpool klúbbsins hérna á Íslandi kannast vel við hann, en hann hefur verið formaður klúbbsins undanfarin ár. Einnig hefur hann verið duglegur við að tjá skoðanir sínar inná Liverpool.is og hérna á Liverpool blogginu. Við bjóðum Sigurstein Brynjólfsson velkomin í hópinn! Ég leyfi honum að kynna sjálfan sig:


Ég heiti Sigursteinn Brynjólfsson og hef verið mikill stuðningsmaður Liverpool FC frá því ég man fyrst eftir mér. Það ku hafa verið í kringum 4 ára aldurinn sem ég límdist fyrir framan sjónvarpið á laugardögum og hreifst mjög svo af þessu nafni á félaginu (mér er allavega tjáð það af móður minni sem ávallt hefur verið algjörlega laus við fótboltaáhuga). Liverpool FC hefur allar götur síðan, verið stór partur af mínu lífi. Það er í raun merkilegt hvað knattspyrnufélag úti í heimi getur haft mikil áhrif á manneskjur svona langt í burtu. Núna eru sem sagt liðin 30 ár og áhuginn er akkúrat ekkert að minnka, hann virðist hreinlega aukast með hverju árinu sem líðu.

Það eru margir hápunktar hjá mér þegar kemur að atburðum tengdum Liverpool. Suma hverja upplifði maður á pöbbnum í góðra félaga hópi, en aðra á vellinum. Auðvitað standa leikir meira upp úr þegar maður er staddur í eigin persónu á sjálfum vellinum. Það er orðið erfitt að gera upp á milli einstaka leikja, þegar leikir sem maður hefur farið á standa einhversstaðar í kringum fimmta tuginn. Það er þó alveg á tæru að það er ekkert, og mun væntanlega ekkert, toppa það að hafa upplifað Istanbul ævintýrið. Það næsta sem kemst því var ferðin í vor til Cardiff. En það eru svo mörg augnablik og leikir í viðbót sem vert er að minnast á, þannig að ég ætla að sleppa því svo menn sofni hreinlega ekki við þennan lestur.

Það er einnig erfitt að skýra frá því hvaða leikmenn Liverpool FC í gegnum tíðina hafa verið í mestu uppáhaldi. Þrír skipa þó ávallt stóran sess í huga mínum. Ég hef aldrei farið leynt með það hversu mikill aðdáandi Robbie Fowler ég er. Hann hafði, hefur og mun alltaf eiga vissan sess í mínum huga. Það er heldur aldrei hægt að tala um Liverpool og goðsagnir, án þess að minnast á menn eins og King Kenny Dalglish og Ian Rush.

Mikið af mínum tíma undanfarin 8 ár, hafa farið í störf fyrir Liverpoolklúbbinn á Íslandi. Fyrstu mánuðina eftir að vefsíðan liverpool.is fór í loftið, sá ég um nánast allt sem sneri að fréttaflutningi á síðunni. Núna, eftir að hafa lagt stjórnarstörf fyrir klúbbinn á hilluna, hefur aukist sá tími sem ég hef aflögu, og því þurfti maður að finna sér vettvang til að koma skoðunum sínum á framfæri. Er til betri mögulegur staður en Liverpoolbloggið? Held ekki. Áfram munu væntanlega slæðast inn fréttir frá mér á liverpool.is, en núna mun þessi síða verða minn vettvangur til að koma skoðunum mínum á framfæri, og vil ég þakka þeim góðu mönnum sem stýra þessari síðu fyrir að bjóða mér þetta tækifæri. Eitt er víst, ég mun ekki liggja á skoðunum mínum þegar kemur að Liverpool FC.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 10:08 | 529 Orð | Flokkur: Um síðuna
Ummæli (15)

Velkominn meistari!

YNWA!

Svavar sendi inn - 16.08.06 13:01 - (Ummæli #7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Blackburn 1 - Liverpool 0
·L'pool 2 - Watford 0
·Charlton 0-3 Liverpool
·L'pool 4 - Fulham 0
·Galatasaray 3 - L'pool 2

Leit:

Síðustu Ummæli

Dóri: Velkominn til starfa Steini, frábært að ...[Skoða]
SSteinn: Þakka góð orð í minn garð, mun gera mitt ...[Skoða]
Gunnar: Ánægjulegt að fá fleiri penna á þessa gó ...[Skoða]
Doddi: Vertu velkominn til starfa, SSteinn. Frá ...[Skoða]
L.Á.: Glæsilegt mál. Þetta er orðinn snilldars ...[Skoða]
Kiddi Geir: velkominn ... fleiri pennar, öflugri síð ...[Skoða]
Árni bros: velkominn... alltaf gott að fá fleirri h ...[Skoða]
Kristján Atli: Mig langar til að bjóða nýjan al ...[Skoða]
Svavar: Velkominn meistari! YNWA! ...[Skoða]
Höski Búi: Velkominn til starfa, það er frábært að ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Blackburn 1 - Liverpool 0
· Liðið gegn Blackburn
· Blackburn á morgun!
· Árið hans Crouchy
· Liðið okkar í dag
· L'pool 2 - Watford 0

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License