31. júlí, 2006
Fyrir þau, sem eru ósátt við það hvernig sumarið hefur gengið í leikmannamálum, spáið þá í eftirfarandi: Manchester United voru að selja sinn besta markaskorara (nota bene, þeir eru enn með besta framherjann sinn).
Um sömu helgi kaupa þeir Michael Carrick, sem fyrir tveimur árum kostaði minna en þrjár milljónir punda (sjá líka hérna)
Fyrir Carrick borga manchester united
18,6 milljónir punda.
Það, dömur mínar og herrar er meira heldur en Liverpool borgaði fyrir eftirfarandi menn samtals:
Momo Sissoko
Xabi Alonso
Bolo Zenden
Steven Gerrard
Semsagt, Michael Carrick kostar meira en öll miðjan okkar. Ef við höldum áfram með þessa líkingu þá kostaði Wayne Rooney meira en allir sóknarmenn Liverpool og Rio Ferdinand kostaði meira en öll varnarlína Liverpool. Þrátt fyrir þessar staðreyndir haldiði að margir Liverpool aðdáendur myndu vilja skipta á byrjunarliði Liverpool og Man U?
Ég held ekki.