Ja hérna. Sjaldan hefur jafn ómerkilegur póstur valdið jafn miklu fjaðrafoki hér á spjallinu. Ég hefði nú kosið að menn myndu reyna að svara mér á málefnalegan hátt en ekki ganga af göflunum hvað þá vitinu.
Ég vil sérstaklega taka það fram að ég hef ekki fordóma gegn Steve Finnan og mér er alls ekki illa við hann. Kann meira að segja nokkuð vel við hann og finnst hann viðkunnanlegur náungi. Mér er aftur á móti meinilla við Gerard Hollier og allt sem hann hefur staðið fyrir eftir að liðið vann þrennuna um árið. Ég held þó að það séu ekki fordómar bara skoðun mín á manninum.
Mig langar til að leiðrétta þann misskilning að mér finnist Finnan slakur leikmaður. Mér finnst það alls ekki. Mér reyndar finnst hann slakasti leikmaðurinn í sterkasta byrjunarliði síðasta tímabils á eftir þeim Crouch og Riise. Það vill reyndar svo til að það eru margir á þessu spjalli sem eru sammála mér eða þá að þeim finnst hann annar eða þriðji slakastur. Ég vil svo taka það fram að mér fannst Liverpool geta stillt upp mjög sterku byrjunarliði á síðasta tímabili og það var sko ekki heiglum hent að komast í það lið.
Ég hef svo mjög sterkar skoðanir á því að til þess að bæta liðið þurfi að kaupa menn sem eru sterkari en þeir sem eru fyrir. Þannig hefði ég viljað byrja á því að kaupa senter því mér finnst mikilvægara að sú staða sé vel mönnuð en bakvarðarstöðurnar. Síðan vildi ég sjá nýja bakverði. Reyndar hefur mér fundist kaupin hjá Benites snúast um að bæta þessar stöður því Aurelio er vissulega vinstri bakvörður og ég hélt að Alves væri hægri bakvörður.
Ástæðan fyrir gagnrýni mína á Finnan er fyrst og fremst sú að mér finnst hann of hlutlaus og of varkár. Sumum líkar við þannig leikmenn en mér ekki. T.d. fannst mér heyra til undantekninga að Finnan kæmist til mót við vítateig til að senda fyrir. Í staðinn var hann að senda háa fallhlífarbolta inní frá miðju sem mér hefur alltaf fundist eins og að gefa boltans til hins liðsins. Þá reynir hann mjög sjaldan að sóla leikmenn, hvað þá að hann skori mörk. Reyndar skiptir hann afar sjaldan sköpum fyrir liðið. Hvort sem mönnum finnst það ósanngjörn samlíking eða ekki þá minnist ég helst Markus Babbel sem drauma bakverðinum mínum. Rispurnar sem hann tók upp völlinn og mörkin sem hann skoraði voru stór þáttur í þeim góða árangri sem náðist á þrennutímabilinu. Ég hef reyndar svo oft reynt að útskýra þessa skoðun mína á manninu sem fótboltamanni að það hálfa væri nóg og vona því að þetta nægi. Vil bara benda á að umræddur leikmaður átti í vandræðum mað að komast í landslið þjóðar sinnar þar sem varahægribakvörðurinn hjá Tottenham sló hann út. Vil samt taka fram að mér finnst hann sterkur varnarmaður þó hann sé slakur skallamaður.
Varðandi það hvaða leikskipulag Liverpool spilar þá tel ég mig nú barasta hafa nokkuð gott vit á því. Flest lið í dag spila 4-4-2, 3-5-2, 4-5-1 eða 4-3-3. Hvernig menn svo spila innan þess kerfis getur svo að sjálfsögðu verið mismunandi og fer eftir þeim einstaklingum sem spila í hvert skiptið. Mér fannst t.d. sterkasta lið Liverpool á síðasta tímabili spila 4-5-1 með Kewell og Gerrard á köntunum og Garcia fremstan á miðjunni. Crouch einan frammi og þá Alonso og Sissoko á miðjunni. Vörnin var svo Finann, Carra, Hyypia og Riise. Reina snillingur að sjálfsögðu í markinu.
Í dag finnst mér kaup sumarsins hafa verið viss vonbrigði. Sérstaklega ef við skoðum alla hægri kantarana sem við reyndum að fá. Pennant er spennandi kostur og mér líkar alltaf vel við menn með pínu ergelsi í blóðinu. Að mínu mati finnst mér hann ekki bæta okkar sterkasta lið og í rauninni myndi ég ekki vilja breyta ofangreindri upptalningu nema að ég myndi vilja sjá Bellamy ganga inn í byrjunarliðið í stað Crouch. (Fowler væri draumurinn en ég bara þori ekki alveg að láta mig dreyma um að hann nái að blómstra. Vona það samt.) Aurelio og Gonsales gætu vissulega bankað á dyrnar þá sérstaklega Aurelio en ég hef bara aldrei séð hann spila svo ég muni eftir og svo var hann varamaður í Valencia, eftir því ég best veit undir það síðasta, sem mér finnst slakara lið en Liverpool.
S.s. við mætum manu, ars og chelsea með svipað sterkt byrjunarlið og í fyrra og ég einfaldlega held að það sé ekki nóg til að verða fyrir ofan þessi lið í deildinni. Það er aðal markmiðið ekki rétt? Reyndar væri skandall að lenda fyrir neðan manu aftur miðað við það sem hefur gengið á í þeirra herbúðum í sumar og sl. vetur.
Eins og ég nefndi hér að ofan þá hefði ég nú kosið að menn myndu reyna að svara mér á málefnalegan hátt en ekki ganga af göflunum hvað þá vitinu. Það er það sem mér finnst gera þessa síðu bæði áhugaverða og skemmtilega. Ég er nú samt ekki að segja að menn megi ekki bauna soldið á hverja aðra og vera ósammála. Mér finnst fátt skemmtilegra en þegar mönnum hitnar verulega í hamsi yfir hinu og þessu sem snertir Liverpool.
Ég vil samt leggja það til að leiðinlegir gamlir menn séu bannaðir á síðunni. Sérstaklega þeir sem vafra stjórnlaust, drukknir um á veraldarvefnum með fúkyrði og almenn leiðindi.
Einar - ég biðst afsökunar á að hafa ruglað þér saman við Kristján Atla.
Kristján Atli - ég næ þessu alveg með Crouch. En ef þú ætlar að halda því fram að hann sé akkúrat maðurinn fyrir Liverpool og að við seljum hann til Real Madrid fyrir 15 milljónir punda eftir 5 ár þá held ég að við séum algjörlega á öndverðum meiði. Þó hann sé alls ekki algalinn þá finnst mér hann ekki nógu góður fyrir Liverpool. Við skulum bara vera sammála um vera ósammála. Ég bist svo aftur afsökunar á því að hafa sagt við þig á öðrum þræði hér á spjallinu að þú hlytir að hafa ekkert vit á fótbolta þegar þú vildir ekki fá Eið Smára til Liverpool þar sem við hefðum fyrir Peter Crouch.
Áfram Liverpool!