beach
« Besti klúbbur á Englandi | Aðalsíða | BBC: Pennant á leiðinni! »

25. júlí, 2006
Birmingham hafna boði í Pennant (UPPFÆRT!)

Hinn æðislegi Steve Bruce hefur staðfest að Birmingham hafi hafnað tilboði Liverpool í Jermaine Pennant uppá 3,5 milljónir punda. Talið er að liðið sé að leita að 5 milljónum punda fyrir leikmanninn:

“We had an offer from Liverpool which we rejected and, until they meet our valuation of Jermaine Pennant, they will get the same answer. There’s only been one bid, of around £3.5million. We paid £3 million for Jermaine plus we owe Arsenal 25% of any sell-on fee.

“We don’t want to sell him for £3.5million, that’s for sure. Now it’s a question of how far Liverpool are prepared to go in meeting our valuation. If they don’t then they will move on, I suppose.”


UPPFÆRT (hþh) Svo virðist vera sem Pennant sé á leiðinni eftir allt fyrir rúmar sex milljónir punda! Fyrir mér eru þetta frábær tíðindi, sér í lagi í ljósi þess að þetta gerir okkur kleift að kaupa sóknarmann til viðbótar en í sömu frétt er talað um að Kuyt sé vonandi á leiðinni. Að Feyenoord hafi þegar neitað boði um Kromkamp, Dudek + peninga fyrir Kuyt en liðin munu halda áfram að ræða saman.

Jafnframt sagði Rafa í dag að hann vonaðist eftir einum til tveimur nýjum leikmönnum í vikunni. Pennant og Kuyt væri ekki slæmt og þar með eru sumarkaupin komin þetta árið :-)

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 10:25 | 221 Orð | Flokkur: Leikmannakaup
Ummæli (11)

Skrítið hvað mönnum er mikið í mun að gleyma Pennant og versla Simao eða Alves.

Pennant er proven leikmaður í EPL þrátt fyrir að vera ungur að árum. Hann var einn allra besti hægri kanntmaðurinn á síðustu leiktíð, þrátt fyrir að leika með lánlausu liði Birmingham. Hann átti að mig minnir flestu krossana á tímabilinu og marg sannaði að hann er fær um að taka hvaða bakvörð sem er á og koma sér í stöðu til að senda fyrir. Hann er, sama hvað hver tautar, þessi klassíski kanntari sem leikur á bakverði, fer að hornfánanum og krossar tuðruna.

Simao er ekki hægri kanntmaður að upplagi en hann getur leikið stöðuna. Hann er ekki þessi krossari eins og Pennant heldur fer hann meira inná miðsvæðið. Honum svipar þannig meira til Kewells vinstra megin sem er einnig sterkari í því að koma inná miðjuna. Hann ógnar með góðum skotum og er hörku spilari, bara öðruvísi leikmaður en Pennant. Þar að auki er hann Portúgali sem hefur aldrei leikið í EPL og óvíst er um hvort hann sé nóg og líkamlega sterkur eða annað til að standa sig í deildinni.

Munurinn á þessum mönnum er einfaldlega ekki svo mikill að ég sé tilbúinn að "gleyma" bara Pennant og borga upphæðina sem hann ætti að kosta tvöfalda eða þrefalda til að landa þessum Portúgala.

Menn tala alltaf um Alves. Ég verð að viðurkenna að ég er mjög spenntur fyrir honum, eins og öllum þessum þremenningum en hef lítið séð til hans. Reyndar aðeins úrslitaleikinn í UEFA cup, þar sem hann var frábær. Það er samt ekki nóg fyrir mig til að ég geti sagt "Gleymum" Pennant og kaupum Alves á þrefalda þá upphæð sem sá enski kostar.

Oft þarf ekki að leyta langt...

Julian Dicks hetja sendi inn - 25.07.06 16:17 - (
Ummæli #7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

Vargurinn: Öfluga skallamenn, segirðu.... og talnin ...[Skoða]
Svavar: Einmitt það sem okkur vantar er öflugur ...[Skoða]
siggi: Strákar, gleymið þessum Kuyt hann getur ...[Skoða]
Hannes: Sammála Julian Dicks. Ég held að þeir my ...[Skoða]
Julian Dicks hetja: Skrítið hvað mönnum er mikið í mun að gl ...[Skoða]
Hafliði: Gleymum þessum Pennant bara og neglum Si ...[Skoða]
Pétur: Eins og kom í ljós þá þurfa Birmingham a ...[Skoða]
Einar Örn: >Tökum þessar 3,5 sem við erum að bjóða ...[Skoða]
Robertoz: og það að duff hafi verið seldur á 5 mil ...[Skoða]
Jón Ívar: Ég hélt það væri kjörið tækifæri fyrir b ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License