24. júlí, 2006
Jæja, þá hafa nýju búningarnir verið gerðir opinberir, en þeir líta svona út:


Ég verð að viðurkenna að ég fíla þá alla. Ég var hreint ekki sáttur við gula búninginn þegar ég sá fyrstu teikningar af honum, en að sjá Alonso í honum breytir ansi miklu. Hann fer honum bara vel! Gerrard og Carra eru svo að sjálfsögðu ofurflottir í sínum flíkum …
Ég geri fastlega ráð fyrir að sérlegur tískusérfræðingur þessarar síðu muni bæta við þessa færslu sínum skoðunum á öllum búningunum. Gerðu svo vel, Einar!
Viðbót (EÖE): Takk, Kristján. Já, ég veit að allir eru gríðarlega spenntir eftir því að fá skoðun mína á þessum nýju búningum.
Allavegana, einsog menn vita þá var ég búinn að skrifa um græna/hvíta varabúninginn og var ekkert sérstaklega hrifinn og gaf honum 6/10. Mér finnst hann ekki eins hræðilegur og mörgum, en samt alls ekki nógu flottur. Jæja, varðandi hina búningana:
Markmannsbúningurinn: Að mínu mati mjög fínn litur og verulega flott munstur á sjálfum búningnum. Reina er svo líka miklu meira módel en Jerzy, þannig að hann kemur extra vel út. 8,5/10.
Varabúningurinn. Sko, ég var búinn að biðja til Guðs um að varabúningurinn yrði ekki gulur, en ósk mín rættist ekki. Að mínu mati er hvítur varabúningur langflottastur. En ok, hann er gulur og lítið við því að segja. Miðað við litinn finnst mér búningurinn þó venjast furðu vel. Skil ekki af hverju kraginn er öðruvísi en á aðalbúningnum. En ég get bara ekki sætt mig við litinn almennilega. Einkunn: 7,5/10
Aðalbúningurinn: Þetta skiptir auðvitað mestu máli. Það er búið að einfalda búninginn aðeins. Í gamla aðalbúningnum voru hvítir hlutar, en núna er búningurinn alveg rauður fyrir utan Adidas rendurnar. Aðalmálið er þó kraginn. Ég var ekki viss fyrst, en ég er smám saman að sannfærast um að hann sé málið. Sjáið til dæmis þessa mynd af Gerrard. Hann er alveg fáránlega svalur. Spurning hver muni leika með kragann alveg uppi. Ég veðja á Craig Bellamy, hann væri nógu hrokafullur til þess. Ég ætla allavegana pottþétt að kaupa mér eintak af þessum búning. Verulega flottur búningur: Einkunn: 9,5/10
Annars, hvað er málið með að láta ekki módelið okkar, Luis Garcia, sýna búningana? Hann væri allavegana betri en Carra.