23. júlí, 2006
Það er varla að maður nenni að skrifa um hverja pulluhausarnir hjá Real Madrid eru að reyna að laða til sín með fréttum í hundhlýðnum íþróttablöðum á Spáni.
En allavegana, síðasta fréttin fjallaði um Xabi Alonso, sem var orðaður í þrjú þúsundasta skipti við Real Madrid í kjölfar þess að þeir gátu ekki náð í Cesc Fabregas.
En allavegana, Rafa Benitez kemur núna strax fram og tekur af allan vafa um það að Xabi er EKKI til sölu:
“I read what is written in the Spanish press but I can categorically state that nothing is happening with Xabi. We do not want to sell him.”
Þetta ætti vonandi að vera nóg.
Einnig reynir Rafa að draga úr hype-inu, sem var að skapast í kringum Craig Linfield í kjölfar þess hversu vel hann lék í gær gegn Crewe.
“I am really pleased with what he did on Saturday but he has to be stronger and you cannot build a star after just 45 minutes in the first team. He now needs to carry on working hard and get more experience.”
Rétt hjá Rafa. En Linfield lofar svo sannarlega góðu.