beach
« Fowler númer 9 | Aðalsíða | Liverpool hafa ekki gert eftirfarandi »

21. júlí, 2006
Duff? (uppfært: NEI - hann fer til Newcastle)

01.gifJa hérna! Samkvæmt Sky þá hafa Chelsea gefið þremur úrvalsdeildarliðum leyfi til að tala við Damien Duff. Þau lið eru Tottenham, Newcastle og…. Liverpool Þetta þýðir ekki að Chelsea hafi tekið tilboði liðanna, einungis að þau fá leyfi til að tala við hann.

Duff á eitt ár eftir af samningi sínum við Chelsea. Fyrir nokkrum árum þegar hann var orðaður við okkur var altalað að hann væri Liverpool aðdáandi (en við heyrum það nú um alla) en Liverpool gat þá ekki greitt þær 17 milljónir punda, sem að Chelsea borguðu.

Ef Duff kemur til Liverpool telja margir líklegt að hann verði notaður á hægri kantinn, þar sem hann hefur spilað nokkrum sinnum fyrir Chelsea. Þetta er allavegana athyglisvert. Verðmiðinn á Duff ætti að vera hæfilegur þar sem hann á stutt eftir af samningi, en einhvern veginn grunar mann að Jose vinur okkar vilji ekki gera mikið til að hjálpa Liverpool fyrir næsta tímabil.


Viðbót (Kristján Atli): Mér líst ótrúlega vel á að kaupa Damien Duff! Enn einn vinstri vængmaðurinn er akkúrrat það sem við þurfum! Enda er Rafa hugsjónarmaður og það er greinilegt að hann er um það bil að fara að gjörbylta heimsknattspyrnunni eins og við þekkjum hana. Ég býst fastlega við að við spilum þetta kerfi hér í vetur:

Reina

Traore
Riise
Warnock
Aurelio
Zenden
Kewell
Duff
Gonzalez
Luis García

Crouch

Líst bara ÓTRÚLEGA vel á þetta! Við verðum með öflugasta kant (eintala) í HEIMI! :-)


Uppfært (EÖE): Duff er farinn til Newcastle. Góða skemmtun! :-)

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 14:52 | 248 Orð | Flokkur: Slúður
Ummæli (10)

Ég verð nú að segja að ég er þónokkur Newcastle aðdáandi(mitt 2.lið í Englandi á eftir Liverpool)og ég fagna þessum kaupum! :-) Reyndar stafar aðdáun mín á liðinu af mörgu, t.d. því að ég þekki vallarstjórann vel og að hafa frá honum leyni gsm-númer hjá öllum helstu stjörnum Newcastle í símanum! Nei ég ætla ekki að gefa nein númer upp og nei ég hef ekki enn hringt blindfullur í Alan Shearer og Owen á laugardagskvöldi til að skamma þá þegar liðið hefur tapað! :-)

Þið megið ekki gleyma heldur að Liverpool og Newcastle eru mikil vinafélög úti og gagnkvæm virðing á milli þeirra. Newcastle líta mjög upp til Liverpool, ekki ósvipað og Færeyingar til okkar Íslendinga! Hverjum er illa við Færeyinga segi ég nú bara?! :-)

Það að fara frá Chelsea getur annars auðvitað aldrei verið skref niðurá við...... Í staðinn fyrir leiðinlegan maskínufóbolta fær Duff núna; 1)Pottþétt byrjunarliðssæti og helling af leikjum 2)Að spila fyrir hreint frábæra aðdáendur 3)Tækifæri til að sanna sig á nýjan leik sem afburðaleikmann líkt og hann var hjá Blackburn. 4)Fær gleðina aftur 5)Fær mjög há laun hjá Newcastle.

Þetta er því hárrétt ákvörðun hjá Duffaranum. :-)

Að lokum fagna ég innilega 3-0 útisigri Newcastle gegn hinu gríðarlega erfiða Lilleström liði! Newcastle mun taka UEFA-cup þetta árið, mark my words. Þið heyrðuð það frá mér fyrst!!!

Arnar sendi inn - 23.07.06 00:38 - (
Ummæli #10)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

Arnar: Ég verð nú að segja að ég er þónokkur Ne ...[Skoða]
einsidan: Newcastle buðu væntanlega langhæst allra ...[Skoða]
Dóri: Nákvæmlega Einar Örn. Einhvern veginn he ...[Skoða]
Einar Örn: Það eina, sem við höfum í hendi varðandi ...[Skoða]
Dóri: Það skil ég bara alls ekki hvað fær menn ...[Skoða]
Gummi H: Æ aumingja Damien Duff. Hvernig stendur ...[Skoða]
Arnar Ó: Ekki gleyma að Fowler gæti verið svona v ...[Skoða]
Kristján Atli: Hvað gátu Newcastle mögulega boðið honum ...[Skoða]
Einar Örn: Gary Neville hlýtur að vera hræddur við ...[Skoða]
Kiddi Geir: Duff væri frábær á hægri kantinn hjá okk ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License