beach
« Traore á leið til Charlton eða Bolton? | Aðalsíða | Rafa og tæknin »

19. júlí, 2006
Hlutlaus "aðdáandi" og titilvon Stevie

Bill Simmons er Bandaríkjamaður sem skrifar hreint frábærar greinar um íþróttir. Aðallega stóru bandarísku íþróttirnar - hafnabolta, körfubolta og ruðninginn - en hann skrifar um allt hitt líka. Ég myndi segja að hann sé svo skemmtilegur penni að ég get lesið, og fílað í botn, greinar sem hann skrifar um íþróttir sem mér þykir hundleiðinlegar. Það er afrek.

Allavega, Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu í sumar virðist hafa kveikt upp einhverja ástríðu í honum gagnvart undrinu sem Kanarnir kalla “soccer,” og því hefur hann ákveðið að velja sér lið til að halda með í ensku Úrvalsdeildinni í vetur. Enski boltinn mun fá áður óþekkta athygli í bandarískum fjölmiðlum í vetur, einhverra hluta vegna, og Simmons þykir þægilegt að geta byrjað daginn sinn á því að horfa á evrópska knattspyrnu (vegna tímamismunarins), áður en hann snýr sér að bandarísku íþróttunum.

Grein hans er hreint frábær, algjörlega. Sem hlutlaus einstaklingur sem hefur ekki neinar taugar eða söguleg tengsl í garð nokkurs liðs eða svæðis á Englandi gat hann nálgast ensku Úrvalsdeildina á ferskan hátt, og kynnt okkur hinum fyrir sjónarmiðum sem við erum ekki vön að fá á enska boltann. Lesið bara greinina. Ég ætla ekki að vitna í skrif hans um Liverpool né önnur lið, þar sem ég vill ekki eyðileggja neitt fyrir ykkur, en LESIÐ ÞETTA. Ef þið ráðið við enskuna munið þið ekki hlæja jafn mikið að knattspyrnugrein í ár! Hann telur niður, útilokar fyrst þau lið sem hann langar ekkert til að halda með svo að sex standa eftir. Þaðan fer hann í kjöllinn á hverju liði og telur niður að því liði sem hann hefur ákveðið að halda með í vetur. Liverpool eru eitt af þeim liðum sem koma til greina; lesið greinina bara, hún er frábær.

Ég mæli sérstaklega með því sem hann skrifar um manchester united og Martin Jol, þjálfara Tottenham. En í alvöru, ekki hlaupa bara að Liverpool-kaflanum, lesið ALLA GREININA. Hún er þess virði. :-)

Í öðrum (ekki)fréttum þá ætlar Stevie Gerrard sér að vinna Úrvalsdeildina í vetur. Góður strákur, Stevie, góður strákur …

.: Kristján Atli uppfærði kl. 19:26 | 345 Orð | Flokkur: Vangaveltur
Ummæli (9)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

Arnar Ó: Snilldargrein... og gaman að hann skildi ...[Skoða]
Björn Friðgeir: Um United: "they outspend everyone else, ...[Skoða]
Andri: I like everything I read/heard about Li ...[Skoða]
JónH: Tær snilld....þessi grein..Algjör tær sn ...[Skoða]
Ingi: Ástæðan fyrir því að hann valdi EKKI Liv ...[Skoða]
Dóri: • Unintentional Comedy: They have a Kafk ...[Skoða]
Kiddi: Mjög skemmtileg grein. • Celebrity Fans ...[Skoða]
Einar Örn: Líka athyglisvert hvernig hann viðurkenn ...[Skoða]
Einar Örn: Jammm, ég var búinn að bíða eftir þessu. ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License