18. júlí, 2006
Djimi Traore mun vera eftirsóttur eftir að Liverpool hefur gefið í skyn að hann megi fara fyrir rétta upphæð. Bæði Bolton og Charlton hafa rætt við umboðsmann Traore og kæmi ekki á óvart að hann fari áður en vikan er öll. Mín vegna má Traore fara og verður ekki saknað eftir vont síðasta tímabil. Við erum vel settir bæði í miðverðinum og bakverðinum í dag miðað við upphaf síðasta tímabils. 2-3 millj. punda… er það raunhæft?
Síðan hefur fyrrum leikmaður unglingaliðs Liverpool, Calum Woods, gert samning við Dunfermline. Gangi þér vel lagsmaður.