Hössi sagði:
"Mikið væri gaman að heyra af einhverjum sem yrði keyptur og myndi pottþétt ganga inn í byrjunarliðið."
Ég skal gera þér greiða: Craig Bellamy, Mark Gonzalez, Fabio Aurelio.
Þetta eru ekki aular, þetta eru ekki leikmenn sem eiga eftir að sanna sig og þetta eru ekki leikmenn sem lítils er vænst af. Þetta eru leikmenn sem eiga allir, að öllu eðlilegu, að verða fastamenn í byrjunarliðinu strax núna í ágúst.
Eins og Einar Örn sagði, þá eiga önnur lið í töluvert meiri vandræðum. Arsenal hafa keypt Tomas Rosicky en eru að missa Sol Campbell og Ashley Cole, svo að vörnin þeirra er í lamasessi eins og er nema þeir kaupi á næstu vikum.
manchester united
eru í frekar slæmum málum eins og staðan er núna, og Newcastle voru að missa Alan Shearer á eftirlaun og Michael Owen fram að áramótum án þess að útlit sé fyrir að þeir geti keypt alvöru framherja í staðinn.
Það eru ekki mörg lið í Evrópu sem hafa verið virkari en við í ár. Tottenham hafa keypt Zokora og Berbatov, og kannski Damien Duff líka, en munu í staðinn missa annað hvort Defoe eða Carrick. Chelsea hafa fengið Ballack, Mikel, Schevchenko og Kalou en misst Eið Smára, líklega Asier Del Horno og Duff og jafnvel Gallas líka.
Við erum ekki aðdáendur Juventus, AC Milan, Fiorentina, Lazio, Manchester United, Bolton, Newcastle, Real Madríd eða brasilíska landsliðsins. Við erum ekki einu sinni aðdáendur Everton. Ég legg til að menn hætti þessu væli og átti sig á því að jafnvel þótt það komi ekki einn einasti leikmaður í viðbót í sumar, þá hefur þetta sumar fært okkur nánast allt sem við þörfnumst, þótt það hafi ekki fært okkur allt sem við viljum. Mun nokkurt sumar standa undir þeim svimandi háu væntingum sem sum ykkar virðast gera?
Fyrir sumarið bað ég um þrjá hluti; klassaleikmenn sem bæta byrjunarliðið, hægri kantmann og markaskorara sem hefur sannað sig í fremstu röð. Við fengum Aurelio og Gonzalez sem eru þekktir á alþjóðavísu og bera með sér miklar væntingar, og svo fengum við Bellamy sem hefur sannað sig aftur og aftur í Úrvalsdeildinni, þótt hann hafi ekki enn gert það með toppliði. Og eins og ég hef sagt áður þá örvænti ég ekki þó að kantmaðurinn komi ekki, því við erum með menn til að leysa þá stöðu þangað til rétti maðurinn verður laus til að koma til okkar.