16. júlí, 2006
Einhverra hluta vegna átti ég ekki alveg von á því að Rafa myndi taka af allan vafa strax, en það gerðist nú samt. Í gær tjáði hann sig við blaðamenn um áhuga sinn á Juventus og leikmönnum þeirra. Sem er skrýtið, því Rafa er vanur að halda spilum sínum þétt að sér svo að enginn sjái til fyrr en hlutirnir eru orðnir nokkuð öruggir. Þannig að ég get ekki að því gert að spyrja sjálfan mig hvað Rafa sé að pæla með þessum ummælum; er einhver taktík á bakvið það að tjá sig um Juve - og Trezeguet sérstaklega - svona fljótt?
Lesið bara þessi orð og segið mér að þetta sé ekki skrýtið, komandi frá Rafa:
“”All the Juventus players are good players - Trezeguet, Zambrotta, a lot of them are good players for us and for other clubs in the world. They will now be a better price than they would have been three months ago.”
Þetta eru allt hlutir sem við vitum; leikmenn Juventus eru góðir og myndu komast í hvaða lið sem er, og nú verða þeir fáanlegir á betra verði en þeir hefðu verið í apríl/maí. En af hverju talar Rafa um þetta svona opinskátt?
Ég held að hann ætli að gera annað af tvennu: hann ætlar að reyna að fá leikmann/menn eins og Trezeguet, Zebina, Zambrotta eða Camoranesi að láni í eitt tímabil með möguleikanum á kaupum eftir ár ef Juventus eru ennþá í Serie B. Og hitt, að með þessum orðum er hann að senda skilaboð til seljenda hjá öðrum klúbbum um að hann sé nú með ódýrari kosti og því sé ekki hægt að reyna að okra á honum. Þannig að kannski hjálpa þessi ummæli honum að ná mönnum eins og Pennant, Alves eða Kuyt á betra verði, ég veit það ekki.
Þetta eru allavega mjög furðuleg ummæli, en ljóst að eitthvað er að fara að gerast í þessum málum hjá okkur sem og öðrum liðum.