beach
« Speedy og Quickie kynntir í dag | Aðalsíða | Ítalía: eftirskjálftar gærdagsins »

14. júlí, 2006
Juventus, Fiorentina og Lazio niður um deild

Gazetta della sport (sjá frétt Guardian) heldur því fram að Juventus, Fiorentina og Lazio verði öll dæmd niður um deild, en tilkynnt verður um niðurstöðu ítölsku rannsóknarinnar seinna í dag.

AC Milan mun halda sæti sínu, en missa stig og mun ekki keppa í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Þetta gæti haft afleiðingar fyrir Liverpool. Fyrir það fyrsta er spurning um hvað gerist með Meistaradeildarsætið, en Liverpool er hæst skrifað af þeim liðum sem fara ekki beint inní Meistaradeildina.

Svo hefur Liverpool verið orðað við allavegana þrjá af leikmönnum Juventus. Mest hefur verið talað um hægri kantmanninn Mauro Camoranesi, sem var fyrst bendlaður við okkur fyrir um mánuði - en einnig hefur verið talað um Zlatan og Trezeguet. Ég er t.d. viss um að Zlatan og Craig Bellamy gætu orðið perluvinir. :-)

Guillem Balague, sem skrifaði m.a. A season on the brink um fyrsta ár Rafa Benitez heldur því fram að Rafa sé að horfa til framherjanna hjá Juve:

“There’s been some names linked from the Spanish La Liga, but there are some other players from Juventus and that includes Zlatan Ibrahimovic and David Trezeguet. Rafa is thinking or waiting to see what happens to them before he tries to get them.”

Væri það ekki snilld?

Það verður allavegana athyglisvert að fylgjast með þessum málum.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 15:10 | 214 Orð | Flokkur: Slúður
Ummæli (16)

Ég held að leikmennirnir hafi ekkert verið viðriðnir málið. Allavega hefur enginn þeirra verið kallaður inn til yfirheyrslu. Málið snerist um það að ráðamenn þessa fjögurra liða höfðu reglubundið samband og samráð við spillta yfirmenn dómaramála á Ítalíu, og reyndu að hafa sömu áhrif meðal dómara í Evrópukeppnum.

Setjum þetta upp í dæmi:

Vorið 1998 mættust Juventus og Internazionale í leik sem var nánast úrslitaleikur um titilinn það vorið. Undir lok leiksins, sem Inter þurftu að vinna til að geta tryggt sér titilinn, var klárlega brotið á Ronaldo innan teigs en dómarinn dæmdi ekkert. Nú, átta árum síðar, þykir augljóst að þetta atvik, auk margra annarra, féll Juventus í hag vegna þess að dómarinn var spilltur.

Það kom leikmönnum liðanna ekkert við og ég efast um að leikmaður Juventus hafi vitað af þessu, þetta er bara á milli dómaranna og forráðamanna liðanna fjögurra.

Þess vegna held ég líka að flestir þessir leikmenn hjá liðunum fjórum geti með góðri samvisku yfirgefið klúbbana sína. Ég meina, forráðamenn Juventus brutu af sér og uppskera fyrir vikið minnst tveggja ára veru í Serie B. En leikmennirnir gerðu ekkert af sér, klúbburinn þeirra sveik þá með svikum og prettum, því ættu þeir að þurfa að vera í Serie B í tvö ár?

Það kæmi mér á óvart ef Juventus selur ekki a.m.k. 10 leikmenn áður en tímabilið hefst, og að það verði 10 stærstu stjörnurnar þeirra.

Kristján Atli sendi inn - 15.07.06 10:47 - (Ummæli #13)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

Aggi: Það sem mér finnst mestu máli skipta er ...[Skoða]
Kristján Atli: Ég legg það ekki í vana minn að "dissa" ...[Skoða]
JónH: Takk Kristján Atli..fyrir gott svar og a ...[Skoða]
Kristján Atli: Ég held að leikmennirnir hafi ekkert ver ...[Skoða]
JónH: Ég hef verið að velta einu fyrir mér. ...[Skoða]
Dubliner: Var bara að velta fyrir mér hvort menn s ...[Skoða]
Gummi H: Þetta er svakalegur dómur fyrir Juve. Li ...[Skoða]
Mgh: Það verður verulega athyglisvert að sjá ...[Skoða]
Bjöggi: Það var rangt hjá mér, Juve verða ekki m ...[Skoða]
Bjöggi: Jæja þar sem dómurinn hefur nú verið kve ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License