12. júlí, 2006
Eins og komið hefur fram hér og annars staðar þá eru nokkrir leikmenn að yfirgefa Liverpool þessa vikuna. Um helgina gekk Antonio Barragan til liðs við Deportivo La Coruna, en það er hluti af samningnum að Liverpool geta keypt hann aftur fyrir fyrirfram ákveðið verð, ef hann slær í gegn hjá Depor. Í gær skrifaði Chris Kirkland svo undir lánssamning við Wigan Athletic, en ef hann stendur sig vel þar kaupa þeir hann í janúar á eina milljón punda. Ég vona að hann haldi sér nú meiðslalausum einu sinni, miðað við hans sögu yrði ég himinlifandi að fá fyrir hann milljón. Í dag er svo búist við að Dietmar Hamann skrifi undir samning við Manchester City, eftir að hafa snúið frá Bolton á nánast farsakenndan hátt. Við erum víst að fá um 500,000 pund fyrir þann þýska.
Í dag mun Djibril Cissé svo ganga frá samningi sínum við Marseille, og lýkur þar með sögu dýrasta leikmanns Liverpool hjá félaginu. Hann mun skrifa undir lánssamning til að byrja með, þar sem hann er meiddur, en talið er að Marseille borgi í kringum 8 milljónir punda fyrir hann í janúar þegar hann er farinn að spila á fullu.
Sem sagt, fjórir leikmenn hafa yfirgefið Liverpool þessa vikuna. Við erum ekki með nákvæmar tölur neins staðar, en líklegar tölur eru eftirfarandi: Barragan - 1 milljón, Hamann - 500 þúsund, Kirkland og Cissé lán (fé síðar). Við erum sem sagt að fá eina og hálfa milljón akkúrrat núna, en gætum fengið allt að níu milljónir fyrir Kirkland og Cissé í janúar.
Spurningin er því tvíþætt að mínu mati:
Til hvers var Rafa að leyfa þessum mönnum að fara, úr því að við fáum ekki mikið fé strax fyrir þá? Að mínu mati er það augljóslega til þess að losna við þá af launasamningi. Sérstaklega munar um þá Hamann, Kirkland og Cissé, en þeirra sameiginlegi launapakki hjá Liverpool hlýtur að hafa verið rausnarlegur. Hér hefur myndast pláss fyrir fleiri en einn nýjan leikmann í launastrúktúr liðsins.
Þótt liðið fái ekki nema um 1,5 milljónir punda strax fyrir þessa leikmenn, þá getum við verið nokkuð vissir um milljónirnar fyrir Cissé í janúar. Þannig að það er mögulega hægt að gera ráð fyrir þeim milljónum í fjárhagsplönum klúbbsins. Þeir hjá Daily Post vilja meina að þessar brottfarir muni gera Rafa kleift að ganga frá kaupum á Daniel Alves, og að þessi rúma milljón sem við fáum strax muni þá fara beint í aukið tilboð fyrir hann, sem Sevilla muni samþykkja. Þá hefur verið talað um að Rafa ætli sér að stökkva til og nýta sér mögulega útsölu á Ítalíu, verði lið eins og Juventus og AC Milan dæmd niður um deild(ir), en ég er ekki svo viss. Veit ekki hvaða leikmenn þar gætu verið Rafa að skapi, og svo stórefast ég um að menn eins og Ibrahimovic, Trézeguet eða Camoranesi (sem hafa helst verið nefndir í sambandi við okkur) fari eitthvað ódýrara þótt þeir séu komnir niður í Serie B.
Það er allavega ljóst í mínu huga, með þessum fjórum brottförum, að Rafa og Rick Parry eru að vinna á bak við tjöldin að því að stækka leikmannahópinn enn frekar áður en tímabilið hefst. Enn er rúmur mánuður í fyrsta deildarleik, og rúmlega einn og hálfur þangað til leikmannaglugganum lokar, þannig að það á enn mikið vatn eftir að renna til sjávar.
Það verður spennandi að fylgjast með þessu næstu dagana/vikurnar.