05. júlí, 2006

Tvær frábærar fréttir í einu:
Fabio Aurelio skrifar undir 4 ára samning við Liverpool og verður þar með fyrsti brasilímaðurinn til að leika fyrir Liverpool.
Mark Gonzalez er búinn að fá atvinnleyfi og getur því spilað með Liverpool á næsta tímabili.
Þetta Mark Gonzalez mál hefur náttúrulega verið hálfgerður skrípaleikur. Honum var hafnað um atvinnuleyfi um fyrra og fór því að láni til Real Sociedad, þar sem hann sló í gegn og skoraði eftirminnileg mörk. Það lánstímabil hefur svo sannarlega gert mann spenntari fyrir því að sjá hann klæðast Liverpool búningi.
Fabio Aurelio er svo verulega góður vinstri bakvörður, sem var lykilmaður í Valencia liði Rafa Benitez. Hann er 26 ára gamall og hefur sagt að hann sjái skiptin til Liverpool vera kjörið tækifæri fyrir sig að reyna að komast inní brasilíska landsliðið núna þegar að Roberto Carlos er hættur. Hann er svo sannarlega ekki kominn til að sitja á bekknum og það er því ljóst að John-Arne Riise verður að hafa fyrir hlutunum vilji hann ekki missa stöðuna sína til Aurelio.
Rafa segir um Aurelio:
“His technical ability is fantastic and he has a great left foot and provides the team with a lot of options. He has a really good mentality and he is a winner.”
Mark Gonzalez er 23 ára21 árs gamall Chile búi (verður 24 22 ára eftir nokkra daga). Hann er fyrsti Chile búinn til að spila fyrir Liverpool og er af flestum talinn besti knattspyrnumaður Chile þessa dagana. Hann mun án efa veita Harry Kewell harða samkeppni um stöðu á vinstri kantinum.
Rafa segir um Gonzalez:
“Mark is an exciting left winger who can cross good balls and beat defenders and he is a very good signing for us. He has a very good mentality as when I was talking with him he told me, ‘I want to play for Liverpool’.”
Þetta er svo sannarlega góður dagur. Hugsanlega gæti vinstri helmingur Liverpool liðsins verið að gjörbreytast.