beach
« Deportivo á eftir Barragan | Aðalsíða | Hatem Trabelsi á leið til okkar? »

04. júlí, 2006
Cisse sár og gæti Anelka verið á leiðinni?

Eftir því sem SkySports hefur eftir Cisse þá er hann mjög sár út í Rafa og er ástæðan fyrir því að hann og Liverpool vilji selja hann. Hann segist ekki hafa viljað fara frá Liverpool en sé verið að ýta sér frá félaginu.

”I have no reason to leave. I feel good here, I have good friends here, I get on with the staff. I have got married here, my son is here. Everything is really good for me here, it’s really hard. If I have the choice, I’d stay here a long time. But I guess I don’t have the choice.”

Ég skil vonsvikni Cisse en ég skil Rafa einnig vel þar sem hann telur að Cisse henti ekki leikskipulagi sínu sem og hann sé of dýr leikmaður til að hafa á bekknum.


Þar sem ljóst er að Cisse á ekki framtíð hjá Liverpool og búið er að ræða mikið um Dirk Kyut þá er nýtt nafn komið inní myndina en það er Nicolas Anelka. Skv. SkySports þá hafa Werden Bremen, Lyon og Liverpool sýnt honum áhuga en í vetur spilaði hann í Tyrklandi með Fenerbahce. Ég hef ávallt verið hrifinn af Anelka sem leikmanni og mér þótti hann standa sig vel með okkur á sýnum tíma. Þáverandi stjóri, Gerard Houllier, ákvað sem frekar að eyða búnka af milljónum í El-Hadji Diouf (frábært). Þeir sem hafa lesið ævisögu Robbie Fowler munu væntanlega segja að þeir geti ekki unnið saman þar sem Fowler segir m.a. að Anelka sé eigingjarn og hugsi eingöngu um sjálfan sig. Það er drengurinn og hann hefur eiginlega aldrei fengið góðar ráðleggingar frá sínum nánustu hins vegar tel ég að ef Liverpool vill fá Anelka og hann koma muni þeir báðir vinna saman eins og fullorðnir menn og sannir atvinnumenn. Eina sem ég geri athugasemd við í þessari frétt er verðmiðinn á Anelka en talað er um 8 milljónir punda. Ætli eðlilegra væri ekki að tala um 5 milljónir punda.

já og David Raven er farinn til Carlisle og skrifaði undir 2ja ára samning þar.

HM er búið (þar sem England og Spánn eru dottinn út) og kominn tími á að einbeita sér fullkomlega að Liverpool :-)

.: Aggi uppfærði kl. 07:52 | 362 Orð | Flokkur: Leikmannakaup
Ummæli (14)

Búin? BÚIN? Aggi minn, það stefnir í smá ritdeilu okkar á milli. Ég er vægast sagt ósammála þessari fullyrðingu þinni. :-)

Maður hefur kannski sterkari taugar til sumra landsliða en annarra, þar sem þau hafa einhvern tímann áður skemmt manni. Þannig hef ég alltaf haft taugar til hollenska landsliðsins, svo dæmi sé tekið, en miðað við þá knattspyrnu sem þeir spiluðu í ár saknaði ég þeirra lítið sem ekkert þegar þeir voru dottnir úr keppni. Sama gildir um England, Spán og fleiri lið sem skarta Liverpool-leikmönnum; maður heldur auðvitað alltaf pínu með þeim, en eftir að upphaflega sjokkið að sjá Englendingana tapa í vító brann yfir var mér eiginlega nokk sama.

Að sama skapi er Portúgal eitt af mínum uppáhalds löndum í heiminum; ég hef komið þangað þrisvar og meðal annars hitt Figo og nokkra aðra, þannig að mér er frekar hlýtt til þeirra persónulega. En það hefur ekki hindrað mig í að standa fyllilega á móti þessu leikara- og svindlaraliði í keppninni í ár. Þannig er það nú bara.

Á endanum er eina landsliðið sem ég held með landslið Íslands, þar sem ég er jú Íslendingur. Svo skil ég vel t.d. að Einar haldi með Mexíkó, þar sem hann bjó þar og kynntist ástríðunni að baki liðinu vel. Það skil ég.

En að öðru leyti finnst mér alltaf hálf skrýtið þegar menn ætla að fara í "fýlu" af því að England, Þýskaland, Brasilía eða eitthvað annað land datt út. Jú, það voru Liverpool-leikmenn í enska liðinu og jú við horfum mest á enska boltann, en það kemur landsliðinu þeirra lítið við að mínu mati.

Pointið er þetta: HM er ENNÞÁ Í FULLUM GANGI, og í kvöld verður enn ein flugeldasýningin til marks um það! Að einhverju leyti hefur þessi keppni valdið vonbrigðum (fá mörk, spjaldaglaðir dómarar, leikaraskapur) en að öðru leyti hefur hún verið langtum framar vonum (stórkostleg upprisa Zizou, þýskur sóknarbolti, mikil háspenna í mörgum ógleymanlegum leikjum) og því hlakka ég ótrúlega mikið til undanúrslitanna. Jafnvel þótt England, Spánn, Holland, Mexíkó, Argentína og jafnvel Brasilía séu dottin út.

Þýskaland - Ítalía í kvöld og Portúgal - Frakkland á morgun. Allt það besta sem Evrópu- og heimsknattspyrnan hafa upp á að bjóða, sem og það versta. Býst við að fyrir hvert gullkorn Zizou sjáum við Ronaldo henda sér einu sinni vælandi í jörðina, og svo framvegis, en það er það sem gerir þetta svo skemmtilegt.

HM er sko ekki búin, og þar sem ég tel bókstaflega sekúndurnar niður að leiknum í kvöld var ég bara móðgaður að lesa þessa staðhæfingu þína Aggi (í góðu samt :-) ) ... þetta mót er bara rétt að byrja fyrir alvöru. Í kvöld skal svorfið til stálsins!

Já, ég veit, ég á það til að vera hálf-fanatískur. :-)

Kristján Atli sendi inn - 04.07.06 09:05 - (Ummæli #3)

Það gæti farið svo að Liverpool fari beint í riðlakeppnina í meistaradeildinni skv. þessu

Veit ekkert hversu áreiðanleg þessi síða er :-)

Páló sendi inn - 04.07.06 09:55 - (Ummæli #7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Maccabi Haifa 1 - Liverpool 1
·Sheffield United 1-1 Liverpool
·Liverpool - Chelsea 2-1
·Liverpool 2 - Maccabi Haifa 1
·Mainz 5 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

Gummi: Ég hugsa að það væri margt vitlausara en ...[Skoða]
Páló: vil ekki JFH þar sem hann er einfaldlega ...[Skoða]
Davíð Már: Fá bara Hasselbaink á Free transfer, ley ...[Skoða]
Gummi: Æææææiiii neiiii ekki Anelka plís! Það e ...[Skoða]
Snorri: Er ekki búið að ákveða að Cissé fari til ...[Skoða]
Mummi: Ef það er til einn maður sem gæti eyðila ...[Skoða]
Aggi: Mgh: Varðandi Anelka þá hugsa ég að það ...[Skoða]
Páló: Það gæti farið svo að Liverpool fari bei ...[Skoða]
Gummi H: Það kæmi mér ekki á óvart ef dagsskipun ...[Skoða]
Benni Jón: Það eru 4 landslið í evrópu sem ég hef a ...[Skoða]

Síðustu færslur

· West Ham á morgun
· Lucas Neill á leiðinni?
· Riðill C!
· Jöfn deild í byrjun ...
· Nýr haus
· Sissoko frá í 2 vikur

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License