03. júlí, 2006
Deportivo La Coruna eru á eftir Antonio Barragan, hinum unga hægri bakverði Liverpool.
Talið er að Rafa Benitez geti hugsað sér að lána Barragan í eitt ár, en sé ekki tilbúinn að selja. Enda lítil ástæða til að selja, þar sem Barragan er bara 19 ára og er hægri bakvörður spænska ungmennalandsliðsins. Að mínu mati er talsvert öðruvísi að senda menn að láni til Frakklands og Spánar. Ég held að lánssamningur til spænsks liðs gæti komið sér vel fyrir hann.
Hins vegar ef við endum á því að kaupa ekki Daniel Alves og Jan Kromkamp fer til Hollands, þá erum við bara eftir með Steve Finnan í hægri bakverðinum. Þá er spurning hvort Rafa telji að Barragan sé tilbúinn að vera varamaður fyrir hann. Það verður fróðlegt að sjá. Allavegana hlýtur að teljast líklegt að Barragan fari ekki fyrr en að Alves mál eru komin á hreint.